Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 72
Það má ekki byggja upp of miklar væntingar því aðstæð- ur eru svo daprar. Bjarney Það vilja auðvitað flestir búa heima hjá sér, en í þeirra tilfelli geta þau það ekki og líklega geta þau það aldrei. Stella Með stuðningi 66°Norður og utanríkisráðuneytisins, munu flóttakonur í Tyrk- landi læra að endurnýta efni og fá þjálfun í fatafram- leiðslu. Verkefnið er hugsað til langs tíma, svo að konur fái tækifæri til að byggja sér og börnum sínum gott líf. UN Women á Íslandi og 66°Norður, með stuðningi frá utan- r í k i s r á ð u n e y t i n u , skrifuðu undir sam- komulag í desember um að styðja við atvinnusköpun fyrir konur á f lótta í Tyrklandi, sem koma frá Sýrlandi, Afganistan og Írak. Þær munu fá þjálfun í fataframleiðslu, með það markmið að leiðarljósi að þær öðlist fjárhagslegt sjálfstæði og þekkingu sem nýtist þeim jafnvel áfram í önnur verkefni, í að byggja upp samfélag og skapa verðmæti. Þær munu læra að endurnýta efni og styrkja með því hringrásarhag- kerfi innan SADA-miðstöðvarinnar, sem hýsir þær. SADA-miðstöðin er staðsett í borginni Gaziantep í Tyrk- landi, en um hálf milljón flóttafólks býr í Tyrklandi. SADA-miðstöðin er athvarf fyrir flóttakonur, en þar geta þær sótt sér ýmsa þjónustu eins og daggæslu og fræðslu. Gaziantep er einungis 100 kílómetra norður af landamærum Sýrlands, en stór hluti f lóttafólks kemur þangað frá Aleppo í Sýrlandi. Konur fái rödd og hlutverk Stella Samúelsdóttir, framkvæmda- stýra UN Women á Íslandi, og Bjarney Harðardóttir, einn eig- enda 66°Norður, segja að fyrsta frækorninu að þessu verkefni hafi verið sáð fyrir þremur árum, en nú fyrst sé verkefnið að fá á sig mynd. Þær eru þó á sama tíma mjög skýrar með það að þeirra markmið sé ekki að koma einhverju upp sem fyrst, heldur að það sé hægt að koma af stað verkefni, fyrir konur á flótta, til lengri tíma. Að verkefnið sé unnið á forsendum þessara kvenna og að þær fái rödd og hlutverk í því sem fyrst. „Við höfum verið að vinna í okkar samfélagslegu ábyrgð, okkar hringrás, og þó svo að okkar sam- félagslega ábyrgð sé að mestu hér á Íslandi, fannst okkur mikilvægt að við gætum látið gott af okkur leiða, og þá sérstaklega til kvenna,“ segir Bjarney og að aðkoma 66°Norður felist í því að koma með efni, þekk- ingu, færni og hugvit til þessara kvenna. „Það sem er svo mikilvægt við þetta verkefni er að það verði ekki einskiptis, eða einn styrkur. Okkar markmið er að þetta verði eitthvað sem þessar konur geta tekið áfram og notað til að byggja sér einhvern grunn. Tekjugrunn, framfærslu og öryggi fyrir börnin sín. Allt sem þær hafa ekki núna í Tyrklandi,“ segir Bjarney. Manneskja á staðnum nauðsyn Hún segir verkefnið snúast að stærstum hluta um fólk og að einn mikilvægasti þátturinn í því að koma þessu á laggirnar, sé Íris Björg Kristjánsdóttir sem starfar fyrir UN Women í Tyrklandi og hefur búið þar í um fimm ár. „Íris hefur starfað í þessu verkefni um árabil,“ segir Stella, en í vikunni fengu UN Women og 66°Norður kynningu frá Írisi á verkefninu, stöðunni í Tyrklandi og leiðbein- ingar um hvernig best sé að standa að slíku verkefni þar í landi, svo það gangi upp til lengri tíma. „Það er svo mikilvægt að hafa skilning á umhverfinu sem við erum að stíga inn í. Við heyrðum frá Írisi hversu viðkvæmt umhverfið er og hversu varlega við þurfum að stíga til jarðar. Það má ekki byggja upp of miklar væntingar því aðstæður eru svo daprar. Það eru allir sam- mála um að þetta sé til lengri tíma og það er mikilvægt að hafa mann- eskju þarna á staðnum sem þekkir alla innviði og gefur verkefninu trú- verðugleika,“ segir Bjarney. Hún segir að innlegg Írisar hafi hjálpað þeim vel að skilja að mark- miðin séu til langs tíma og að það sé mikilvægt að hafa þrek og vilja í það. Hún segir að enn sé ekki búið að ákveða hversu margar konur fái þjálfun, en að þær vilji stilla vænt- ingum í hóf, byrja rólega og eiga meira inni síðar. „Við þurfum að skoða hvort þetta verði bara sýrlenskar konur, eða hvort það verði líka tyrkneskar konur. Svo eigum við eftir að eiga samtal við alla hagsmunaaðila, en það getur verið að við byrjum ekki nema á 10 til 20 konum,“ segir Bjarn- ey. Konur fá ekki sömu tækifæri Fjórar milljónir f lóttamanna eru skrásettar í Tyrklandi, og af þeim eru líklega hálf milljón kvenna frá Afganistan, Sýrlandi og Írak. Þessar konur, og almennt konur á f lótta, verða oft út undan og tekur Bjarn- ey sem dæmi að af heildarfjölda útgefinna atvinnuleyfa í Tyrklandi, séu aðeins þrjú prósent til kvenna. „Þær standa höllum fæti og eiga sér oft ekki talsmann eða tækifæri til að láta rödd sína heyrast.“ Fyrsta varan sem fer í framleiðslu í Tyrklandi heitir Faðmurinn og er taska. 66°Norður sér um að senda efni út til Tyrklands sem konurnar vinna og svo er varan send aftur hingað til Íslands þar sem hún verð- ur seld, bæði í verslunum 66°Norður og í gegnum UN Women. Líklega á næsta ári, og mun allur ágóði verk- efnisins renna til þessara kvenna og til verkefnisins í gegnum UN Women. Mikið í húfi Bjarney segir að um mikið frum- kvöðlastarf sé að ræða þar sem fyrirtæki, UN Women og utanrík- isráðuneytið skuldbinda sig til að vinna að þessu saman, en verkefnið er unnið eftir Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og fékk styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnu- lífsins um þróunarsamvinnu. „Við vonumst til þess að eftir þrjú ár verði þetta einhvers konar for- dæmi fyrir önnur lönd og fyrirtæki til að taka upp. Það er mikið í húfi og mikil ábyrgð í þessu verkefni, að sýna fram á að þetta sé hægt,“ segir Bjarney. Stella segist sammála því og að þau bindi sterkar vonir við að sam- starfið við 66°Norður sé aðeins það fyrsta. „En þess vegna viljum við tryggja að þetta sé vel gert og að það séu allir á sömu blaðsíðu. Það er þriggja ára verkefnaskilgreining, þar sem við förum nánar út í það hvernig þetta verður gert, án þess að við sköpum óraunhæfar væntingar. Okkar hlut- verk er að styðja við þetta starf og þá meira út frá þróunar- og jafn- réttismálum og þekkingu á þörfum f lóttakvenna, auk þess sem við höfum víðtæka og mikla þekkingu á því hvernig er að koma svona vöru á markað,“ segir Stella. Ekki hrædd um orðsporið Slíku verkefni fylgir ávallt einhver áhætta, bæði getur umræða um flóttafólk oft verið erfið og á tíðum hatursfull, auk þess sem verkefni af þessum toga eiga það til að verða að engu, eða skila ekki því sem lofað var. Spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að ef illa fer geti það skaðað fyrirtækið eða ímynd þess, svarar Bjarney því neitandi. „Þetta snýst miklu meira um ábyrgð sem ég finn sem mann- eskja, og hvernig ég hef ákveðin tól sem geti látið þetta gerast. Það sem hræðir mig er að það verði ekkert úr þessu. Áhrif verkefnisins á orðspor okkar veldur mér ekki áhyggjum, því við munum alltaf gera þetta af heilindum. Mér finnst bara ábyrgð- in svo mikil að hjálpa, að fá þennan sprota. Okkur er treyst, utanríkis- ráðuneytið gerir það og mér finnst mikilvægt að við látum það gerast,“ segir Bjarney. Stella segir mikilvægt í því sam- hengi að það sé heildstæð sýn og áhersla á að verkefnið haldi áfram um langa tíð. „Þetta er fólk með mikla þekk- ingu en við komum inn til að auka færni þess, samkeppnishæfni og getu til að koma sínum vörum eða þekkingu inn á markað. Það getur leitt til þess að önnur fyrirtæki eða hönnuðir leiti til þeirra, hérlendis eða í Tyrklandi.“ Stella segir þetta gott innlegg í umræðu um sérstaka stöðu flótta- kvenna í heiminum og bendir á að sjaldan sé tekið tillit til þeirra og þeirra sérstöku aðstæðna. Margar séu einar en sumar jafnvel með börn og viti ekkert hvar eiginmenn eða barnsfeður þeirra eru, lifandi eða látnir. „Með þessu fá þær tækifæri til að mennta sig, fæða sig og klæða og við getum líka lært af þessu á Íslandi, um hvernig er hægt að gefa fólki tækifæri. Því það vilja allir fá tækifæri. Það vilja auðvitað flestir búa heima hjá sér, en í þeirra tilfelli geta þau það ekki og líklega geta þau það aldrei. Ég hef mikla trú á þessu verkefni og hlakka til að sjá hvað við getum gert saman og hvaða tæki- færi þetta opnar fyrir aukna þátt- töku fyrirtækja í mannúðarstarfi,“ segir Stella að lokum. n Myndin er tekin við SADA-mið- stöðina þar sem verkefnið mun eiga sitt heimili. MYND/UN WOMEN Á myndinni með Stellu og Bjarneyju er Íris Björk Kristjánsdóttir sem starfar hjá UN Women í Tyrklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður, og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Flóttakonur í Tyrklandi sauma fyrir 66°Norður Lovísa Arnardóttir lovisaa @frettabladid.is 28 Helgin 22. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.