Blik - 01.05.1958, Síða 122
120
B L I K
næsta dag. Einu sinni sagði
hann: Nú fáum við norðan stór-
hríð á morgun, piltar. Útvarpið
segir, að hún sé komin alla leið
norður á Spán.
—□-----------
Fuglahræða var í æðarvarpi.
Hún var færð í kvenkjól og með
kvenhatt.
Gömlum manni, sem fram hjá
gekk, varð að orði: „Fáar eru
þær orðnar stöðurnar í þjóðfé-
laginu, sem kvenfólkið ekki seil-
ist í frá okkur karlmönnunum.
—□-----------
Þekktur borgari í Eyjum var
að vanda um við son sinn.
„Svei, Pétur“, sagði hann, „þú
mátt aldrei segja ljótt“.
„Hversvegna blótar þú þá,
pabbi?“
„Það er allt annað“, svaraði
faðirinn, „ég er giftur“.
—□-----------
Gömul hjón ofan úr sveit eru
að skoða kyrkislöngu í dýra-
garðinum. Umsjónarmaðurinn
er að lýsa slöngunni fyrir þeim
og segir m. a., að hún geti
gleypt fullorðna sauðkind. Þeg-
ar bóndi heyrir þetta, tekur
hann í handlegg konu sinnar og
segir: „Stattu ekki svona nærri
búrinu, kona“.
—□-----------
Kyndarinn: Hvernig stóð á
því, að þú skyldir vera að kyssa
kærustuna í myrkrinu í gær-
kvöldi ?
Hásetinn: Ég skil nú reyndar
ekkert í því sjálfur, þar sem ég
hafði áður séð hana í björtu.
—□------------
Próf essorinn: Ég fullvissa
yður um, að í kennslustund hjá
mér getið þér ekki sofið.
Stúdentinn: Ég gæti það, ef
þér töluðuð svolítið lægra.
—□------------
Villi litli: Þú ættir að sjá,
mamma, hvernig hann pabbi og
eldhússtúlkan búa til límonaði.
Móðirin: Hvernig fara þau að
því?
Villi: María heldur á sitron-
unni og pabbi kreistir síðan
Maríu.
—□------------
Túlli: Ekkert er yndislegra
til í heiminum en fyrsta ástin,
eða finnst þér það ekki, elskan 9
Snolla: Jú, það segi ég satt.
En mér þykir samt ósköp vænt
um þig.
—□------------
Bílstjórinn: Ég vildi gjaman
mega bæta fyrir hanann, sem ég
drap.
Hanaeigandinn: Jæja, komið
þá hingað kl. 4 ihvem morgun
og galið.
—□------------
Miðsvetrarpróf í dönsku í 1.
B. Þýðing:
Han besögte et par venner:
Hann stóð berhöfðaður úti í
vindinum.