Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202212
Prjónagleðin verður haldin á
Blönduósi dagana 10.–12. júní
2022 og að venju er blásið til
hönnunar- og prjónasamkeppni
af því tilefni.
Í ár er verkefnið fólgið í því
að hanna og prjóna lambúshettu
á fullorðinn. Þema keppninnar er
huldu fólk samtímans og ber að hafa
það í huga við hönnunina, sem á að
vera handprjónuð úr íslenskri ull.
Óskað er eftir því að sagan á bak við
hugmynd og hönnun fylgi með þegar
verkinu er skilað inn í keppnina.
Dómnefnd velur 3 efstu sætin og
verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni
2022, þar sem verðlaun verða afhent.
Sameinar þá sem hafa áhuga
fyrir prjónaskap
Svanhildur Pálsdóttir, viðburða-
og markaðsstjóri Textílmiðstöðvar
Íslands, segir að markmið Prjóna-
gleðinnar sé að sameina þá sem áhuga
hafa á prjónaskap, skapa því vettvang
til að hittast og miðla prjóna sögum,
nýjum hugmyndum, aðferðum og
gömlum hefðum, „en ekki síst til
að viðhalda prjónagleðinni í öllum
sínum fjölbreytileika“.
Svanhildur segi að unnið sé
að því að setja saman áhugaverða
og fjölbreytta dagskrá fyrir
Prjónagleðina í byrjun næsta sumars,
en að venju verði í boði fjölbreytt
úrval námskeiða og fyrirlestra auk
þess sem blásið sé til viðburða
sem tengist prjónaskap og garni
á einhvern hátt. Markaðstorg er
ævinlega sett upp í tengslum við
Prjónagleðina, en þar koma saman
handlitarar, garnframleiðendur,
prjónaverslanir, handverksfólk og
hönnuðir og sýna og selja vörur sem
tengjast prjónalífinu.
Lambhúshettur komnar í tísku
Svanhildur hlakkar til að sjá verkin
sem munu berast í samkeppnina.
„Lambhúshettan er eins og við
þekkjum mjög gamalt fyrirbæri
og slík höfuðföt hafa verið notuð
hér á landi sem skjólflík svo ára-
tugum ef ekki öldum skiptir.
Núna eru þær allt í einu komnar
aftur í tísku og því tilvalið fyrir
hönnuði og prjónafólk að spreyta
sig á því verkefni. Okkur finnst
mjög spennandi að sjá hvað
kemur út úr þessari samkeppni,
ekki síst af því að þemað er
ansi krefjandi.“
Styrktaraðilar prjóna sam-
keppn innar í ár eru Ístex, Tundra,
Vatns nesYarn og Rúnalist sem
gefa glæsileg verðlaun. Lambhús-
hetturnar sem taka þátt í keppn-
inni verða til sýnis meðan á hátíð-
inni stendur. /MÞÞ
FRÉTTIR
Ullarvika verður haldin
á Suðurlandi í haust
Ákveðið hefur verið að halda
Ullarviku á Suðurlandi aftur
í október í haust en slík vika
var haldin síðasta haust, sem
heppnaðist einstaklega vel og vakti
mikla athgli.
Árlega sauðfjárlitasýningin
,,Litur“ verður haldin sunnudaginn
2. október. Aðaldagskráin verður hins
vegar með opnu húsi í Uppspuna,
sýnikennslu og opnum vinnustofum
hjá Spunasystrum, fjölbreyttum
námskeiðum og Prjónakaffi í
Þingborg dagana 6.–8. október.
Sunnudaginn 9. október verður svo
markaður í Þingborg. /MHH
Hönnunar- og prjónasamkeppni Prjónagleðinnar 2022 á Blönduósi í júní:
Lambhúshettan fær nýtt líf
Svanhildur Pálsdóttir, viðburða- og markaðsstjóri Textílmiðstöðvar Íslands.
Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi á komandi sumri og að venju er
blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni en í ár felst keppnin um að hanna
og prjóna lambhúshettur á fullorðna.
Samþykkt sveitarstjórna Skagafjarðar og Akrahrepps fyrir sameiningarkosningar:
Hyggjast leggja 728 milljónir króna
í skólamannvirki í Varmahlíð
Björgunarmiðstöð verður komið
upp á Þórshöfn á Langa nesi.
Viljayfirlýsing þar um hefur verið
undirrituð á milli sveitarfélags-
ins Langanesbyggðar, Slökkviliðs
Langanesbyggðar, Neyðar-
lín unnar ohf. og Björgunar-
sveitarinnar Hafliða á Þórshöfn
og Heilbrigðisstofnunar Norður-
lands um að koma slíkri mið stöð á
laggirnar á Þórshöfn.
Miðstöðin mun hýsa tæki,
búnað og bifreiðar slökkviliðsins,
björgunarsveitarinnar og sjúkra-
bifreiðar auk þess sem þar verður
aðstaða fyrir starfsmenn og önnur
rými sem tilheyra. Meginmarkmiðið
er, að því er fram kemur á vefsíðu
Langanesbyggðar, að ná fram
hámarks samhæfingu og samvinnu
auk hagræðingar í starfsemi þeirra
en ekki síst að auka öryggi íbúa á
norðausturhorni landsins.
Að mati þeirra sem að viljayfirlýs-
ingunni standa hefur þessi landshluti
verið afskiptur þegar kemur að upp-
byggingu hvers konar þjónustu við
íbúa á þessum stóra og víðfeðma
hluta landsins. Björgunarmiðstöðin
sé stór þáttur í þeirri uppbyggingu
þar sem það eru fáir sem sinna marg-
víslegum hlutverkum og samhæfing
og samvinna þeirra því afar mikilvæg
gagnvart öryggi íbúa.
Nú verður myndaður undir-
búnings hópur sem sér um að gerð
verði þarfagreining varðandi stærð
þess rýmis sem talin er þörf á ásamt
kostnaði og frumteikningum.
/MÞÞ
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar og meirihluti
sveitarstjórnar Akrahrepps
sam þykktu í aðdraganda sam-
einingar kosninga sveitar-
félaganna 19. febrúar, vilja yfir-
lýsingu er varðar skóla mann virki
í Varmahlíð.
Þar sagði að ef niðurstaða kosn-
inga leiddi til sameiningar, þá muni
fjárframlög til nýs sveitarfélags
alfarið verða nýtt til að hraða
upp byggingu skólamannvirkja í
Varmahlíð eins og frekast er kostur.
Nú var sameining samþykkt svo
væntanlega má búast við upp-
byggingu skóla í Varmahlíð í kjöl-
farið.
Áætlað var að framlög úr
Jöfn unar sjóði sveitarfélaga nemi
um 728 milljónum króna ef af
sam ein ingunni yrði. Að því er
fram kom fram í tilkynningu frá
sveitarfélögunum, þá var meirihluti
sveitarstjórnanna jafnframt sammála
um að sameiningarframlögin styrki
ekki aðeins hraðari uppbygg-
ingu í Varmahlíð heldur veiti þau
einnig aukið svigrúm til frekari
framkvæmda á Hofsósi, Sauðár-
króki, Hólum, Steinsstöðum og í
dreifbýli Skagafjarðar.
„Sameinað sveitarfélag allra
Skagfirðinga hefur allar forsendur
að vera leiðandi sveitarfélag á
landsvísu með áherslu á einfalda
og skilvirka stjórnsýslu með skýrum
farvegi fyrir sjónarmið íbúa. Bætt
búsetuskilyrði og framúrskarandi
þjónusta til framtíðar verða
leiðarstef nýs sveitarfélags, auk
þess sem sameinaður Skagafjörður
hefur sterkari rödd til að koma
hagsmunum allra íbúa og atvinnulífs
í Skagafirði á framfæri,“ segir enn
fremur í tilkynningunni. /MHH/HKr.
Hér má sjá teikningar af skólamannvirkjum í Varmahlíð og þær tillögur, sem
liggja fyrir að breytingu og nýbyggingu leikskóla. Mynd / VA ARKITEKTAR
Þórarinn J. Þórarinsson slökkvistjóri, Jónas Egilsson sveitarstjóri og Þor-
steinn Ægir Egilsson, formaður Björgunarsveitarinnar Hafliða á Þórshöfn,
undirrita viljayfirlýsingu um Björgunarmiðstöð.
Viljayfirlýsing um Björgunarmiðstöð á Þórshöfn:
Öryggi íbúa á norðausturhorni
landsins aukið
VETRARFATNAÐUR
isfell.is • sími 5200 500 • Óseyrarbraut 28, Hafnarfirði
Vatnsheldir Skjold kuldagallar
úr öndunarefni.
Vatnsheldir og fóðraðir,
microfiber hanskar
Sterkir og endingagóðir
öryggisskór
Gæða fatalína frá Skjold, fóðraðir og
vatnsþéttir gallar. Hafðu samband og kynntu
þér vöruúrvalið og þjónustuna!