Bændablaðið - 24.02.2022, Page 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 19
Landbúnaðarháskóli Íslands
fékk nýlega styrki til kaups á
búveðurstöð og gasgreini. Tækin
munu efla rannsóknir skólans á sviði
jarðræktar og umhverfisvísinda.
Rannís úthlutaði samtals 537
milljónum króna úr Innviðasjóði í lok
janúar, þar af tæpum 48 milljónum til
tækjakaupa. Tveir styrkir komu í hlut
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Jarðræktarmiðstöð LbhÍ í
samstarfi við Veðurstofu Íslands
og Hvanneyrarbúið hlaut styrk
til uppsetningar á nýrri sjálfvirkri
veðurstöð á Hvanneyri. Mun hún auka
hagnýtingu rannsóknarmöguleika
skólans auk þess að bæta veðurspár
á Vesturlandi sem og vöktun veðurs
og loftslagsbreytinga á Íslandi.
„Veðurstöðin mun bæta rannsóknir
í jarðrækt umtalsvert, ekki aðeins með
betri spám heldur með fjölþættari
vöktun veðurs. Þar má til dæmis
nefna áhrif hinna ýmsu veðurþátta
á vetrarlifun fjölærra nytjajurta
eða þroskaferil einærra tegunda,“
segir Hrannar Smári Hilmarsson,
tilraunastjóri í jarðrækt hjá LbhÍ.
Heildarkostnaður við veðurstöðina
er áætlaður rúmar átta milljónir og
verður komin í gagnið á þessu ári.
Mæla áhrif hlýnunar
Þá fékkst styrkur til kaupa á
sérhæfðum færanlegum gasgreini til
mælinga á metani. Tækið, sem heitir
LI-7810 CH4/ CO2/H2O Trace Gas
Analyzer, mun nýtast vel við ýmsar
langtímarannsóknir sem nú þegar
eru í gangi við skólann, eins og áhrif
hlýnunar jarðvegs á hálendi Íslands
sem og í votlendisrannsóknum.
Að sögn Alejandro Salazar
Villegas, lektors hjá skólanum,
mun tækið gera rannsakendum
kleift að framkvæma fullkomnari
kolefnisflæðismælingar víðs vegar um
Ísland, meðal annars langtímaáhrif
hlýnunar á mismun andi tegundir
óraskaðra vistkerfa.
Kostnaður við kaup á tækinu
nemur tæpum 7 milljónum og vonast
Alejandro til að hægt verði að fá tækið
til landsins fyrir sumarið.
Stuðlar að betri skilningi á losun
frá landbúnaði
„Kaup á þessu mælitæki er liður í eflingu
náttúru- og umhverfisrannsókna
við Landbúnaðarháskólann þar
sem meðal annars eru skoðuð
áhrif landnýtingar og búfjárhalds á
loftslagið.
Í því sambandi má nefna að
samstarfsverkefni við umhverfis-,
orku- og loftslagsráðuneytið
kom nýlega að eflingu
rannsókna á iðragerjun og losun
gróðurhúsalofttegunda búfjár og
verið er að koma upp öðrum skyldum
mælitækjum sem eru sérhönnuð fyrir
mælingar á gróðurhúsalofttegundum
innahúss í því sambandi.
Efling á þessum sviðum
mun því veita okkur betri
skilning á raunverulegri losun
gróðurhúsalofttegunda vegna
landnýtingar og búfjárhalds á Íslandi
og stuðla að því að landbúnaðurinn
leiki lykilhlutverk þegar kemur
að skulbindingum Íslands um
að landið verði kolefnishlutlaust
árið 2040,“ segir í tilkynningu frá
Landbúnaðarháskólanum. /ghp
Við mælingar á áhrifum hlýnunar á óraskað vistkerfi nálægt Landmannahelli
þar sem nýr tækjabúnaður verður notaður. Mynd / ASV
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
SKOTBÓMULYFTARI AUSA T235H
EIGUM TIL Á LAGER
Hafðu samband við sölumenn
í síma 590 5100 eða á sala@klettur.is
Lyftigeta: 2.300 kg | Lyftihæð: 5 metrar
Fjórhjóladrif og fjórhjólastýri
Einstaklega gott útsýni
Euro festingar með hraðtengi að framan
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
Viðbótarfóður fyrir nautgripi,
hentar til að viðhalda góðri nyt,
heilbrigði og bæta efnainnihald.
DairyPilot
Steinefnafóður fyir nautgripi, hentar vel
sem viðbótarfæði fyrir kýr sem eru á beit og
til að gefa sem viðbótarfæði með grasi.
Somi-mg
Efling rannsókna með styrkjum til tækjakaupa:
Ný búveðurstöð
og gasgreinir
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
HILLTIP
VETRARBÚNAÐUR
____________________
SNJÓTENNUR, FJÖLPLÓGAR,
SALT - OG SANDDREIFARAR