Blik - 01.05.1958, Blaðsíða 3
37o.s
Mo
ÁRSRIT GAGNFRÆÐASKÓLANS í VESTMANNAEYJUM
VESTMANNAEYJUM
MAÍ 1958
ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON, skólastjóri:
HUGVEKIA
flutt í Gagnfræðaskólanum í Vestmannaeyjum haustið 1957
Nemendur.
Fyrir skömmu var ævintýrið
um konungssoninn hamingju-
sama lesið upp í Ríkisútvarpið.
Flaug mér þá í hug sem svo
oft áður, að líta mætti á ykkur
sem konungssyni og konungs-
dætur, sem væru hér til þess að
búa sig undir lífið, undir ham-
ingjuleitina á lífsins leið, þetta,
sem við þráum öll og viljum um-
fram allt höndla í lífinu.
Auðvitað hafið þið öll lesið
ævintýri um böm og unglinga,
sem mjög syrtir í álinn fyrir
um hamingjusama framtíð bæði
sökiun fátæktar og vonds fólks,
sem að þeim standa og örlög
þeirra virðast hafa í hendi sér,
svo sem slæmar stjúpur o. fl.
En hafið þið nokkru sinni, nem-
endur mínir, gert ykkur glögga
grein fyrir því, hvað það er oft-
ast, sem höfundar ævintýranna
láta bjarga þessu óhamingju-
sama æskufólki úr neti ógæf-
unnar og leiða það fram til
heilla og hamingju í lífinu?
Þessi ævintýri hafa mjög
mörg verið jafnan talin með
gimsteinum heimsbókmenntanna
og hafa flutzt úr einu landi í
annað og eru lesin um allan hinn
læsa heim. Hver mundi vera á-
stæðan?
Höfundar ævintýra þessara
hafa verið næmir mannþekkjar-
ar og mannlífshugsuðir, og
ævintýrin þeirra boða okkur
helg og óbifanleg lífssannindi,
sem eiga erindi til allra. Hver
eru svo þessi lífssannindi ? Þau
eru það, að tilfinningalíf og
LANDSBúiíASAFN
22157 Y
ÍSLANDS