Fréttablaðið - 22.01.2022, Blaðsíða 31
KYNN INGARBLAÐ
Kynningar: Kore, PósturinnLAUGARDAGUR 22. janúar 2022
Heimsendingar
KORE alla leið heim að dyrum
KORE stimplaði stökka blómkálsvængi með kóreskri gochujang-sósu og djúsí kóresk taco rækilega inn í hjörtu
íslensku þjóðarinnar, þegar þessi margrómaði skyndibitastaður opnaði dyr sínar í júni fyrir hartnær fimm árum.
Nú er hægt að fá KORE sent beint heim að dyrum en einnig er von á að fleiri staðir verði opnaðir á árinu. 2
Atli Snær til hægri, Ylfa Mjöll dóttir Atla, í miðið og svo Jón Þorberg Ottósson til vinstri, eru hér stödd á KORE á Kringlutorgi, tilbúin að taka á móti viðskiptavinum og heimsendingarpöntunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Veitingastaðurinn KORE var opn-
aður þann 1. júní 2018 í Granda
Mathöll og ári síðar, þann 1. maí,
á Kringlutorgi. Í júní í fyrra var
systurstaður KORE, Chikin, í
Ingólfsstræti, svo opnaður. „Þetta
hefur í raun verið algjört ævintýri
frá fyrsta degi sem enn sér ekki
fyrir endann á,“ segir Atli Snær,
sem er eigandi veitingastaðanna,
ásamt Jóni Þorberg Óttarssyni.
Innblástur í borg englanna
KORE býður upp á einstakan kost
í skyndibita- og veitingastaðaf-
lóru Reykjavíkur. „Sérstaða okkar
er sú að við vinnum með hráefni
sem hreinlega hafa ekki sést á
veitingastöðum hér heima. Við
erum í raun ekki harðkjarna kór-
eskur staður, heldur sækjum við
innblástur í kóreska matargerð.
Við vinnum mikið með kóresk
hráefni, en höfum hins vegar
alltaf sagt að það sé smá LA-tvist á
matnum okkar, en í borg englanna
er einmitt algengt að sjá kóreska
og mexíkanska matargerð renna
saman, líkt og gerist hjá okkur á
KORE. Síðast en ekki síst er allt
okkar hráefni unnið frá grunni,
eftir okkar eigin uppskriftum, sem
er töluvert frábrugðið mörgum
skyndibitastöðum hérna heima.
Annars reynum við bara almennt
að hafa gaman af því sem við erum
að gera og úr verður ljúffeng sam-
suða af metnaði, gleði og sköp-
unarkrafti.“
KORE fyrir alla
KORE er með gómsætan skyndi-
bita fyrir alla, hvort sem fólk vill
kjöt, grænmeti eða vegan mat.
„Það er okkur mjög mikilvægt
Núna erum við
með sérstakan
veganúar-afsláttar-
kóða sem veitir græn-
kerum afslátt af
heimsendum græn-
metisréttum.