Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Hann væri örugglega
sprellilifandi ef þetta
hefði aldrei gerst.
Karl Örvarsson
www.DORMA.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
30%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
Opið
sunnudaga
13-17 á
Smáratorgi
CANNES
hægindastóll
Hægindastóll og skammel. Saddle, grár, eða
rauður í PVC áklæði. Fullt verð: 199.990 kr.
Nú: 139.993 kr.
MIAMI lyftistóll
Stillanlegur hægindastóll með tveimur
öflugum mótorum. Leður á slitflötum.
Svartur, grár eða brúnn.
Fullt verð: 259.900 kr.
Nú: 194.925 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
toti@frettabladid.is
„Þetta var vika Strákanna okkar.
Það er snilld að skipuleggja fjölþjóð
legt stórmót í janúar, þegar timbur
menn hátíðarhalda standa sem
hæst með tilheyrandi aukakílóum
og blankheitum. Strákarnir okkar
hafa komið, séð og sigrað og fengið
þyngsta fólk til að hoppa upp úr
sófunum í æsingi,“ segir Helga Vala
Helgadóttir, þingman Samfylkingar
innar.
„Reyndar vorum við nokkur að
velta fyrir okkur hvort það væri
ekki örugglega brot á einhverjum
alþjóðasamningum að láta sömu
þjóð lenda í Covid smiti hvort
tveggja í Eurovision og Evrópumóti,
en ég hef ekki enn fundið þann
lagabálk. En þeir hafa staðið sig frá
bærlega og ég hlakka til að horfa á
leikinn í kvöld gegn Frökkum. Við
stöndum með ykkur – alla leið.
Þetta var líka vikan þar sem ráð
herrar ríkisstjórnar og þingmenn
stjórnarf lokkanna töluðu út og
Smit á stórmótum ættu að vera bönnuð
Þetta er vikan okkar,
áfram Ísland – áfram við
öll!
n Frétt vikunnar
Helga Vala Helgadóttir
suður, f lugu út og suður, tókust á í
fjölmiðlum og skildu heilbrigðisráð
herrann eftir með Svarta Pétur enn
einn ganginn.
Þá var þetta enn ein vikan þegar
íbúar á norðanverðum Vestfjörðum
sátu fastir og komust hvergi vegna
snjóflóða í Súðavíkurhlíð og Eyrar
hlíð sem lokaði þjóðveginum í báðar
áttir. Við stöndum með ykkur.
Síðast en ekki síst er þetta vikan
okkar, áfram Ísland – áfram við
öll!“ n
Helga Vala Helgadóttir, þingman
Samfylkingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Karl Örvarsson steig á sínum
tíma ásamt Stuðkompaníinu
á svið með tónlistargoð
sögninni Meat Loaf, sem
var 74 ára þegar hann lést í
fyrradag. Karl telur víst að
Kjöthleifurinn hafi aldrei
jafnað sig alveg á að hafa lent
í kompaníinu að norðan.
odduraevar@frettabladid.is
„Ætli hann hafi nokkurn tímann
jafnað sig á því að hafa spilað með
okkur?“ spyr Karl Örvarsson, söngv
ari Stuðkompanísins frá Akureyri,
sem steig á svið með söngvaranum
heimsfræga í Reiðhöllinni 1987.
Meat Loaf lést í fyrradag, 74 ára að
aldri, en óhætt er að segja að þar
hafi fallið einn sá stærsti í tónlistar
sögu Bandaríkjanna.
Stuðkompaníið átti á sínum tíma
að hita upp fyrir Meat Loaf þegar
hann hélt tónleika sína á Íslandi,
en þegar þeir voru mættir suður
kom babb í bátinn. „Við búum
fjórir norður á Akureyri og þegar
við mætum þá er okkur tilkynnt að
það gefist ekki tími fyrir upphitun.
Þeir náttúrulega koma frá vestur
strönd Ameríku, en við kvörtuðum
yfir því að við værum nú komnir
alla leið frá Akureyri til þess að taka
þátt í þessu og að það kæmi bara
ekki til greina að svona yrði farið
með okkur,“ segir Karl hlæjandi.
Stífar samningaviðræður
Þetta kvöld hljóp Björn Þorláks
son, umboðsmaður sveitarinnar,
í skarðið fyrir Atla Örvarsson,
bróður Karls, sem alla jafna lék á
hljómborðið. „Hann fór þarna með
himinskautum og tók ekki í mál að
svona yrði farið með stórpopparana
að norðan sem hefðu komið alla
þessa leið,“ segir Karl.
Karl segir þá félaga síðan hafa farið
í stífar samningaviðræður við goð
sögnina. „Við hann Meat litla. Hann
væri örugglega sprelllifandi ef þetta
hefði aldrei gerst. Þetta hefur örugg
lega tekið mikið á hann,“ segir Karl
í gríni.
Umboðsmaður Meat Loaf tjáði
Stuðkompaníinu að ómögulegt væri
að bæta þeim þetta upp. „Þetta fór nú
svo á endanum þannig að þeir báru
fyrir sig að það væri enginn tími í
sárabót fyrir okkur. Okkur var samt
tjáð að við gætum fengið snjósleða
bardaga þarna og svo gætum við
fengið að taka lagið Johnny B
Goode,“ heldur Karl áfram og hlær.
Hann segir þá félaga ekki hafa
verið sérstaklega spennta í fyrstu,
en svo ákveðið að slá til. „Þetta var
stórkostlegt. Algjörlega stórkost
legt. Gaurarnir með blásna hárið
frá Akureyri vappandi um sviðið
einhverjir tveir, þrír, fjórir, á meðan
Meat byrjaði Johnny B Goode,“
segir Karl í stuði yfir gömlum minn
ingum.
Of stór biti
Hann segir að einhver skortur hafi
verið á míkrófónum til að byrja
með. „Þannig að við vorum bara
orðnir svona hálfgerðir dansarar
hjá honum. Á endanum náðum við
nú einhvers staðar í míkrófón sem
átti að vera í sambandi og ég svona
sem fronturinn fæ einn míkrafón
og byrja og tek alveg ægileeeeegt
Johhny B Goode með honum Meat,
í gríðarlegri stemningu.
Þarna vorum við bara Meat Loaf
og Stuðkompaníið. Þetta var alveg
sprenghlægilegt. Ég er ekki viss um
að Meat Loaf hafi haft nokkuð út úr
þessu en okkur fannst þetta alveg
frábært. Svo bara hætti Stuðkomp
aníið ekkert löngu síðar. Ég held
þetta hafi orðið hálfgerður banabiti
hljómsveitarinnar,“ segir Karl, enn
hlæjandi. n
Hæpið að Meat Loaf hafi
jafnað sig á Stuðkompaníinu
Meat Loaf, öllu nettari en hann var á hátindi frægðarinnar, tekur á því á sviði, með köntrýboltanum John Rich í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
48 Lífið 22. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ