Blik - 01.05.1958, Blaðsíða 61
B L I K
59
efni, en honum þótti faðir sinn
vera sér til byrði og hrakti hann
því frá sér á sveitina.
Einu sinni hittust þeir feðgar
af hendingu. Bað þá gamli mað-
urinn son sinn grátandi að senda
sér nú rekkjuvoðir, sem hann
hafði skilið eftir. ,,Þú sérð það,
sonur, hvað mér er bráðnauð-
synlegt að fá voðirnar," sagði
gamli maðurinn, „og þó hefi ég
aldrei getað fengið þær sendar,
hversu oft sem ég hefi beðið um
þær.“
Þegar bóndinn kom heim,
fékk ihann syni sínum ungum
rekkjuvoðirnar og skipaði hon-
um að fara með þær til gamla
mannsins hans afa síns. Dreng-
urinn fór af stað en skildi eftir
aðra voðina. Þegar faðir hans
varð þess vís, varð hann fok-
vondur og sagði: „Hví fórstu
ekki með báðar voðirnar til afa
þíns, óhræsið þitt?“
Piltur lét sér hvergi bregða
og svaraði: „Pabbi, ég ætla að
geyma aðra voðina handa þér,
þangað til ég fer eins með þig
og þú hefir farið með hann afa
minn, og ég rek þig frá mér á
sveitina."
Birgir Þorsteinsson
III. bekk bóknáms.
Eyjan mín, hún Grímsey
Víða, þar sem Grímseyingar
hafa komið upp á meginlandið,
hafa þeir rekið sig á það, að
fólk gerir sér mjög skrítnar hug-
myndir um Grímsey.
Margir hafa t. d. spurt mig,
hvort ekki væri voðalega kalt
þar.
En það er öðru nær. Að vísu
getur frost orðið þar nokkuð
mikið, en að jafnaði er frekar
hlýtt og gott veður, t. d. á vorin
er sólskin þar allan sólarhring-
inn. 1 júní var flogið út til að
sjá miðnætursól frá Grímsey, og
þótti mörgum það stórfenglegt
ferðalag; ihéldu að það væri ekki
svona fallegt norður í Grímsey.
Atvinnuvegir eru þar tvenns-
konar, sjósókn og landbúnaður.
Róa þeir á opnum bátum,
jafnhliða sem þeir stunda bú-
skapinn.
Oft á vetrum eru veðrin svo
góð, að hægt er að róa á þessum
opnu bátum mikinn hluta vetr-
arins.
Frekar rólegt er í Grímsey
á vetrum; bæði eru samgöngur
strjálli, póstbáturinn kemur út
á þriggja vikna fresti yfir vetr-
armánuðina, og eins er síldar-
flotinn, sem setur svip sinn á
Grímseyjarsund yfir síldartím-
ann, horfinn.
Lítið er um skemmtanir í
Grímsey að vetrinum; fólk gerir
sér til skemmtunar að koma
saman og spila, sumir tefla, og
oft er skemmtunin aðeins sú að
hlusta á útvarpið.
Annars hefur verið siður þar