Bændablaðið - 24.02.2022, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 20222
FRÉTTIR
Framleiðsla reið- og ræktunar-
hrossa hefur minnkað bæði
hérlendis og erlendis á undan-
förnum tíu árum.
Alls fæddust 11.076 folöld af
íslenska hestakyninu árið 2020 en
voru 17.146 talsins árið 2010.
Árið 2010 fæddust hér á landi
9.166 hross en áratug síðar, árið
2020, var fjöldi fæddra folalda
5.629 samkvæmt tölum WorldFengs,
upprunaættbókar íslenska hestsins,
sem heldur utan um skráningar á
ræktunar- og reiðhrossum um allan
heim. Samkvæmt tölunum hefur
fæddum folöldum líka fækkað
erlendis, voru 7.980 árið 2010 en
árið 2020 voru þau 5.447 talsins.
Fækkunin hefur átt sér stað jafnt
og þétt síðasta áratuginn og er
nokkur fylgni milli minnkandi
framleiðslu hér heima og erlendis.
Eilítið fleiri íslensk hross fæðast
í upprunalandinu. Samkvæmt
tölunum virðist hlutfall folalda fædd
á Íslandi vera að hækka aftur eftir
að það fór í fyrsta sinn niður fyrir
50% árið 2018. Tölur gætu þó verið
vanáætlaðar erlendis, þar sem reglur
um skráningar hrossa í WorldFeng
er ekki skilyrt fyrir hestahald margra
landa, líkt og hér.Tölurnar gefa þó
mynd af dreifingu íslenskra hrossa
utan landsteinanna. Flest íslensk
hross fæðast í Þýskalandi, að jafnaði
yfir 2.200 talsins ár hvert. Danmörk
er með næstflest skráð fædd folöld,
kringum 1.600, og í Svíþjóð eru þau
um 800 talsins. Hrossum fæddum
í Noregi hefur fækkað mikið á 10
árum, voru 512 árið 2010 en 238
árið 2020. Hross fædd í Hollandi
og Austurríki eru um og yfir 200 ár
hvert í hvoru landi.
Ekki misræmi í skráningu
Hægt er að finna tölur Matvæla-
stofnunar um sláturhross á
síðastliðnum 4 árum á síðum þessa
tölublaðs. Samkvæmt þeim komu
5.450 folöld fædd árið 2020 til
slátrunar en 5.629 fæddust skv.
ofangreindum tölum og virðist
því vera einhvers lags misræmi
milli talna. Svo reynist þó ekki
vera, því samkvæmt reglugerðum
MAST þurfa öll hross, eldri en 10
mánaða, að vera skráð í WorldFeng.
Folöldum er alla jafna slátrað fyrir
10 mánaða.
Þá ber blóðbændum að skrá
hryssur en ekki afkvæmi þeirra og
er því örlítill hluti þeirra hrossa sem
fara til slátrunar skráð í gagnagrunn
upprunaættbókarinnar. /ghp
Fædd hross 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
Alls 17.146 15.904 14.487 13.148 12.222 11.777 11.309 11.176 11.433 11.414 11.076
á Íslandi 9.166 8.566 7.909 6.869 6.589 6.329 5.898 5.589 5.625 5.731 5.629
erlendis 7.980 7.338 6.578 6.279 5.633 5.448 5.411 5.587 5.808 5.683 5.447
Sláturhross 5019 5053 5291 5450
Mörg eftir 570 572 440 179
hlutf. Ísl 53,5% 53,9% 54,6% 52,2% 53,9% 53,7% 52,2% 50,0% 49,2% 50,2% 50,8%
hlutf. Erl 46,5% 46,1% 45,4% 47,8% 46,1% 46,3% 47,8% 50,0% 50,8% 49,8% 49,2%
Eilítið fleiri íslensk hross fæðast í upprunalandinu en erlendis. Mynd/PI
Tölur um fjölda fæddra hrossa heima og erlendis:
Framleiðsla á hrossum minnkar
Krappar lægðir hafa áhrif á afkastagetu trjá- og garðyrkjubænda:
Víðtæk eyðilegging í illviðrinu
Gróðurhús á Suðurlandi urðu illa
úti í óveðri sem geisaði sl. mánu-
dag, 22. febrúar.
Úrkomusamt suðaustan ofsa veður
gekk þá yfir landið og fór vindhraði
yfir 50 metra á sekúndu í hviðum á
nokkrum veðurstöðvum.
Stórtjón í Jarðarberjalandi
Húsnæði garðyrkjustöðvarinnar
Jarðarberjalands í Biskupstungum
eyðilagðist í illviðrinu.
Gróðurhúsið var 2.000 fm stórt og
innihélt 18.200 jarðarberjaplöntur.
„Við fórum niður að stöð um leið
og hægt var, þegar aðeins lægði, upp
úr miðnætti. Þá var húsið farið,“
segir Steinar Ástráður Jensen, annar
eigenda stöðvarinnar. Ekki liggi fyrir
heildartjón þeirra á þessum tíma-
punkti en ljóst sé að ræktunarárið
þeirra sé fyrir bí.
„Það munu engin ber koma héðan
út þetta ár og fram á mitt næsta ár
að minnsta kosti. Við vorum búin
að stilla upp í heilsársræktun og
frá okkur fara vikulega 4–500 kg á
veturna og 1.000–1.500 á sumrin,“
segir Hólmfríður Geirsdóttir, sem
einnig á stöðina, en ársframleiðsla
Jarðarberjalands er rúm 30 tonn af
berjum á ári.
Þau segja að nú taki við að ræða
við tryggingarfélagið en ljóst sé að
þau hafi misst sína starfsstöð alla og
endurreisa þurfi húsnæðið til að koma
rekstrinum aftur af stað.
Skelfileg aðkoma
Þá er meirihluti 1.800 fm ræktunar-
húsa trjáplöntuframleiðandans
Kvistabæ í Reykholti ónothæfur
eftir að plast rifnaði af gróður-
húsum stöðvarinnar. Aldís Björk
Sigurðardóttir, framkvæmda- og
ræktunarstjóri, reyndi að bjarga hluta
húsanna um leið og stærsti skellurinn
var yfirstaðinn.
„Við fórum um kvöldið til binda
niður hluti sem höfðu losnað og
skera plast frá til að það myndi ekki
skemma út frá sér. Þetta var svakalegt,
því við heyrðum rosalega hvelli og
þá var það líklegast Jarðarberjaland
að gefa sig,“ segir Aldís.
Engar plöntur voru í Kvistabæ en
framleiðendurnir hugðu á sáningu í
byrjun mars, sem ekkert verður úr.
„Ástandið setur reksturinn í mikla
óvissu þar sem búið er að gera samn-
inga um afhendingar fram í tímann
sem erfitt getur verið að standa við.
Við stefndum á að rækta um 2,5
milljón plöntur en úr þessu verður
framleiðslan varla helmingurinn af
því og tjónið því gríðarlegt,“ segir
Aldís. Ekki verður hægt að plasta
húsin aftur fyrr en veðrið verði heitt
og lygnt.
Kryddjurtaskortur fram undan
Gróðrarstöðin Ártangi í Grímsnesi
varð einnig illa úti. Rúður á víð og
dreif um 3.000 fermetra svæði brotn-
uðu og dreifðust yfir afurðir stöðv-
arinnar. „Um 70–80 rúður fuku eða
brotnuðu í þremur húsum. Ein rúða
fýkur og brýtur aðra og hefur svo
keðjuverkandi áhrif þegar vindáttin
er svona leiðinleg,“ segir Gunnar
Þorgeirsson, annar eigenda stöðv-
arinnar og formaður Bændasamtaka
Íslands.
Hann var ekki farinn að taka
saman tjónið sem óveðrið olli. Um
20–30 þúsund plöntur eru í stöðinni
og ljóst að hluta þeirra verði hent. Því
megi búast við takmörkuðu framboði
af kryddjurtum frá Ártanga næstu
3–4 vikurnar.
Gunnar segist ekki muna svona
tíð og slæm veður áður. „Það er
óvanalegt að vindstyrkurinn fari yfir
40 metra og sjaldgæft að fá svona
margar, krappar lægðir á stuttum
tíma. En ef maður lifir febrúar af
þá lifir maður veturinn af,“ segir
Gunnar, sem var í óðaönn við að
laga gróðurhúsin fyrir næsta skell,
sem búist er við á föstudag. /ghp
Ljóst er að ársframleiðsla garðyrkjustöðvarinnar Jarðaberjalands er fyrir bí
og engin ber munu þaðan koma fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári.
Glerbrotum rigndi yfir afurðir í Ártanga. Tjónið mun hafa áhrif á kryddjurta-
framboð í verslunum næstu vikur.
Húsnæði Jarðarberjalands, sem var um 2.000 fm og innihélt 18.200
berjaplöntur, brast í óveðrinu. Myndir/Aðsendar
Meginhluti ræktunarhúsa Kvistabæjar er ónothæfur eftir ofsaveðrið.