Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 51
SveitarfélagiðÁrborg er að leita eftir öflugum einstaklingum sem vilja ganga til liðs við skemmtilegan vinnustað sem sinnir fjöl-
breyttum verkefnum í þágu samfélagsins. Árborg er ört vaxandi samfélag með um 11 þúsund íbúa. Hjá sveitarfélaginu vinnur
breiður hópur fólks í sameiningu að því að veita íbúum og öðrum þjónustuþegum sem besta þjónustu. Starfsfólk sveitarfélagsins
eru um 1000 manns á rúmlega 30 vinnustöðum.
Fjármálasérfræðingur á fjölskyldusviði
Fjölskyldusvið Árborgar auglýsir starf fjármálasérfræðings laust til umsóknar. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi
í fjármála- og rekstrarþjónustu vegna skólamála-, félagsþjónustu og frístundamála. Næsti yfirmaður fjármálasérfræðings er sviðs-
stjóri fjölskyldusviðs og helstu verkefni tengjast fjármálaþjónustu við stjórnendur fagsviðsins, greiningu lykiltalna, fjármálagrein-
ingar, eftirlit og áætlanagerð að höfðu samráði við stjórnendur. Fjármálasérfræðingur þarf að sýna ábyrgð, frumkvæði og metnað til
að ná bætingu í rekstrarárangri fagsviðsins. Leitast er við að efla faglega umgjörð og þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og stofnanir
fjölskyldusviðs. Um er að ræða 100% starf og ráðið verður í stöðuna frá 1. mars 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með fjárhagslegri umsýslu sviðsins eftir því sem sviðsstjóri felur viðkomandi
• Upplýsingagjöf, eftirlit og ráðgjöf við stjórnendur fagsviðsins • Vinna að þróun reiknilíkana og umsjón með þeim
• Gerð fjárhagsáætlana og skoðun reikninga
• Mánaðarleg uppgjör og frávikagreiningar
• Rýni í kjarasamninga, lög og reglugerðir sem hafa áhrif á rekstur og fjölda stöðugilda
• Aðstoð við umsóknir í Jöfnunarsjóð og eftirlit í samstarfi við fjármálasvið
• Greiningarvinna og úrvinnsla tölulegra upplýsinga
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólagráða í viðskiptafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Meistarapróf er kostur
• Reynsla af vinnu við uppgjör og áætlanagerð æskileg
• Reynsla af greiningu lykiltalna æskileg
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
• Þekking á rekstri skóla og félagþjónustu er kostur
• Góð íslenskukunnátta ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð
• Lipurð í samskiptum
Innkaupastjóri
Sveitarfélagið Árborg auglýsir starf innkaupastjóra laust til umsóknar. Um nýtt starf er að ræða sem heyrir undir fjármálasvið
sveitarfélagsins. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga og drifkraft til að móta þessa nýju stöðu ásamt
því að endurskoða innkaupaferla og vinna að hagræðingu í innkaupum þvert á alla vinnustaði Árborgar. Þekking og reynsla af
innkaupum, útboðum og vörustjórnun er mikilvæg í starfi innkaupastjóra ásamt góðri hæfni í mannlegum samskiptum. Um 100%
starf að ræða. Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Yfirumsjón með innkaupum sveitarfélagsins
• Framþróun á skilvirkum innkaupum, mótun innkaupaferla og innleiðing þeirra
• Innkaupasamningar og útboð
• Skýrslugerð og greiningar
• Upplýsingagjöf og ráðgjöf til stjórnenda
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólamenntun eða mikil starfsreynsla sem nýtist í starfi.
• Þekking og reynsla á innkaupum, útboðum og vörustjórnun
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
• Þekking og reynsla af Navision er kostur
• Gerð er krafa um nákvæm og öguð vinnubrögð og afburða talnaskilning
• Sjálfstæði, frumkvæði og þjónustulund
• Framúrskarandi samskiptafærni
• Framúrskarandi málskilningur
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar
Vakin er athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Laun fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur vegna starfs innkaupastjóra er til og með 30. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Garðarsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs, inga@arborg.is, sími 480-1900
Umsóknarfrestur vegna starfs fjármálasérfræðings er til og með 2. febrúar.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is eða í síma 480-1900.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi
uppfyllir hæfniskröfur starfsins. Eingöngu er hægt að sækja um störfin á ráðningarvef sveitarfélagsins, starf.arborg.is og
umsóknir gilda í sex mánuði.
Byggingafélag námsmanna
auglýsir eftir málara í
viðhaldsteymi félagsins.
Málari/umsjónarmaður fasteigna
Helstu verkefni :
• Málun íbúða félagsins, bæði heilmálun og viðgerðir
• Eftirlit með íbúðum og fasteignum
• Samskipti við leigutaka og úttektir íbúða við skil
• Þrif og frágangur íbúða til afhendingar fyrir nýja
leigjendur.
Kröfur :
• Menntun og reynsla á sviði húsamálunar
• Jákvætt hugarfar og góðir samskiptahæfileikar
• Rík þjónustulund
• Haldgóð íslenskukunnátta
• Hreint sakavottorð
• Ökuréttindi
Umsóknarfrestur er til 23. janúar og skal öllum umsókn-
um skilað með rafrænum hætti í tölvupósti á netfangið
bodvar@bn.is. Tilgreina skal helstu persónuupplýsingar
ásamt ferilskrá og menntun. Öllum umsóknum verður
svarað. Störfin henta bæði konum og körlum og eru bæði
kyn hvött til að sækja um.
Byggingafélag námsmanna á og leigir út til námsmanna um
600 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Félagið er með um 100
íbúðir í byggingu og áformar að byggja um 150 íbúðir til
viðbótar á næstu 5 árum.
Ennfremur sér félagið um rekstur stúdentagarða Háskólans
í Reykjavík þar sem eru yfir 250 íbúðir.
Erum við
að leita
að þér?
ATVINNUBLAÐIÐ 17LAUGARDAGUR 22. janúar 2022