Fréttablaðið - 22.01.2022, Síða 54

Fréttablaðið - 22.01.2022, Síða 54
Starf hjá KGRP í Fossvogi Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) óska eftir að ráða starfsmann í fullt starf sem skiptist á milli bálstofu og athafnarýma í Fossvogi. Leitað er að einstaklingi sem hefur mikla þjónustulund og er fæddur fyrir 1995. Menntun eða reynsla af vélum eða vélavinnu er æskileg. Umsókn skal senda til: thrag@kirkjugardar.is fyrir 1. febrúar nk. ásamt starfsferilslýsingu og nöfnum tveggja meðmælenda. Ráðið er í starfið frá 1. mars nk. eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir forstjóri í síma 585 2700 eða thrag@kirkjugardar.is kopavogur.is Kópavogsbær hefur innleitt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við UNICEF og er annað tveggja sveitarfélaga á Íslandi sem hefur fengið viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag. Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og ungmenna. Frístundadeild menntasviðs leitar nú að drífandi og kraftmiklum starfskrafti til að halda áfram að þróa og móta ný verkefni í samvinnu við yfirmenn málaflokksins í þjónustu við börn og ungmenni, til að styðja enn frekar við stefnu og markmið bæjarins í málefnum barna og ungmenna. Helstu verkefni: · Umsjón með stuðningi og framkvæmd aðgerðaráætlunar um skipulagðar forvarnir meðal barna og ungmenna í samvinnu við stjórnendur. · Umsjón með gerð verkferla og leiðbeininga sem styður starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. · Umsjón með málefnum nemenda með annað móðurmál en íslensku. · Umsjón með tölfræðiupplýsingum og úrvinnslu gagna. · Stuðla að nýbreytni og framþróun í málaflokknum í samráði við deildarstjóra. · Umsjón með skipulagningu sumarstarfsemi frístundadeildar í samvinnu við deildarstjóra. · Sinnir öðrum verkefnum sem yfirmaður felur verkefnastjóra. Menntunar- og hæfniskröfur: · Háskólamenntun á sviði menntavísinda, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. · Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg. · Reynsla af verkefnastjórnun. · Reynsla af störfum með börnum og ungmennum. · Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti. · Reynsla af framsetningu upplýsinga og gagna. · Reynsla og þekking á úrvinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna æskilegt. · Góð tölvukunnátta. · Góð hæfni í mannlegum samskiptum. · Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum. · Góð íslenskukunnátta. Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2022. Allar nánari upplýsingar um starfið má finna á vef Kópavogsbæjar undir auglýst störf. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is Verkefnastjóri frístundadeildar óskast á menntasvið Kópavogsbæjar Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Reykjavíkurborg vinnur nú að opnun nýs ungbarnaleikskóla við Bríetartún 11. Opnun leikskólans er hluti af verkefnaáætluninni Brúum bilið sem miðar að því að fjölga leikskólaplássum og brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Leikskólinn er á jarðhæð nýs fjölbýlishúss með sérhannaðri og nútímalegri aðstöðu fyrir börn og starfsfólk. Leikskólinn er fjögurra deilda fyrir 60 börn á aldrinum 12 mánaða til 3 ára. Slíkur sérhæfður leikskóli hefur ekki verið starfræktur á vegum borgarinnar frá árinu 2011. Við erum að leita að aðstoðarleikskólastjóra, deildarstjórum og leikskólakennurum. Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt frá byrjun í að þróa og móta stefnu og umhverfi, sem hentar yngsta skólastiginu. Skapa umhverfi sem hvetur barnið til uppgötvunar og leiks og gerir það að virkum þátttakanda í lýðræðissamfélagi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf , og eru umsækjendur beðnir um að sækja um þar. Nánari upplýsingar um störfin veitir: Anna Ben. Blöndal í síma 773-4454 og tölvupósti anna.blondal@rvkskolar.is Ungbarnaleikskólinn við Bríetartún óskar eftir leikskólakennurum. Hofsstaðaskóli • Íþrótta- og sundkennari Sjálandsskóli • Starfsmaður á frístundaheimili Leikskólinn Bæjarból • Aðstoðarleikskólastjóri Leikskólinn Mánahvoll • Deildarstjóri • Háskólamenntaðir starfsmenn • Leiðbeinendur • Leikskólakennarar Urriðaholtsskóli - leikskólastig • Leiðbeinandi • Leikskólakennari Frístundaklúbburinn Garðahraun • Stuðningsfulltrúar Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is gardabaer.is STÖRF HJÁ GARÐABÆ Þarftu að ráða starfsmann? Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. 20 ATVINNUBLAÐIÐ 22. janúar 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.