Þjóðmál - 01.12.2016, Page 68

Þjóðmál - 01.12.2016, Page 68
Mat á virði stöðguleikaeigna sem gert var við framsal þeirra í janúar 2016, og byggði að mestu leyti á bókfærðu virði eignanna hjá slitabúunum sjálfum, nam alls 384,3 milljörðum króna. Þar af var laust fé metið á 17,2 milljarða króna, framseldar eignir á 60,4 milljarða, skilyrtar Ijársópseignir á 18,4 milljarða og framlög vegna viðskipta- banka á 288,3 milljarða. Lítum aðeins á grundvöllinn að þessum framlögum. Öll slitabú fallinna fjármálafyrirtækja fengu nauðasamning samþykktan af kröfuhöfum fyrir árslok 2015. Ella hefðu þau orðið að greiða stöðugleika- skatt. Að uppfylltum stöðugleikaskilyrðum í tengslum við gerð nauðasamnings fengu slitabúin undanþágu frá fjármagnshöftum, líkt og þau hefðu fengið við greiðslu stöðug- leikaskatts. Slitabú þriggja stærstu viðskipta- bankanna hafa nú þegar uppfyllt þessi skilyrði og fengið undanþágu. Stöðugleika- skilyrðin eru m.a. uppfyllt með afhendingu stöðugleikaframlaga í ríkissjóð sem vará þeim tíma talin vera lægri fjárhæð en sem nemur áætluðum stöðugleikaskatti, enda er með þeim dregið úr áhættu tengdri slitum búanna með öðrum og skilvirkari hætti en greiðsla skattsins hefði gert. Fjárhæð stöðug- leikaframlags endurspeglar þá áhættu sem stafar af ráðstöfun innlendra eigna búanna en mun breytast í samræmi við breytingar á virði eignanna. Þannig er dregið verulega úr hættu á því að hærra verðmat eigna við sölu en gert er ráð fyrir nú muni valda óstöðug- leika. Þessi nálgun gerði meðal annars að verkum að ríkissjóður naut hækkunar á verð- mati Lyfju en ekki kröfuhafar. Því kann svo að vera að stöðugleikaskilyrðin skili ríkissjóði svipuðum upphæðum og stöðugleikaskattur þegar upp er staðið. Nauðasamningar tveggja af þremur stærstu þrotabúunum gera ráð fyrir að búin styrki fjármögnun viðskiptabanka, sem eru í þeirra eigu, með því að breyta gjaldeyrisinn- lánum búanna í fjármögnun til meðallangs tíma og að lánafyrirgreiðsla stjórnvalda til sömu banka verði endurfjármögnuð. Þá falla slitabúin frá frekari kröfum og málssóknum á hendur ríkinu og felur uppfylling stöðug- leikaskilyrða þannig í sér endanleika sem ekki hefði verið tryggður með greiðslu stöðugleikaskatts. Leið nauðasamninga á grundvelli undanþágu að uppfylltum stöðugleikaskilyrðum er því metin skilvirkari og áhættuminni en leið stöðugleikaskatts að sömu markmiðum og flýtir fyrir að hægt verði að hrinda í framkvæmd næstu skrefum áætlunar um losun fjármagnshafta. En lítum á virði stöðugleikaeigna. Virði stöðugleikaeigna í skýrslu fjármálaráðuneytisins 15. ágúst 2016 voru stöðugleikaeignir sem Seðla- banki íslands veitti viðtöku á grundvelli almennra stöðugleikaskilyrða flokkaðar með eftirfarandi hætti: • laustfé • framseldareignir • skilyrtar fjársópseignir • framlög vegna viðskiptabanka (þ.á.m. eignarhlutir). Mat á virði stöðguleikaeigna sem gert var við framsal þeirra í janúar 2016, og byggði að mestu leyti á bókfærðu virði eignanna hjá slitabúunum sjálfum, nam alls 384,3 milljörðum króna. Þar af var laust fé metið á 17,2 milljarða króna, framseldar eignir á 60,4 milljarða, skilyrtar fjársópseignir á 18,4 milljarða og framlög vegna viðskiptabanka á 288,3 milljarða. Þegar áætlun ríkisstjórnarinnar um haftaafnámið var kynnt í júní 2015 sagði Lee C. Buchheit, ráðgjafi framkvæmdahóps um losun hafta, í samtali við Kjarnann: „Ef áætlunin gengur upp munu um 650 milljarðar króna renna til ríkissjóðs. Ég veit ekki nákvæmlega hver endanlega talan verður. Það fer eftir því á hvað nýju bankarnir munu seljast, á hvað kröfurnar gegn innlendu aðilunum skila og svo fram- vegis. En mérfinnst þetta líkleg tala. Þessi 66 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.