Bændablaðið - 24.02.2022, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202218
LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
Niðurstöður rannsóknar á
rækt un olíujurta, sem Land
bún aðar háskóli Íslands fram
kvæmdi í fyrra, sýna fram á
talsverða möguleika á ræktun
vetrarnepju hér á landi. Hægt
er að auka öryggi ræktunar og
uppskerumagns með ríflegum
áburðarskammti að hausti. Sunna
Skeggjadóttir, umsjónarmaður
rannsóknarverkefnisins, vann
matarolíu úr fræjunum sem hún
segir hafa hnetukeim.
Vetrarafbrigði af olíunepju
(Brassica rapa L. var. olifeira DC)
hafa hingað til sýnt lélega vetrarlifun
í ökrum bænda. Nepja er ræktuð til
olíuframleiðslu með möguleika sem
matarolía og lífdísil, einnig er hratið
verðmætur próteingjafi fyrir skepnur.
Meginmarkmið rannsóknarinnar var
að þróa aðferð til að auka öryggi
og uppskerumagn við ræktun
vetrarnepju. En vetrarnepju er
sáð síðsumars, látin yfirvetrast og
uppskorin um haustið rúmu ári eftir
sáningu.
„Uppskera tilraunarinnar í haust
gekk vel og það var áberandi hvað
þroski plantnanna hafði áhrif á
hversu vel gekk. Hingað til hefur
verið einblínt á voráburðinn í ræktun
en helstu niðurstöður okkar sýna að
áburður á sáðári skiptir miklu máli
hvað varðar vetrarlifun við íslenskar
aðstæður, vaxtarferli, þroska og upp-
skeru vetrarnepjunnar.
Tilraunareitir sem fengu lægstu
áburðarskammta að hausti voru ekki
tilbúnir við uppskeru. Eftir því sem
áburðarskammtur á sáðári var stærri
því fyrr var plantan að þroskast sem
þar af leiðandi eykur líkur á fullnægj-
andi uppskeru og öryggi í ræktun,“
segir Sunna, en uppskeruniðurstöð-
ur sýndu að reitir sem fengu hæstan
áburðarskammt að hausti (90kgN/ha)
gáfu að meðaltali 2,6 tonn þurrefnis á
hektara á meðan þeir reitir sem fengu
lægsta áburðarskammt (30kgN/ha)
gáfu 1,5 tonn þurrefnis á hektara að
meðaltali.
Svo virtist sem plöntur sem
fengu stóran áburðarskammt á
sáðári hafi verið betur búnar undir
umhleypingasaman vetur sem
einkenndi Hvanneyri 2020-21.
Sunna segir einnig að samkvæmt
niðurstöðum þeirra er ráðlagður
sáðskammtur, skv. erlendum
rannsóknum, ekki endilega sá
æskilegasti hér á landi. Þannig hafi
verið lítill munur á uppskeru þeirra
reita sem fengu 4 kg af fræi á hektara
og þeirra sem fengu 16 kg/ha.
Sunna hefur verið að gera tilraunir
með matarolíuvinnslu úr uppskeru
tilraunarinnar. „Ég er með olíupressu,
set fræin ofan í trekt og olían lekur
út einum megin og hratið í hina
áttina. Olían er bragðgóð og minnir
á hnetuolíu. Það má nota olíuna beint
en einnig til steikingar,“ segir Sunna
en reiknað hlutfall olíufræsins er um
33% olía á móti 67% hrati. Sunna
hefur nú malað hratið sem eftir
liggur og er að greina næringuna í
því. „Hratið gæti orðið mögulegur
próteinríkur orkugjafi fyrir skepnur
sem þykir það afar lystugt.“
Nýsköpunarsjóður námsmanna
og Orkurannsóknasjóður Lands-
virkjunar styrktu verkefnið árið
2021 en Landbúnaðarháskólinn
hyggur á áframhaldandi rannsóknir
á ræktun olíujurta með styrk frá
Matvælasjóði og hefur nú þegar
lagt út frekari tilraunir á Hvanneyri
og fleiri tilraunir eru fyrirhugaðar á
þessu ári.
SPARIÐ ÁBURÐ MEÐ bogballe HÁTÆKNI DREIFURUNUM
Bogballe er með fullkomnum GPS stjórnbúnaði og viktarsellum sem skila hvað
mestri nákvæmi í dreingu áburðar sem þekkist. Auk þess er hann með sjálfvirkni
sem tryggir að þú ert ekki að tvíbera á sama ötinn né skilja eftir bletti. Áratuga
reynsla við Íslenskar aðstæður og einn endingarbesti dreifarinn á markaðnum.
Vænlegar niðurstöður úr rannsóknum á olíujurtum:
Hægt að vinna matarolíu úr
íslenskri vetrarnepju
– Áburðarskammtur að hausti skiptir meginmáli
Mikill sjáanlegur munur er á olíunni eftir áburðarskömmtum eins og sést. Þannig gaf það fræ sem mestan áburðarskammt fékk hreinustu olíuna (t.h.).
Myndin sýnir þroska plantna eftir áburðarskömmtum.
Afurðir fræsins (í miðjunni) eru olía (t.h.) og hrat (t.v.) en reiknað hlutfall er
um 33% olía á móti 67% af hrati. Mynd/ Sunna Skeggjadóttir
Sunna Skeggjadóttir á repjuakri.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Frá uppskeru í haust.