Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 27
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 22. janúar 2022
Gísli Halldór er ættaður frá Ísafirði og saknar stundum fjallanna. Hann hefur verið bæjarstjóri á Selfossi frá árinu 2018. MYND/ÓLAFUR RAFNAR ÓLAFSSON
Vaxandi bær í stöðugri sókn
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Árborg, kvaddi heimabæ sinn Ísafjörð til að taka
við bæjarstjórastarfi í Árborg 2018. Hann sér ekki eftir því enda hefur bærinn blómstrað í
stjórnartíð hans og íbúatalan margfaldast. Það eru margar áskoranir í starfinu. 2
jme@frettabladid
Breski listamaðurinn Tracey Emin
tilkynnti á Instagram-síðu sinni í
síðustu viku að hún hefði opin-
berlega beðið um að neonlistaverk
hennar More Passion, frá 2010,
skyldi fjarlægt úr Downingstræti
10, opinberum höfuðstöðvum og
heimili forsætisráðherra Bret-
lands, og hengt upp annars staðar.
Hneyksluð á teiti
Í tilkynningunni segir hún: „Meiri
ástríða er það síðasta sem þessi
ríkisstjórn þarf. Núverandi ástand
er skammarlegt.“ Beiðnin kemur í
kjölfar þess að nýlega uppgötvaðist
að Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, hélt stórt teiti í garði
Downingstrætis 10 í maí 2020
þegar faraldurinn var í algleymingi
og samkomubann var í gildi. Gestir
voru fleiri en 30 talsins og telja
margir að með veislunni hafi verið
brotin lög um samkomutakmark-
anir. Johnson hefur verið harðlega
gagnrýndur og baðst afsökunar á
uppátækinu, en segir þó að hann
hafi talið teitið vera vinnutengdan
viðburð frekar en teiti.
Emin segir í viðtali við Art
Newspaper að henni þyki þetta
óviðeigandi og óskiljanleg hræsni:
„Það er skammarlegt að ljúga að
fólki. Fólk hefur þjáðst of mikið
vegna Covid. Það hefur leitað ráða
hjá ríkisstjórninni, en það lítur út
fyrir að stjórnin hafi sagt okkur
að gera eitt, en sjálf ekki fylgt eigin
reglusetningu.“ ■
Vill fjarlægja list í
kjölfar hneykslis
Emin er hér fyrir framan eitt verka
sinna árið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is