Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 54
Starf hjá KGRP í Fossvogi
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) óska eftir að ráða starfsmann í fullt
starf sem skiptist á milli bálstofu og athafnarýma í Fossvogi.
Leitað er að einstaklingi sem hefur mikla þjónustulund og er fæddur fyrir 1995.
Menntun eða reynsla af vélum eða vélavinnu er æskileg.
Umsókn skal senda til: thrag@kirkjugardar.is fyrir 1. febrúar nk. ásamt
starfsferilslýsingu og nöfnum tveggja meðmælenda.
Ráðið er í starfið frá 1. mars nk. eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir forstjóri í síma 585 2700 eða
thrag@kirkjugardar.is
kopavogur.is
Kópavogsbær hefur innleitt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við UNICEF og er annað
tveggja sveitarfélaga á Íslandi sem hefur fengið viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag. Barnvæn
sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og ungmenna.
Frístundadeild menntasviðs leitar nú að drífandi og kraftmiklum starfskrafti til að halda áfram að þróa
og móta ný verkefni í samvinnu við yfirmenn málaflokksins í þjónustu við börn og ungmenni, til að
styðja enn frekar við stefnu og markmið bæjarins í málefnum barna og ungmenna.
Helstu verkefni:
· Umsjón með stuðningi og framkvæmd aðgerðaráætlunar um skipulagðar forvarnir meðal barna
og ungmenna í samvinnu við stjórnendur.
· Umsjón með gerð verkferla og leiðbeininga sem styður starfsfólk í skóla- og frístundastarfi.
· Umsjón með málefnum nemenda með annað móðurmál en íslensku.
· Umsjón með tölfræðiupplýsingum og úrvinnslu gagna.
· Stuðla að nýbreytni og framþróun í málaflokknum í samráði við deildarstjóra.
· Umsjón með skipulagningu sumarstarfsemi frístundadeildar í samvinnu við deildarstjóra.
· Sinnir öðrum verkefnum sem yfirmaður felur verkefnastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Háskólamenntun á sviði menntavísinda, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
· Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.
· Reynsla af verkefnastjórnun.
· Reynsla af störfum með börnum og ungmennum.
· Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti.
· Reynsla af framsetningu upplýsinga og gagna.
· Reynsla og þekking á úrvinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna æskilegt.
· Góð tölvukunnátta.
· Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
· Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Góð íslenskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2022.
Allar nánari upplýsingar um starfið má finna á vef Kópavogsbæjar undir auglýst störf.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Verkefnastjóri
frístundadeildar óskast
á menntasvið Kópavogsbæjar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Reykjavíkurborg vinnur nú að opnun nýs ungbarnaleikskóla við
Bríetartún 11. Opnun leikskólans er hluti af verkefnaáætluninni
Brúum bilið sem miðar að því að fjölga leikskólaplássum og
brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Leikskólinn er
á jarðhæð nýs fjölbýlishúss með sérhannaðri og nútímalegri
aðstöðu fyrir börn og starfsfólk. Leikskólinn er fjögurra deilda
fyrir 60 börn á aldrinum 12 mánaða til 3 ára. Slíkur sérhæfður
leikskóli hefur ekki verið starfræktur á vegum borgarinnar frá
árinu 2011.
Við erum að leita að aðstoðarleikskólastjóra, deildarstjórum
og leikskólakennurum.
Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt frá byrjun í að þróa
og móta stefnu og umhverfi, sem hentar yngsta skólastiginu.
Skapa umhverfi sem hvetur barnið til uppgötvunar og leiks og
gerir það að virkum þátttakanda í lýðræðissamfélagi.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is/storf ,
og eru umsækjendur beðnir um að sækja um þar.
Nánari upplýsingar um störfin veitir:
Anna Ben. Blöndal í síma 773-4454 og tölvupósti
anna.blondal@rvkskolar.is
Ungbarnaleikskólinn við Bríetartún
óskar eftir leikskólakennurum.
Hofsstaðaskóli
• Íþrótta- og sundkennari
Sjálandsskóli
• Starfsmaður á frístundaheimili
Leikskólinn Bæjarból
• Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Mánahvoll
• Deildarstjóri
• Háskólamenntaðir starfsmenn
• Leiðbeinendur
• Leikskólakennarar
Urriðaholtsskóli - leikskólastig
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
Frístundaklúbburinn Garðahraun
• Stuðningsfulltrúar
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
20 ATVINNUBLAÐIÐ 22. janúar 2022 LAUGARDAGUR