Fréttablaðið - 22.01.2022, Qupperneq 72
Það má
ekki byggja
upp of
miklar
væntingar
því aðstæð-
ur eru svo
daprar.
Bjarney
Það vilja
auðvitað
flestir búa
heima hjá
sér, en í
þeirra
tilfelli geta
þau það
ekki og
líklega geta
þau það
aldrei.
Stella
Með stuðningi 66°Norður
og utanríkisráðuneytisins,
munu flóttakonur í Tyrk-
landi læra að endurnýta
efni og fá þjálfun í fatafram-
leiðslu. Verkefnið er hugsað
til langs tíma, svo að konur fái
tækifæri til að byggja sér og
börnum sínum gott líf.
UN Women á Íslandi
og 66°Norður, með
stuðningi frá utan-
r í k i s r á ð u n e y t i n u ,
skrifuðu undir sam-
komulag í desember um að styðja
við atvinnusköpun fyrir konur á
f lótta í Tyrklandi, sem koma frá
Sýrlandi, Afganistan og Írak. Þær
munu fá þjálfun í fataframleiðslu,
með það markmið að leiðarljósi að
þær öðlist fjárhagslegt sjálfstæði og
þekkingu sem nýtist þeim jafnvel
áfram í önnur verkefni, í að byggja
upp samfélag og skapa verðmæti.
Þær munu læra að endurnýta efni
og styrkja með því hringrásarhag-
kerfi innan SADA-miðstöðvarinnar,
sem hýsir þær. SADA-miðstöðin er
staðsett í borginni Gaziantep í Tyrk-
landi, en um hálf milljón flóttafólks
býr í Tyrklandi. SADA-miðstöðin er
athvarf fyrir flóttakonur, en þar geta
þær sótt sér ýmsa þjónustu eins og
daggæslu og fræðslu. Gaziantep
er einungis 100 kílómetra norður
af landamærum Sýrlands, en stór
hluti f lóttafólks kemur þangað frá
Aleppo í Sýrlandi.
Konur fái rödd og hlutverk
Stella Samúelsdóttir, framkvæmda-
stýra UN Women á Íslandi, og
Bjarney Harðardóttir, einn eig-
enda 66°Norður, segja að fyrsta
frækorninu að þessu verkefni hafi
verið sáð fyrir þremur árum, en nú
fyrst sé verkefnið að fá á sig mynd.
Þær eru þó á sama tíma mjög skýrar
með það að þeirra markmið sé ekki
að koma einhverju upp sem fyrst,
heldur að það sé hægt að koma af
stað verkefni, fyrir konur á flótta, til
lengri tíma. Að verkefnið sé unnið
á forsendum þessara kvenna og að
þær fái rödd og hlutverk í því sem
fyrst.
„Við höfum verið að vinna í
okkar samfélagslegu ábyrgð, okkar
hringrás, og þó svo að okkar sam-
félagslega ábyrgð sé að mestu hér á
Íslandi, fannst okkur mikilvægt að
við gætum látið gott af okkur leiða,
og þá sérstaklega til kvenna,“ segir
Bjarney og að aðkoma 66°Norður
felist í því að koma með efni, þekk-
ingu, færni og hugvit til þessara
kvenna.
„Það sem er svo mikilvægt við
þetta verkefni er að það verði ekki
einskiptis, eða einn styrkur. Okkar
markmið er að þetta verði eitthvað
sem þessar konur geta tekið áfram
og notað til að byggja sér einhvern
grunn. Tekjugrunn, framfærslu og
öryggi fyrir börnin sín. Allt sem þær
hafa ekki núna í Tyrklandi,“ segir
Bjarney.
Manneskja á staðnum nauðsyn
Hún segir verkefnið snúast að
stærstum hluta um fólk og að einn
mikilvægasti þátturinn í því að
koma þessu á laggirnar, sé Íris Björg
Kristjánsdóttir sem starfar fyrir UN
Women í Tyrklandi og hefur búið
þar í um fimm ár.
„Íris hefur starfað í þessu verkefni
um árabil,“ segir Stella, en í vikunni
fengu UN Women og 66°Norður
kynningu frá Írisi á verkefninu,
stöðunni í Tyrklandi og leiðbein-
ingar um hvernig best sé að standa
að slíku verkefni þar í landi, svo það
gangi upp til lengri tíma.
„Það er svo mikilvægt að hafa
skilning á umhverfinu sem við erum
að stíga inn í. Við heyrðum frá Írisi
hversu viðkvæmt umhverfið er og
hversu varlega við þurfum að stíga
til jarðar. Það má ekki byggja upp
of miklar væntingar því aðstæður
eru svo daprar. Það eru allir sam-
mála um að þetta sé til lengri tíma
og það er mikilvægt að hafa mann-
eskju þarna á staðnum sem þekkir
alla innviði og gefur verkefninu trú-
verðugleika,“ segir Bjarney.
Hún segir að innlegg Írisar hafi
hjálpað þeim vel að skilja að mark-
miðin séu til langs tíma og að það
sé mikilvægt að hafa þrek og vilja í
það. Hún segir að enn sé ekki búið
að ákveða hversu margar konur fái
þjálfun, en að þær vilji stilla vænt-
ingum í hóf, byrja rólega og eiga
meira inni síðar.
„Við þurfum að skoða hvort
þetta verði bara sýrlenskar konur,
eða hvort það verði líka tyrkneskar
konur. Svo eigum við eftir að eiga
samtal við alla hagsmunaaðila, en
það getur verið að við byrjum ekki
nema á 10 til 20 konum,“ segir Bjarn-
ey.
Konur fá ekki sömu tækifæri
Fjórar milljónir f lóttamanna eru
skrásettar í Tyrklandi, og af þeim
eru líklega hálf milljón kvenna frá
Afganistan, Sýrlandi og Írak. Þessar
konur, og almennt konur á f lótta,
verða oft út undan og tekur Bjarn-
ey sem dæmi að af heildarfjölda
útgefinna atvinnuleyfa í Tyrklandi,
séu aðeins þrjú prósent til kvenna.
„Þær standa höllum fæti og eiga
sér oft ekki talsmann eða tækifæri
til að láta rödd sína heyrast.“
Fyrsta varan sem fer í framleiðslu
í Tyrklandi heitir Faðmurinn og er
taska. 66°Norður sér um að senda
efni út til Tyrklands sem konurnar
vinna og svo er varan send aftur
hingað til Íslands þar sem hún verð-
ur seld, bæði í verslunum 66°Norður
og í gegnum UN Women. Líklega á
næsta ári, og mun allur ágóði verk-
efnisins renna til þessara kvenna
og til verkefnisins í gegnum UN
Women.
Mikið í húfi
Bjarney segir að um mikið frum-
kvöðlastarf sé að ræða þar sem
fyrirtæki, UN Women og utanrík-
isráðuneytið skuldbinda sig til að
vinna að þessu saman, en verkefnið
er unnið eftir Heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna og fékk styrk
úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnu-
lífsins um þróunarsamvinnu.
„Við vonumst til þess að eftir þrjú
ár verði þetta einhvers konar for-
dæmi fyrir önnur lönd og fyrirtæki
til að taka upp. Það er mikið í húfi
og mikil ábyrgð í þessu verkefni, að
sýna fram á að þetta sé hægt,“ segir
Bjarney.
Stella segist sammála því og að
þau bindi sterkar vonir við að sam-
starfið við 66°Norður sé aðeins það
fyrsta.
„En þess vegna viljum við tryggja
að þetta sé vel gert og að það séu allir
á sömu blaðsíðu. Það er þriggja ára
verkefnaskilgreining, þar sem við
förum nánar út í það hvernig þetta
verður gert, án þess að við sköpum
óraunhæfar væntingar. Okkar hlut-
verk er að styðja við þetta starf og
þá meira út frá þróunar- og jafn-
réttismálum og þekkingu á þörfum
f lóttakvenna, auk þess sem við
höfum víðtæka og mikla þekkingu
á því hvernig er að koma svona vöru
á markað,“ segir Stella.
Ekki hrædd um orðsporið
Slíku verkefni fylgir ávallt einhver
áhætta, bæði getur umræða um
flóttafólk oft verið erfið og á tíðum
hatursfull, auk þess sem verkefni af
þessum toga eiga það til að verða að
engu, eða skila ekki því sem lofað
var. Spurð hvort hún hafi áhyggjur
af því að ef illa fer geti það skaðað
fyrirtækið eða ímynd þess, svarar
Bjarney því neitandi.
„Þetta snýst miklu meira um
ábyrgð sem ég finn sem mann-
eskja, og hvernig ég hef ákveðin tól
sem geti látið þetta gerast. Það sem
hræðir mig er að það verði ekkert úr
þessu. Áhrif verkefnisins á orðspor
okkar veldur mér ekki áhyggjum,
því við munum alltaf gera þetta af
heilindum. Mér finnst bara ábyrgð-
in svo mikil að hjálpa, að fá þennan
sprota. Okkur er treyst, utanríkis-
ráðuneytið gerir það og mér finnst
mikilvægt að við látum það gerast,“
segir Bjarney.
Stella segir mikilvægt í því sam-
hengi að það sé heildstæð sýn og
áhersla á að verkefnið haldi áfram
um langa tíð.
„Þetta er fólk með mikla þekk-
ingu en við komum inn til að auka
færni þess, samkeppnishæfni og
getu til að koma sínum vörum eða
þekkingu inn á markað. Það getur
leitt til þess að önnur fyrirtæki eða
hönnuðir leiti til þeirra, hérlendis
eða í Tyrklandi.“
Stella segir þetta gott innlegg í
umræðu um sérstaka stöðu flótta-
kvenna í heiminum og bendir á að
sjaldan sé tekið tillit til þeirra og
þeirra sérstöku aðstæðna. Margar
séu einar en sumar jafnvel með
börn og viti ekkert hvar eiginmenn
eða barnsfeður þeirra eru, lifandi
eða látnir.
„Með þessu fá þær tækifæri til
að mennta sig, fæða sig og klæða
og við getum líka lært af þessu á
Íslandi, um hvernig er hægt að gefa
fólki tækifæri. Því það vilja allir fá
tækifæri. Það vilja auðvitað flestir
búa heima hjá sér, en í þeirra tilfelli
geta þau það ekki og líklega geta þau
það aldrei. Ég hef mikla trú á þessu
verkefni og hlakka til að sjá hvað við
getum gert saman og hvaða tæki-
færi þetta opnar fyrir aukna þátt-
töku fyrirtækja í mannúðarstarfi,“
segir Stella að lokum. n
Myndin er tekin
við SADA-mið-
stöðina þar sem
verkefnið mun
eiga sitt heimili.
MYND/UN WOMEN
Á myndinni með Stellu og Bjarneyju er Íris Björk Kristjánsdóttir sem starfar
hjá UN Women í Tyrklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður, og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Flóttakonur í Tyrklandi sauma fyrir 66°Norður
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa
@frettabladid.is
28 Helgin 22. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ