Blik - 01.05.1958, Qupperneq 19
B L I K
17
veitt. Hann fékk m. a. opið fót-
brot. Þarna stóð Sigríður yfir
manni sínum yfirkomin og ráð-
þrota. Hann var fluttur heim
nær dauða en lífi. Fékk kolbrand
í fótbrotið og andaðist brátt.
Það var 30. október 1830.
Við hverfum nú um stund frá
hinni harmi lostnu ekkju í Jóns-
húsi, sem leitar sjálfri sér
trausts, styrks og huggunar í
heitri guðstrú sinni og nýtur til
þess mestrar hjálpar í sálmum
séra Hallgríms Péturssonar.
Við skyggnumst um og leið-
um hugann að fleira fólki í Eyj-
um.
2. Bergur Brynjólfsson
Bergur er maður nefndur.
Hann er sagður vera Brynjólfs-
son. Sumir segja hann son Eyja-
Brynka, er var lögsagnari í
Vestmannaeyjum áiin 1755—
1758. þ. e. sýslumaður. Sá
Brynjólfur var Brynjólfsson
Gíslasonar bónda á Höskulds-
stöðum í Breiðdal. Islenzkar
æviskrár telja hinsvegar Eyja-
Brynka barnlausan með öllu og
verður það ekki véfengt hér.
Sannast mun það mála, að
Bergur þessi hafi verið launget-
inn prestssonur austan úr
Skaftafellssýslu, og einhver ó-
þekktur Brynjólfur og alsaklaus
af öllu kynlífi við móðurina ját-
að á sig faðerni hans til þess að
bjarga hempu prestsins.
Bergur Brynjólfsson var
fæddur árið 1759. Hann giftist
fyrri konu sinni Sigríði Jóns-
dóttur 9. maí 1793 og missti
hana eftir 5 ára hjónaband 24.
ágúst 1798. Þau bjuggu hér í
Eyjum, fyrst á Kirkjubæ og
síðan á Oddsstöðum. Á þessum
5 hjúskaparárum sínum eignuð-
ust þau Bergur og Sigríður 4
börn, sem dóu öll nærri nýfædd
úr ginklofa.
Réttum 5 mánuðum eftir jarð-
arför Sigríðar konu sinnar gift-
ist Bergur öðru sinni, eða 31.
janúar 1799. Seinni kona hans
var Guðfinna Guðmundsdóttir,
er var Ijósmóðir hér í Eyjum
um árabil. Hún var 16 árum
yngri en Bergur og 24 ára, er
þau giftust.
Daginn 11. febrúar árið 1800
fæddist þeim hjónum Bergi og
Guðfinnu fyrsta barnið. Það var
stúlka,, er skírð var Sigríður
eftir fyrri konu Bergs. Annað
barn þeirra, Guðmundur, fædd-
ist 14 mánuðum síðar, og þriðja
blarnið, Þórdís, 15. júlí 1802.
Hún hlaut nafn móðurömmu
sinnar, Þórdísar Vigfúsdóttur,
er Guðfinna ljósmóðir mun hafa
unnað mjög, enda notið umönn-
unar hennar í bernsku.
Svo liðu 9 ár með barneignum
og barnamissi. Þá fæddist þeim
hjónum sveinbarn, sem hlaut
nafn langafa síns 1 móðurætt
og var skírt Vigfús.
Vigfús Bergsson fæddist 10.