Blik - 01.05.1958, Blaðsíða 31
B L I K
29
um. Hin framliðna var einnig að
því leyti lánsmaður, að guð hafði
gefið henni mannvænleg og efni-
leg börn. Og hver er gæfusamur,
ég vil segja ríkur, ef ekki sá,
sem á banasænginni getur glatt
sig við þá vissu, að eftir hann
lifa góð og efnileg börn, foreldr-
unum til sóma og föðurlandinu
til uppbyggingar, og þessa von
hafði hún, sem hér liggur liðið
lík. — Já, hvað þessi framliðna
var með trygglyndi hjarta síns,
það finna hjörtu ástvina henn-
ar á þessari sorgarstundu og
munu ekki gleyma því. Ég veit,
að hann, sem lifir eftir sem ekk-
ill, horfir með hryggum huga á
eftir miklum hluta lífsgleði sinn-
ar, því að dauðinn hefir tekið
hana frá honum, sem jafnan til-
heyrði honum með öllu trygg-
lyndi hjarta síns og fylgdi hon-
um í blíðu og stríðu .... Með
sömu tilfinningum minnast
bömin sinnar góðu móður og
helga þessa minningu í þakklát-
um en sorgbitnum hjörtum ...“
Þetta var kafli úr húskveðju
þeirri, er séra Oddgeir flutti við
kistu Guðrúnar Þórðardóttur
húsfreyju í Túni. Milli orðanna
má glögglega gera sér grein fyr-
ir, hvílíkur drengskaparmaður
Jón bóndi í Túni var, góðlynd-
ur og göfuglyndur. Hinsvegar
leynist það heldur ekki, að presti
hefir fundizt til um manngæði
Guðrúnar húsfreyju, móðurinn-
ar og eiginkonunnar.
Prestur minnir á það í hús-
kveðjunni, að ekki sé það í
fyrsta sinn sem dauðinn höggvi
skarð í ástvinahóp Jóns bónda.
Hér hugsar prestur til þess, er
Jón Vigfússon missti báðar dæt-
ur sínar, Pálínu og Sigríði.
Jón Vigfússon bóndi í Túni
var mikill dugnaðarmaður og
formaður hér um árabil. Lengst
var hann formaður á opna skip-
inu „Svan“. Milli þess að Jón
stundaði sjóinn, vann hann að
smíðum. Hann átti smiðju heima
í Túni, þar sem hann smíðaði úr
járni ýmsa hluti fyrir Eyjabúa.
Þá þótti hann trésmiður ágætur
og var einn helzti húsasmiður
hér á sinni tíð.
Sumarið 1905 lét Jón Vigfús-
son af hendi ábýlisjörð sína Tún
til tengdasonar síns, Bjarna
Bjarnasonar frá Loftsstöðum í
Mýrdal, er giftist Sigurlínu
dóttur hans árið áður eða 1904.
Jón Vigfússon bóndi í Túni dó
vorið 1908
Heimildir: Bækur kirkna, úttekt-
arbók embættisins hér, aldrað fólk
o. fl.
Þ. Þ. V.