Þjóðmál - 01.12.2016, Side 15
STJÓRNMÁL
„Við höfum því gengið til góðs í þau 10 ár sem Samfylkingin
hefur starfað. Við getum stolt horft um öxl og sagt með sanni
að draumur okkar hafi ræst. Við getum með sama hætti
horft bjartsýn til framtíðarinnar, fullviss um að gildi jafnaðar-
mennskunnar um frelsi, jafnrétti og bræðralag hafi sjaldan átt
meira erindi við Island, en núna. Nú er það í okkar höndum að
sýna og sanna að þau séu annað og meira en orðin tóm - þau
séu grunnur að betra samfélagi fyrir Island og íslendinga."
Jóhanna Sigurðardóttir á 10. ára afmæli Samfylkingarinnar
Blæðandi sár stjórnmálaflokks
Bjartsýni ríkti í herbúðum jafnaðarmanna
í aðdraganda kosninga 1999. Langþráður
draumur um sameinaðan flokk vinstri manna
undir merkjum Samfylkingar var innan seil-
ingar. Markmiðið var ekki aðeins að sameina
vinstri menn eftir áratuga sundrungu, heldur
ekki síður að velta Sjálfstæðisflokknum úr
sessi sem stærsti flokkur landsins.
Skoðanakannanirstyrktu vinstri menn í
trúnni og ýttu undir væntingar um að nýr
„turn" væri að verða til í íslenskum stjórn-
málum. f mars 1999 - tveimur mánuðum
fyrir kosningar, sýndi könnun Gallup að fylgi
Samfylkingarinnar væri 36%. Tvennt skyggði
á gleðina; sterk staða Sjálfstæðisflokksins
og framboð hluta Alþýðubandalagsins, sem
ekki vildi ganga til liðs við Samfylkinguna.
Þannig var Ijóst að sameinaðir yrðu vinstri
menn ekki. Vinstri hreyfingin græntframboð
[VG] var til undir forystu Steingríms J. Sigfús-
sonar, en Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins, varð talsmaður Sam-
fylkingarinnar í kosningunum. Formlegur
stofnfundur var ekki haldinn fyrr en ári síðar
- 5. maí 2000.
í kosningunum 1995 voru vinstri menn
undir merkjum fjögurra flokka sem fengu alls
37,8% atkvæða og 23 þingmenn:
Alþýðuflokkur 11,4% 7 þingmenn
Alþýðubandalag 14,3% 9þingmenn
Samtök um kvennalista 4,9% 3 þingmenn
Þjóðvaki 7,2% 4 þingmenn
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 13