Blik - 01.05.1957, Page 119
B L I K
117
hæð, þar af 65 faðmar af grjóti í
ytri hleðslu, allt annað af torfi.
Af torfgarðinum eru 26 faðmar
meira og minna ónýtt og af grjót-
garðinum 10 faðmar að nokkru
leyti fallnir.
6. Túnið, að mestu leyti slétt af nátt-
úrunnar völdum, en í órækt, og
á það vantar allan áburð, en á-
burður enginn til á jörðinni.**
Þannig var þá um jörðina,
þegar Gísli Lárusson gullsmið-
ur fékk byggingu fyrir henni
1899.
Það mun verið hafa árið 1906
að hingað til Eyja flutti maður
að nafni Bernódus Sigurðsson.
Hann var frá Kirkjulandshjá-
leigu í Landeyjiun. Giftur var
hann Jóhönnu Þórðardóttur,
systur Ágústs Þórðarsonar yfir-
fiskimatsmanns að Aðalbóli hér
og þeirra systkina. Brátt eftir
að Bernódus Sigurðsson settist
hér að, gerðist hann sameignar-
maður Gísla Lárussonar um út-
gerð. Áttu þeir fyrst saman með
fleirum vélbátinn Björgvin. Síð-
an létu þeir Gísli og Bernódus
byggja sér vélbát, sem þeir
nefndu Má. Hann fórst árið
1920. Bernódus var formaður á
bátnum og fórst með honum.
Árið 1910 lét Gísli Lárusson
Bernódusi sameignarmanni sín-
** Þar sem ekki er annars getið, er heimild
mín um stærð jarðarhúsa og aðrar íylgi-
eignir jarðanna Úttektabók umboðsins hér
í Vestmannaeyjum. Ég hefi breytt álnum
og föðmum í metra og sett í sviga, til
þess að athugull lesandi gæti fremur gert
sér grein fyrir stærðum húsa og kálgarða
og lengd túngarða. þ.þ.v.
um eftir nytjar af Vestur-
Stakkagerðisjörðinni. Bemódus
byggði íbúðarhús í túni jarðar-
innar. Það er húseignin Vestra-
Stakkagerði gegnt Alþýðuhús-
inu. Eftir slysið, er v/b Már
fórst, vildi Jóhanna Þórðardótt-
ir, ekkja Bernódusar, segja
jörðinni lausri. En Ágúst bróðir
hennar og næsti nágranni, taldi
það óráð fyrir hana. Bauðst
hann til þess að hjálpa henni að
nytja jörðina. Það varð úr.
Jóhanna Þórðardóttir dó árið
1923. Þá fékk Ágúst bróðir
hennar afnot jarðarinnar, enda
þótt hann fengi ekki byggingu
fyrir henni. Ágúst nytjaði síð-
an jörðina árin 1923—1934. Þá
Sameignarmennirnir Gisli Lárusson gull-
smiður (t. v.) og Bernódus Sigurðsson,
skipstjóri.