Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 7
LÍF&STARF
Í síðasta vísnaþætti var gruflað í gömlu
efni. Skildum þar við mæðginin Einar
Ben og Katrínu Einarsdóttur. Áfram
munu „aldnir hafa orðið“, og verða fyrir tvær
vísur sem eiga höfundarnafnið G.F. Ef til vill
kunna lesendur skil á þeim höfundi tveggja næstu
snjallvísna:
Vetur kastar sinni sök,
sólin merlar fjörðinn,
þegar vorsins vængjatök
verma kaldan svörðinn.
Um ónefndan mann yrkir svonefndur G.F.:
Hverfur óttans sjónarsvið,
sofðu rótt í nafni friðar.
Þú hefur sótt á sömu mið
síðan nóttin gekk til viðar.
Jónas Pétursson alþm. orti þegar samþykkt var
á Alþingi að stofnað skyldi til happdrættis til að
fjármagna brúargerð yfir Skeiðará, síðasta áfanga
hringvegarins:
Þingið prísar þetta land,
þrek og manndóm fólksins virðir,
ægifagran sigrar sand,
sjálfan “hólmann” vegi girðir.
Gestur Guðfinnsson hélt úti vísnaþáttum í
Alþýðumanninum. Þætti Gests barst vísnabréf
frá Helgu Björgu Jónsdóttur, húsfreyju á
Geithellum í Álftafirði. Þaðan eru þessar snjöllu
stökur teknar:
Þó að feli fyrndin grá
feril kynninganna,
finn ég einatt ylinn frá
arni minninganna.
Á lífsins útsæ ein ég ræ
æðrulaus á fleyi,
get þó varla greint hvort næ
grænu landi ‘eða eigi.
Í minni æsku mér var kennt
að meta gefin loforð,
en það er ekki heiglum hent
að halda öll þau boðorð.
Ef til vill er lítil huggun lesendum að birta
næstu vísu, svona í ljósi dapurra skapa dægra
Bændahallarinnar, en á aðalfundi Stéttasambands
bænda lá fyrir tillaga um að stækka Bændahöllina.
Andrés Kristjánsson ritstjóri orti af því tilefni
þessa framvísu stöku:
Stjórnin bað fundinn aðeins um eina
afmælisgjöf, og hlaut;
heimild til þess að halda beina
og hallandi ógæfubraut.
Eftir Bjarna Kristinsson Húnvetning eru næstu
tvær stökur. Í fyrri vísunni má e.t.v. finna nokkurn
sannleik sé litið til þeirra fjölmörgu hagyrðinga
sem hösluðu sér völl á síðustu öld:
Enginn vill nú yrkja ljóð,
en eflaust margur getur.
Held ég þó að húnvetnskt blóð
hafi runnið betur.
Í síðari vísu Bjarna er hvatt til söngs í Húnaþingi,
sem aldeilis hefur farið eftir:
Tengjumst sterku tryggðabandi,
tökum lagið, stofnum kór.
Nú er kalt á Norðurlandi,
næturfrost og jafnvel snjór.
Nýlátinn er einn af bestu liðsmönnum söngmenntar
og vísnagerðar í Austur-Húnavatnssýslu, Óskar
Sigurfinnsson í Meðalheimi á Ásum. Nokkrir
söngmenn stofnuðu kórinn Vormenn. Óskar
var einn af stofnendum ásamt Hauki á Röðli og
Jóni í Rafstöðinni. Eins og stundum gerist, þá
lognast sönghópar útaf þegar fækkar félögum.
Svo varð með Vormenn, enda ýmsir erfiðleikar
í héraði. Óskar orti þá langan brag. Þar er að
finna þetta gullkorn:
Nú er ekki um náð að tala,
nú er kláði og pest til dala,
leika hrútar lausum hala
líður blær um kalin strá.
Nú er hagur heldur þröngur,
hljóðnar Ásamanna söngur;
Jón og Haukur fallnir frá.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
292MÆLT AF
MUNNI FRAM
Búgreinaþing:
Aðalfundur búgreina innan
Bændasamtakanna
Búgreinaþing deilda
kjúklinga bænda, eggja
fram leiðenda, geit fjár rækt
ar, skógareigenda, hrossa
bænda, garðyrkju bænda,
sauð fjárbænda og kúa bænda
verður haldið á Hótel Natura
3. og 4. mars næstkom andi.
Loðdýra rækt endur halda
sitt bú greina þing 26. febrúar
á Hótel Sel fossi.
Við samruna bú greina-
félaganna og Bænda sam-
taka Íslands urðu til bú-
greinadeildir innan sam tak-
anna, en hver deild heldur
sinn aðalfund sem kallast
Búgreinaþing. Þar hlutast
hver grein til um sín mál-
efni, mótar sér stefnu og kýs
sér stjórn. Búgreinaþing eru
því ígildi aðalfunda gömlu
búgreinafélaganna.
Þingið tekur tvo daga
Vigdís Häsler, framkvæmda-
stjóri Bænda samtaka
Íslands, segir að fram undan
sé fyrsta Búgreinaþing
sameinaðra samtaka og
hafa síðustu mánuðir verið
anna samir á skrifstofunni.
„Búgreinaþing verður
haldið á Hótel Natura dag-
ana 3. og 4. mars. Búgreina-
deildir sauðfjár- og kúa-
bænda standa yfir í tvo
daga á meðan aðrar búg-
reinar funda í einn dag. Á
Búgreina þingi ræðir hver
búgreina deild sín mál-
efni, tekur stefnumótandi ákvarðanir
og kýs stjórn til næsta árs. Má segja að
Búgreinaþingið sé ígildi aðalfunda gömlu
búgreinafélaganna. Loðdýraræktendur
halda sitt búgreinaþing 26. febrúar næst-
komandi á Hótel Selfossi.“
Vettvangur til að ræða stöðuna
Setningarathöfnin hefst á fimmtudaginn 3.
mars klukkan 11.00 með ávarpi frá Gunnari
Þorgeirssyni, formanni Bændasamtaka
Íslands. Einnig munu Stefán Vagn
Stefánsson, formaður atvinnuveganefndar
Alþingis og Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra flytja ávarp.
Vigdís segir að gert sé ráð fyrir milli
150 til 200 fulltrúum á þingið og að það sé
sérstaklega gleðilegt að fá að hitta fulltrúana
til skrafs og ráðagerða „enda lítum við á
Búgreinaþingið sem vettvang til að ræða
stöðuna og fá fram áherslur búgreinanna sem
nýtast munu í starfi Bændasamtakanna.“
Unnsteinn Snorri Snorrason, sérfræðingur
og staðgengill framkvæmdastjóra Bænda-
samtaka Íslands, segir að í aðdraganda
Búgreinaþings hafa deildirnar verið að funda
með bændum. „Við höfum þurft að halda
þessa fundi í gegnum fjarfundarbúnað. Það
fyrirkomulag hefur fengið góðar viðtökur
og þátttaka á fundum framar vonum. Á
einum fundi sauðfjárbænda voru til dæmis
220 manns. Það eru ýmis mál sem brenna
á bændum en auðvitað er sú staða sem nú
er uppi varðandi hækkun aðfanga mjög
alvarleg og líklegt að það mál verði til
umræðu á þinginu. En þar verða líka rædd
ýmis önnur mál, allt frá ágangi álfta upp í
arfgerðagreiningu sauðfjár.“
Tíu fyrirtæki tengd landbúnaði verða
með bása á þinginu þar sem þau kynna vöru
sína og þjónustu. /VH
Aðalfundur búgreina verður haldinn á Hótel Natura, (fyrrum Hótel Loftleiðir) í Reykjavík. Mynd / Icelandair hotels.
Við samruna búgreinafélaganna og Bændasamtaka Íslands urðu til búgreinadeildir innan samtakanna, en hver
deild heldur sinn aðalfund sem kallast Búgreinaþing.