Bændablaðið - 24.02.2022, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 20224
Á veitingahúsinu Skál á Hlemmi
var slegið upp veislu 22. feb.
sl. til að fagna fersku íslensku
lambakjöti í febrúar. Á matseðlum
á mannamótum um miðjan vetur
búast flestir við öðrum og ögn
litlausari brag á lambakjöti en
ferskvaran býður upp á. Ekki
var þó annað að sjá en að ferska
lambið frá Brákarey í Borgarnesi
mæltist vel fyrir hjá matgæðingum
og mörgum af fremstu kokkum
landsins.
„Fjölbreytt úrval og val um
upprunamerktar afurðir er eitt af því
sem ég vinn mikið með, lambakjöt
er okkar helsta gæðakjötvara,
þess vegna er þetta framtak alveg
frábært. Kjötið er svo meyrt, safaríkt
og bragðgott, ég vil meina að það
sé kominn tími til að fá ferskt
lamb mikið lengur en nokkrar
vikur á hverju ári og þróa þannig
markaðinn með hóflegu framboði.
Fjölbreytileiki og aukin gæði í því
hvernig við meðhöndlum hráefnin
okkar er það sem við þurfum meira
af til að gera íslenskan mat eins
góðan og hann getur orðið, og þetta
er risastórt skref í þá átt. Á Skál er
núna réttur með ferskum framhrygg
„prime“ sem verður í boði á meðan
birgðir endast,“ segir Gísli Matthías
Auðunsson kokkur og einn eigenda
á Skál.
Íslenskt lambakjöt í samstarfi
við Brákarey
Markaðsstofan Íslenskt lambakjöt
í samstarfi við Brákarey, valda
veitingastaði og sælkeraverslanir
stendur fyrir ferskum dögum.
Lambakjöt er hráefni sem
landsmenn hafa ekki vanist að
geta fengið ferskt um hávetur.
Kjötið er sérvalið úr Borgarfirði,
upprunamerkt heim á bæ og unnið
af alúð í handverksframleiðslunni
Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey.
M.a. hafa skrokkarnir hangið í 10
daga, til að meyrni og bragðgæði
skili sér til fulls. Ferskt lambakjöt
verður í boði á veitingastöðunum
Skál, Tides og Óx, og í verslunum
Pylsumeistarans, Me & Mu og
Ljómalind á meðan birgðir endast.
„Handverksframleiðsla á smáum
skala sem nú ryður sér rúms í
auknum mæli eins og í Brákarey
gefur bændum og neytendum
tækifæri til að ná saman um viðskipti
á fjölbreyttari máta, stuttar boðleiðir
hjálpa þar til. Það er óskastaða að
markaður skapist fyrir ferskvöru
utan þess ramma sem menn hafa talið
hinn eina rétta fyrir lambakjöt. Með
aukinni fjölbreytni í vöruframboði
geta bændur þjónustað og stækkað
kröfuharðari hluta markaðarins sem
er frekar tilbúinn að greiða meira
fyrir vöruna, að því gefnu að aukin
gæði fylgi og sagan að baki sé
sönn,“ segir Hafliði Halldórsson,
framkvæmdastjóri Íslensks
lambakjöts.
Rannsóknir staðfesta meiri
bragðgæði
Samanburðarrannsóknir Matís hafa
staðfest meiri bragðgæði fersks
lambs, rýrnun við eldun er einnig
allt að 15% minni samanborið við
fryst lambakjöt. Íslenskir neytendur
eru hins vegar fæstir vanir fersku
lambakjöti og er full ástæða til að
fræða neytendur um kostina. Með
auknu framboði ferskvöru beint úr
héraði og til lengri tíma ársins má
þess vænta að fleiri staðsetningar á
markaði skapist og í framhaldi aukin
verðmæti. /HH/VH
FRÉTTIR
Í október síðastliðnum urðu þau
tímamót í búrekstri kúbændanna
í Eyði-Sandvík rétt við Selfoss,
að lífrænt vottuð mjólk var
markaðssett frá bænum í fyrsta
skiptið.
Er þetta fjórða kúabúið sem fær
lífræna vottun á framleiðslu sína,
en það langstærsta. Helgi Rafn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Biobús, segir ástæðu til að fagna
vel, því fyrirtækið hafi lengi skort
lífrænt vottaða mjólk til að vinna úr.
„Við höfum beðið lengi eftir þess-
um tímamótum, enda hefur ferlið
tekið langan tíma frá því við hittum
bændurna í Eyði-Sandvík fyrst,“
segir Helgi.
Aukið vöruúrval og betra aðgengi
Eyði-Sandvík framleiðir jafnmikla
mjólk og þau tvö kúabú samtals,
sem mest hafa lagt inn af mjólk
til Biobús. „Þessi viðbót breytir
mjög miklu fyrir okkur, við getum
loksins aukið vöruúrval og haldið
áfram að þróa markað með lífrænar
mjólkurvörur og vonandi náum við
að auka aðgengi neytenda að þeim.
Til dæmis er ný vörulína
væntanleg á næstu vikum sem er
búin að vera lengi í undirbúningi.
Með tilkomu Eyði-Sandvíkur í hóp
lífrænna mjólkurbænda þurfum við
ekki að skammta vörur í verslanir
eins og við höfum þurftu að gera á
vissum árstímum,“ segir Helgi Rafn.
Hann segir að töluverð
hagkvæmni fáist í því að taka fleiri
lítra í gegnum mjólkurvinnsluna
og ekki sé nauðsynlegt að flytja
úr núverandi húsnæði því nokkuð
rúmt sé þar um starfsemina. „Síðustu
misseri höfum við unnið að því auka
afkastagetu með tækjakaupum og
breytingum innanhúss,“ segir hann.
Biobú keypti Skúbb ísgerð
síðastliðið vor en auk ísframleiðslunnar
hafa verið þróaðar Skúbb skálar, þar
sem uppistaðan er grísk jógúrt – sem
seldar verða á sérstökum Skúbb skála
sölustöðum. /smh
Nánari umfjöllun um Eyði-
Sandvík er á bls. 26-27.
Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmda -
stjóri Biobús. Mynd / smh
Nýtt lífrænt vottað kúabú:
„Beðið lengi eftir þessum tímamótum“
– segir framkvæmdastjóri Biobús
Ferskir dagar í febrúar
Þrjár ær til viðbótar með ARR
arfgerðina í Þernunesi
Niðurstöður bárust um helgina úr
sýnatökum í Þernunesi þar sem
leitað var að ARR-arfgerðinni,
sem er verndandi gegn riðu í
sauðfé. Þrjár ær fundust með
arfgerðina af þeim 95 sýnum sem
tekin voru að þessu sinni, tvær
eru hyrndar og eru þær fyrstu
hyrndu kindurnar sem finnast
með arfgerðina hér á landi.
Samtals hafa því níu kindur
fundist með arfgerðina í Þernunesi,
en í öllum tilvikum eru þær
arfblendnar með arfgerðina. Áfram
verður haldið að greina hjörðina á
bænum.
Hyrndu ærnar fjarskyldar hinum
Í umfjöllun Eyþórs Einarssonar
á vef Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins kemur fram að í
síðustu sýnatöku í Þernunesi hafi
elstu árgangarnir verið teknir fyrir;
allar ær fæddar 2014 og eldri,
auk allra hrúta og valdar ær sem
tengdust þeim sem áður höfðu verið
greindar með ARR. Hyrndu ærnar
sem nú finnast með arfgerðina eru
fremur fjarskyldar hinum sem áður
fundust og engin þessara þriggja
kinda er tengd Njálu frá Kambi,
sem er formóðir allra hinna sex
einstaklinganna.
Kindurnar sem fundust með
argerðina um helgina eru eftirfarandi:
Friðsemd 14-431, hvít, hyrnd.
Faðir Botni 13-026 frá Þernunesi og
móðir Sólfríð 12-256, Þernunesi.
Sæný 14-480, hvít, hyrnd. Faðir
Njörður 12-019 frá Þernunesi og
móðir Sæunn 09-919, Þernunesi.
Móða 16-658, grámórauð, kollótt.
Faðir Júlíus 15-003 frá Þernunesi og
móðir Grákolla 13-366, Þernunesi.
Fyrstu sýnin úr arfgerðar-
greiningunum farin í greiningu
Eyþór segir að haldið verði áfram
að kortleggja ARR-arfgerðina í
Þernunesi. „Þessi vinna er partur af
því rannsóknarverkefni sem RML
vinnur í samstarfi við Keldur og
Karólínu o.fl.
Þá er í gangi umfangsmikið
átaksverkefni á vegum RML í
arfgerðargreiningum og á næstu
vikum og mánuðum verða tekin
sýni úr meira en 20.000 kindum vítt
og breitt um landið. Fyrstu sýni úr
því verkefni eru farin í greiningu en
engar niðurstöður liggja fyrir. Þegar
sú sýnataka verður afstaðin ætti að
fást ágæt mynd á það hversu ARR
arfgerðin er útbreidd í stofninum
– eða hvort Þernunes sé eina
uppsprettan,“ segir Eyþór. /smh
ARR Friðsemd, Sæný og Móða frá Þernunesi. Myndir / Steinn Björnsson
Eigendur Brákareyjar og bændur í Borgarfirði, f.v. Guðrún Sigurjónsdóttir
og Eiríkur Blöndal og kokkurinn Gísli Matthías Auðunsson.
Myndir / Kristinn Magnússon
Lambatartar með estragonkremi.
Kokkarnir Þráinn Freyr Vigfússon og Björn Bragi Bragason.
Ferskur lambaframhryggur með
reyktu seljurótarmauki og kræki-
berjasoðgljáa.
Uppskera á Bakkafirði
Tæp 9 milljónum króna var
úthlutað úr Framkvæmdasjóði
Betri Bakkafjarðar fyrir árið 2022
til tíu samfélagseflandi verkefna.
Styrkirnir eru hluti af verkefni
Byggðastofnunar, Brothættar
byggðir, sem Bakkafjörður hefur
verið hluti af frá árinu 2019.
Meðal verkefna sem hlutu styrk
er Endurnýjun á Arnarbúð sem
Björgunarsveitin Hafliði hefur
umsjón með, Ana Kowalska mun
efla markaðsþjónustu á Bakkafirði,
Fljótir flutningar ehf. hlutu styrk
fyrir þjónustuverkstæði og North
East Travel fyrir þjónustukjarna.
Þá fékk Langanesbyggð styrk
fyrir verkefni sem ber heitið
Orkusparnaður á Bakkafirði.
Samkvæmt samfélagssáttmála
sem íbúar og fyrirtæki við
Bakkaflóa undirrituðu við sama
tilefni mun nú hefjast samstillt
átak við að endurreisa atvinnulíf og
byggð á svæðinu, að því er segir í
fréttatilkynningu. /ghp
Styrkþegar úr Framkvæmdasjóði Betri Bakkafjarðar 2022.