Blik - 01.05.1957, Page 100
98
B L I K
heita „BÓKASAFN VESTMANNA-
EYJA LESTRARFÉLAGS“ og miða
til upplýsingar og uppfræðingar fvr-
ir alþýðu hér á eyju. — Bráða-
birgðar reglugjörð fyrir félag þetta
fylgir hérmeð, til eftirsjónar fyrir
þá er kynnu að vilja ganga í ofan-
greint Lestrarfélag.
REGLUGJÖRÐ
fyrir
Lestrarfélag Vestmannaeyja.
1.
Það er mark og mið lestrarfélags
Vestmannaeyja með stofnun bóka-
safns, er innihaldi ýmsar fróðlegar
og nytsamar bækur, einkum á ís-
lenzku og dönsku máli, að efla al-
menna þekkingu á öllu því, er stutt
geti að andlegum og líkamlegum
framförum, og þar með fylgjandi
heill og hagsæld Eyjabúa sérílagi.
2.
Hver sem verða vill meðlimur
félags þessa, borgi, um leið og hann
gengur í það, og svo lengi sem hann
er í því, ár hvert, að minnsta kosti
tvö mörk, hvort heldur er í pen-
ingum eða með einhverri þeirri bók,
er forstöðunefnd félagsins álítur fé-
laginu gagnlega, og skal hann hafa
goldið tillag sitt innan maímánað-
arloka hvert ár.
3.
Sá félagsmaður sem lætur eitt-
hvað af hendi rakna við félagið,
fram yfir það, sem minnst er tiltek-
ið, skal hafa þeim mun meiri rétt
til bókalána hjá félaginu.
4.
Hver sá er auðsýna kynni félag-
inu einhverja sérlega velgjörð, get-
ur á aðalfundi félagsins, ef fleiri
atkvæði eru með en móti, orðið
kjörinn sem heiðursfélagi.
5.
Hvern þann félaga, sem ekki
greiðir hið minnsta tiltekna tillag í
2 ár samfleytt, má eftir uppástungu
forstöðunefndarinnar útiloka úr fé-
laginu, nema því aðeins að hann þá
borgi skuld sína, og æski framvegis
að vera í félaginu.
6.
Sá sem vill segja sig úr félaginu,
gjöri það ekki seinna en misseri á
undan aðalfundi.
7.
Félagi þessu, sem nú stofnast, sé
hið fyrsta ár veitt forstaða af sýslu-
manni og sóknarpresti Vestmanna-
eyja, og velji þeir sér til aðstoðar
mann, er þeir álíta bezt til þess
fallinn; •—• en að þessu ári liðnu og
fremvegis, skulu 3 menn kosnir í
forstöðunefnd af félagsmönnum, á
aðalfundi félagsins, er jafnan skal
haldinn einu sinni á ári, um far-
daga leytið. —
8.
Meðlimir forstöðunefndarinnar
skulu eftir samkomulagi sín á milli,
hafa öll þau störf á hendi er við-
koma félaginu, svo sem bókhald,
bókageymslu og reikninga yfir tekj-
ur og gjöld félagsins, skal nefndin
hafa 3 bækur, eina gjörðabók, aðra
fyrir reikninga félagsins og hina
3ju innihaldandi bókalista og útlán
bóka. —
9.
Á aðalfundi félagsins, sem getið
er í niðurlagi 7. greinar, skal for-
stöðunefndin skýra frá aðgjörðum
félagsins um hvert undanfarið ár,
einnig framleggja reikning yfir fjár-
hag þess.
10. .
Förstöðunefndin lánar út bækur
til meðlima félagsins einu sinni í
viku hverri (og mun hún, þegar þar
að kemur, gefa félagsmönnum ná-
kvæmari ávísun um meðferð bóka
og annað þar að lútandi).
11.
Þyki þess þörf að gjörð sé breyt-
ing á reglum þessum eða við þær