Blik - 01.05.1958, Qupperneq 74
72
B L I K
inn í bæ, þegar hana var farið
að lengja eftir pelanum. Einu
sinni var hún handsömuð inni á
miðju baðstofugólfi, og var þá
búin að gera þarfir sínar, svo að
hún þótti þar ekki góður gestur.
Morguninn, sem við fórum,
bauð ég henni pelann, en hún
kunni sýnilega ekki við mig í
ferðafötunum, því að hún þefaði
af mér þó sérstaklega af and-
liti og höndum. Hún hristi þá
bara hausinn og labbaði í burtu.
Þórey Bergsdóttir
III. bekk bóknáms.
Þegar ég kvaddi vini mína
í sveitinni
Ég var 10 ára, þegar þetta
gerðist.
Ég vaknaði snemma þennan
morgun, svo að ég missti ekki af
mjólkurbílnum, því að ég átti að
fara heim til Eyja. Skólinn átti
að byrja eftir tvo daga. Ég
hlakkaði ekkert til að fara heim,
því að ég varð að skilja við
svo góða kunningja, hundinn
Lappa og hestinn Blesa. Lappi
hafði elt mig hvert sem ég fór
allt sumarið, og ég lék við hann
eins og krakka. Á hverjum
morgni, þegar honum var hleypt
upp úr kjallaranum, fór hann
beint að dyrunum, þar sem ég
svaf, og gaf frá sér smá bofs til
þess að vekja mig. Um leið og ég
birtist í dyrunum, flaðraði hann
upp um mig allan og sleikti
hendur mínar. Eitt sinn varð ég
að sofa úti í hlöðu, vegna þess
að það komu svo margir gestir.
Vaknaði ég þá um morguninn
við það, að eitthvað rakt og
mjúkt strauk vanga minn og
var það Lappi, sem var að
sleikja mig.
Ég rak og sótti kýrnar allt
sumarið og fór þá alltaf á Blesa.
Þegar ég var á baki honum,
fannst mér ég vera fær í flestan
sjó, því að ég treysti honum full-
komlega. En núna varð ég að
skilja við þá, og það þótti mér
verst.
Ég byrjaði á því þennan
morgun að fara út í móann, þar
sem Blesi var á beit, til þess að
kveðja hann. Ég klóraði honum
bak við eyrun og kyssti á snopp-
una á honum, og hvíslaði
kveðjuorðum í eyra hans. En
hann strauk flipanum eftir
vanga mér. Lappi var með mér,
eins og venjulega, og hann vildi
auðsjáanlega einnig sýna mér
vináttu. Settist ég því niður og
talaði við hann eins og ég hafði
gert svo oft áður, og sleikti hann
hendur mínar í sífellu. Það var
auðséð, að hann skildi það, sem
ég sagði við hann. Því næst
héldum við heim á leið, og gengu
þeir Blesi og Lappi við hlið mér.
Skildi ég við Blesa við túnhliðið.
Þegar heim að bænum kom,
skipti ég um föt og lét í tösku