Blik - 01.05.1957, Qupperneq 99
B L I K
97
< -----------——-----
Gömul
skjöl
------—--------
Lestrarfélag Vestmannaeyja
Lestrarfélag Vestmannaeyja
var stofnað árið 1862.
Hér birtir Blik ávarp frum-
kvöðlanna, þeirra Bjarna E.
Magnússonar, sýslumanns, séra
Brynjólfs Jónssonar og J. G. T.
Bryde kaupmanns.
Þá birtist hér reglugjörð sú,
sem þeir sömdu fyrir félagið,
svo og listi yfir menn, sem
gjörðust meðlimir félagsins þeg-
ar við stofnun þess.
Ávarpið ber með sér áhrif
dönskunnar frá síðustu öld.
Stafsetning og kommusetning
er hin sama og á frumritunum.
Haraldur Guðnason, bóka-
vörður, hefur gefið Bliki afrit af
skjölum þessum. Færum við
honum beztu þakkir fyrir.
Hverjum manni má kunnugt vera,
hve mjög almenn menntan og þekk-
*ng styður að því að efla heill og
velferð lýða og landa, og má með
sanni álitast sem grundvöllurinn
undir andlegum og líkamlegum
íramförum hvers einstaks manns
og þjóðfélagsins yfir höfuð; því
upplýsingin og þekkingin hvetur
menn til dáða og dugnaðar, og til
þess að neyta krapta sinna, sér og
öðrum til gagns og nota, því með
almennri upplýsingu fylgir allajafna
almenn velferð, dáð og dugur, en
með vanþekkingu ódugnaður og
eymdarskapur.
Af þessum ástæðum hefur oss und-
irskrifuðum, er fúslega viljum
stuðla til þess, er miðar Vestmanná-
eyjum til heilla og velferðar, komið
ásamt um, að til þess að efla og
glæða almenna og nytsama þekkinu
meðal Eyjabúa, sem vér, eins og nú
er getið, álítum svo áríðandi, væri
mjög nauðsynlegt að bókasafn yrði
stofnsett hér í Vestmannaeyjum,
innihaldandi ýmsar fróðlegar og
lærdómsríkar bækur á íslenzku og
dönsku máli, er frætt gæti alþýðu,
og virðist oss þetta hér því æski-
legra, sem enga skólamenntun er að
fá hér handa börnum og unglingum,
sem menn á öðrum stöðum, einkum
í útlöndum geta orðið aðnjótandi,
eins og það á hinn bóginn er al-
kunnugt, að mörgum, bæði ungum
og gömlum, bæði hér og annarsstað-
ar á íslandi, þykir mikil unun að
bókum, en geta opt eigi sökum fá-
tæktar eða annarra orsaka vegna,
fengið þær. Undir eins og vér því,
eru fullvissir um, að margir hér
muni hafa vilja til þess, að afla sér
þess fróðleiks, er glætt geti sanna
framfara löngun í andlegu og lík-
amlegu tilliti, ef þess gæfist kos'-
ur, viðurkennandi sannleika hins
forna málsháttar, „að blindur er
bóklaus maður“, verðum vér jafn-
framt að játa, að flesta skortir efni
til, að afla sér nytsamra og fróð-
legra bóka, og viljum því — þar fé-
lagsskapur og samtök góðra manna
geta ráðið bót á þessu — skora á
þá af Eyjabúum, sem einhver efni
hafa, og vilja vel sér og þessum af-
skekkta Hólma, að ganga í lið með
oss, og styrkja oss með tillögum
sínum, að stofnsetja bókasafn, sem
tilheyra á Vestmannaeyjum, og