Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 20226
Í þessari viku var lögð fyrir stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd Alþingis stjórnsýsluúttekt
Ríkisendurskoðunar á framkvæmd toll-
eftirlits á innflutningi landbúnaðarvara sem
Alþingi hafði í desember 2020 óskað eftir
að yrði framkvæmd.
Það er athyglisvert að lesa sem þar kemur
fram hvernig framkvæmd er á eftirliti á
innflutningi landbúnaðavara. Það styrkir
okkur í þeirri umræðu að eftirliti er verulega
ábótavant bæði á tæknilegum forsendum og
ekki síður að mannafla skattsins til að fylgjast
með hvað kemur inn í landið er verulega
ábótavant.
Pottur brotinn
Við í landbúnaðargeiranum höfum ítrekað
bent á að pottur sé brotinn í framkvæmd
þessara mála og ekki síður fyrir þær sakir
að samanburður á útflutningstölum ESB og
innflutningstölum Hagstofunnar fer ekki
saman. Í úttektinni er hins vegar ekki farið í
þann samanburð heldur vísað til nefndar sem
fjármálaráðherra skipaði og er ætlað að skila
þeim samanburði og ástæðum frávika. Það
er afar mikilvægt fyrir okkur sem störfum
í landbúnaði að fá niðurstöður af þeirri
vinnu sem fyrst svo við getum áttað okkur
á hvað raunverulega er verið að flytja inn af
landbúnaðarvörum.
Nýleg dómaframkvæmd hefur einnig styrkt
okkur í þeim málflutningi að það er ýmislegt
sem verið er að flytja inn sem jafnvel er
skilgreint sem eitthvað annað í tollskýrslum en
landbúnaðarvörur. Hér er ríkissjóður að verða
af umtalsverðum fjármunum. Starfsumhverfi
landbúnaðar verður að vera skýrt svo við
sem framleiðendur getum gert okkar áætlanir
um framleiðslumagn til lengri tíma. Með
þessum orðum hvet ég ríkisvaldið til að taka
úttekt Ríkisendurskoðunar alvarlega þar sem
hagsmunir frumframleiðanda eru gríðarlega
miklir og krafa um að leikreglur séu skýrar
og farið sé eftir þeim í einu og öllu.
Endurskoðun á samningum við
Evrópusambandið
Eins og fram hefur komið þá hefur ráðherra
utanríkismála óskað eftir endurskoðun á
samningum við Evrópusambandið um málefni
landbúnaðarins. En eins og ítrekað hefur komið
fram þá hallar verulega á íslenska framleiðslu.
Tollkvótar sem úthlutað er á hverju ári
eru u.þ.b. 20% af landbúnaðarvörum sem við
neytum á ársgrunni. Norðmenn eru einnig
utan ESB og eru með 9% landbúnaðarafurða
í tollkvótum frá Evrópusambandinu. Ég vil
hvetja núverandi ráðherra utanríkis mála og
matvælaráðherra að horfa til þessara hlutfalla.
Þetta eiga að vera samningsmarkmið okkar
að hlutfallið á Íslandi verði, að lágmarki,
sambærilegt og í Noregi.
Þing búgreinadeilda
Búgreinaþing Bændasamtakanna verður haldið
dagana 3. og 4. mars næstkomandi þar sem
búgreinadeildir munu koma saman og ráða
ráðum sínum og leggja áherslur á málefni
viðkomandi búgreina til næstu ára.
Mikil vinna hefur farið fram í undirbúningi
þessara funda svo sem kosning fulltrúa inn á
þingið og ekki síður undirbúningur að þeim
málum sem lögð verða fram til umræðu.
Eitt af þeim málum er stefnumörkun
Bændasamtakanna til næstu ára, það er
mikilvægt að stjórn fái umræður og áherslur
í málefnum landbúnaðarins hvert skal haldið
á komandi árum. Ég vil enn og aftur þakka
starfsfólki samtakanna og formönnum
búgreinadeilda fyrir undirbúning að þessu
þingi, sjáumst hress og kát á komandi
búgreinaþingi.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í
pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (24. tölublöð) kostar þá kr. 12.200
með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar
8.000 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi, og þá
sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, er
kominn í algjört öngstræti og kallar á
tafarlausar aðgerðir stjórnvalda.
Það eru svo sem ekki ný sannindi að
fasteignamarkaðurinn fari úr böndum, en nú
er staðan bara orðin algjörlega óviðunandi
og ófyrirgefanlegt ef stjórnvöld grípa ekki
þegar í stað inn í og höggva á hnútinn.
Styrkir og stuðningur með peninga
útlátum til kaupenda fasteigna leysir þó
ekki þennan vanda, slíkt er fullreynt. Allar
tilraunir til að laga stöðu fasteignakaupenda
og sérstaklega þeirra sem eru að kaupa í
fyrsta sinn og hafa ekki úr miklu að spila,
hafa að mestu mistekist. Aðstoð í gegnum
skattakerfið, vaxtabótakerfi og annað hefur
iðulega verið snarlega rænt af fólki með
hækkuðu fasteignaverði. Sama á við um
leigumarkaðinn. Leigan hækkar strax sem
nemur stuðningi og rúmlega það.
Hækkun fasteignaverðs hefur ótvíræð
áhrif á hækkun neysluvísutölu og þar
með talið verðbólgu með tilheyrandi
keðjuverkunaráhrifum.
Hlutverk Seðlabanka Íslands er m.a. að
reyna að hafa áhrif á eftirspurnarhliðina
með stýrivaxtaákvörðunum sínum. Reynt
er að slá á þenslu með hækkun stýrivaxta.
Gallinn er bara sá að aldrei hafa jafn fáar
fasteignir verið í boði á markaði og nú.
Hækkun stýrivaxta til að hemja íbúðakaup
og verðbólgu virkar því miður ekki við
þessar aðstæður, hvað sem okkar ágætu
sérfræðingarnir segja.
Nú virðist algjört úrræðaleysi ríkjandi
um hvað skuli gera, en samt mætti ætla að
lausnin sé nokkuð augljós, þ.e. að auka
framboð ódýrara húsnæðis á markaði.
Áætlað er að íbúðaskorturinn nemi
þúsundum íbúða á ári. Spurningin er því
hvort menn ætli bara að halda áfram að
standa aðgerðarlausir og klóra sér í höfðinu
í stað þess að leita lausna sem virka?
Það er hægt að fjölga íbúðum á markaði
á skjótan hátt með einfaldri lagasetningu
sem miðar að því að koma í veg fyrir
brask með íbúðarhúsnæði fólks. Með því
yrði losað um mikinn fjölda íbúða sem
eru bundnar í þessu fjárhagslega spilavíti.
Fólk hlýtur þá að spyrja sig hverjir hafi
helst hagsmuni af því að koma í veg fyrir
slíka lagasetningu. Þau hagsmunaöfl verða
þá að koma fram og færa rök fyrir því
að halda áfram því stjórnleysi sem ríkir
á markaðnum. Þar dugar ekki einungis
að vísa í heilagleika viðskiptafrelsis
og eignarréttar. Viðskiptafrelsið og
eignarrétturinn eru nefnilega einskis virði
ef ekkert samfélag almennings er þar á
bak við. Varla mælir nokkur maður gegn
því að samfélagsleg ábyrgð vegi þyngra í
því samhengi en einkahagsmunir. Allavega
ef við ætlum á annað borð að reka ábyrgt
samfélag manna á Íslandi, ekki þrælabúðir
í þágu stóreignamanna.
• Af hverju er ekki strax gripið til
lagasetningar til að koma böndum á
brask með íbúðir?
• Af hverju eru ekki strax sett lög sem
takmarka fjölda íbúða í eigu eignar
halds félaga sem ekki eru rekin á félags
legum grunni?
• Af hverju eru ekki strax sett lög sem
takmarka eign einstaklinga á fjölda
íbúða sem ekki eru til eigin nota?
• Af hverju eru ekki strax sett lög um
hámarksgjald fyrir leigu á íbúðum
sem gæti miðast við hlutfall af endur
stofnverði viðkomandi íbúðar miðað við
t.d. 40 til 60 ára afskriftartíma?
• Hvers vegna krefjast verkalýðsfélög
þess ekki að strax verði sett lög í þessa
veru?
• Er virkilega einhver glóra í því fyrir
íslenskt samfélag að halda núverandi
endaleysu áfram? /HKr.
Herðubreið og nær er Arnardalsalda. Herðubreið er 1686 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Hún er í
Ódáðahrauni og er oft nefnd „Drottning íslenskra fjalla“ vegna þess hve mörgum finnst hún formfögur. Fjallið myndaðist við eldgos undir jökli.
Herðubreið var valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2002. Mynd / Hörður Kristjánsson
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Blaðamenn: Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is –
Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 563 0303
Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Sími smáauglýsinga: 563 0300 – Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
Samfélagssóðaskapur Tollaeftirlit