Þjóðmál - 01.12.2016, Side 55
Fá fyrirtæki höfðu fjárhagslegt bolmagn til
að taka þátt í uppboðunum enda um ræða
fjármagnsfrekar og tæknivæddar veiðar.
Rétt er að hafa í huga að um var að ræða
uppboð í þremur tegundum deilistofna sem
ósamið er um og gerir fjöldi þjóða tilkall til
þeirra. Botnfiskur í Barentshafi er einnig á
alþjóðlegu hafsvæði. Fiskistofnar sem ein-
skorðast við heimamið í Færeyjum voru ekki
á uppboði. Eistland og Rússland hafa einnig
gert tilraunir með uppboð. Þær þjóðir hurfu
frá þeirri leið.
Við veiðar á heimamiðum í Færeyjum er
verulega mikil þörf á að nútímavæða og
endurnýja skipaflotann. Fyrir liggur að ekkert
nýtt skip hefur bæst við skipaflotann síðan
nýtingarréttindi voru afturkölluð sökum
óvissu um framtíðarskipan sjávarútvegsmála
þar í landi. Árið 2014 reiknaði hagfræði-
stofnun í Færeyjum út auðlindarentu í
færeyskum fiskveiðum. Eingöngu var tekið
mið af veiðum við útreikninga á auðlinda-
rentu, þar sem virðisauki í vinnslu tilheyrir
ekki auðlindanýtingu. Niðurstaðan var sú
að 80% af auðlindarentunni skapaðist við
uppsjávarveiðar og hin 20% við veiðar á
bolfiski í Barentshafi. Engin auðlindarenta
skapaðist við veiðar á bolfiski á heimamiðum.
Færeyingar eru því með takmarkaða
gjaldtöku sem aðeins snýr að uppsjávar-
tegundum. Færeyingar hófu sérstaka
gjaldtöku af afla sem landað er erlendis árið
2011. Árið 2013 var í fyrsta skipti sett veiði-
gjald á makríl.
Veiðigjald á allar tegundir
Á íslandi er veiðigjald lagt á allar fisktegundir,
en í Færeyjum er hins vegar aðeins innheimt
Árið 2015 veiddu Færeyingar alls sjö
þúsund tonn af þorski á heimamiðum.
Afli íslands á heimamiðum á sama
tíma var alls 228 þúsund tonn.
veiðigjald af þremur tegundum, þ.e. makríl,
kolmunna og norsk-íslenskri síld. Veiðigjald
af þeim tegundum er hærra en á íslandi. Þó
er mikilvægt að horfa til þess að sjómenn
borga hluta af veiðigjaldi í Færeyjum, ólíkt
því sem að gerist á íslandi. Engin sérstök
gjaldtaka er lögð á hefðbundna fiskistofna
á heimamiðum Færeyinga, eins og þorsk og
ýsu. Áætluð veiðigjöld á íslandi fyrir árið 2016
eru 8 milljarðar íslenskrar króna, í Færeyjum
eru áætluð veiðigjöld fyrir árið 2016 hins
vegar 2,7 milljarðar íslenskra króna.
Óbein gjaldtaka
Mikilvægt er að hafa í huga að hér á landi er
einnig óbein gjaldtaka í sjávarútvegi þar sem
íslenska ríkið hefur til ráðstöfunar 5,3% af
úthlutum aflaheimildum.
Aðeins þrjú fyrirtæki í sjávarútvegi hafa
meiri aflaheimildir til ráðstöfunarfyrir
fiskveiðiárið 16/17 en íslenska ríkið hefur.
Áætluð tonn sem íslenska ríkið hefur til
ráðstöfunar fyrir fiskveiðiárið 16/17 eru
tæplega 53 þúsund tonn, en til samanburðar
buðu Færeyingar út samtals 36 þúsund
tonn í sumar. íslenska ríkið ráðstafar þessum
aflaheimildum til strandveiði, línuívilnunar,
byggðakvóta og annarra aðgerða. Áætluð
aflaverðmæti þessara 53 þúsund tonna eru
um 7,5 milljarðar íslenskra króna.
Aflamark vs. sóknarmark
Aflamarkskerfi í skýrslunni leggur meirihluti
nefndarmanna (8 af 9) til að horfið verði frá
gildandi sóknarmarkskerfi (dagakerfi) og
tekið verði upp aflahlutdeildarkerfi (kvóta-
kerfi). Ástand stofna á heimamiðum í
Færeyjum er bágborið og því telur nefndin
þörf á að endurskoða fiskveiðistjórnunina.
Það er mat nefndarinnar að of mikil sókn
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 53