Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202222
UTAN ÚR HEIMI
Áætlað hefur verið að byggja múr
til að girða af landamæri Póllands
og Hvíta-Rússlands, hamla fólki
þannig inn- eða útgöngu og hefur,
samkvæmt upplýsingum National
Geographic, sú vinnsla hafist.
Mun hann fara í gegnum einn
elsta og frumstæðasta skóg Evrópu,
Białowieża skóg sem liggur syðst
í Póllandi og teygir sig inn fyrir
landamæri Hvíta-Rússlands. Dýralíf
þar er afar blómlegt og telur allt frá 300
dýra vísindahjörð, villihesta og úlfa
auk fjölda annarra spendýrategunda
og vel yfir 100 fuglategunda.
Frá árinu 1921 hefur meginkjarni
skógarins verið friðaður mannvirkjum
og innan pólsku landamæranna eru
tæpir 5000 hektarar hans friðaðir auk
þess sem um 1.400 ferkílómetrar hans
eru nú á heimsminjaskrá UNESCO.
(Tilgangur heimsminjaskrár er að
varðveita staði sem teljast sérstaklega
merkilegir frá menningarlegu og/
eða náttúrufræðilegu sjónarmiði
og því taldir hluti af menningararfi
mannkyns.)
Bygging múrs hamlar heilbrigði
bæði náttúru og dýralífs
Mannréttinda- og náttúruverndarsamtök
á staðnum eru alfarið á móti vinnslu
múrsins en áætluð stærð hans eru 5,5 m
að hæð og nær 186 km leið, meðfram
eystri landamærum Póllands. Þó eru,
að sögn landamæragæslunnar, lög í
gildi sem bygging þessi mun brjóta
í bága við – líkt og er plægt verður í
gegnum viðkvæm vistkerfi staðarins,
þá sérstaklega skóglendi Białowieża,
sem mun hafa víðtæk áhrif.
Einnig ganga margar dýrategundir
óhindrað á milli Póllands og Hvíta-
Rússlands og myndi hindrun þess
hamla stofnum þeirra að halda sér
erfðafræðilega heilbrigðum. Má þar
nefna úlfa, gaupur, dádýr, vaxandi
stofn skógarbjarna auk annarra, þó sú
hugmynd að byggja múr hafi upphaf-
lega einungis verið til að halda streymi
flóttafólks í skefjum.
Ásókn flóttafólks frá
Hvíta-Rússlandi
En það er eins með þessa hindrun
og aðrar sem eru að rísa víðs vegar
um heiminn, þó þær haldi dýrunum
úti finnur mannfólkið alltaf leiðir til
þess að komast í gegn.
Áætlun um byggingu múrs á milli
landamæranna hófst í kjölfar neyðar-
ástands er ríkti við ásókn flóttafólks
frá Hvíta-Rússlandi árið 2021. Var
ástandið þannig skv. fréttasíðu BBC
um miðjan nóvember í fyrra – að
pólskar hersveitir beittu á hvern þann
er reyndi að komast inn í landið frá
Hvíta-Rússlandi, bæði táragasi og
vatnsaustri úr háþrýstidælum.
Deilurnar og ástandið við landa-
mærin hófst sumarið 2021 þegar
þúsundir manna flykktust til Hvíta-
Rússlands, með það loforð hvítrúss-
neskra stjórnvalda um aðstoð við
að komast til annarra staða innan
Evrópu. En – við komuna til Hvíta-
Rússlands var mörgum ekki veittur
aðgangur vegna ákvæða á löglega
vísu og þúsundir reyndu því að
komast yfir til Póllands, Lettlands
og Litháen.
Pólsk yfirvöld stöðvuðu oftar en
ekki innflytjendurna og neyddi það
aftur til Hvíta-Rússlands með þeim
afleiðingum að minnsta kosti tugur
farandfólks lést sökum ofkælingar,
vannæringar eða annarra orsaka.
Aðild núverandi forseta
Alexander Lukashenko, forseti
Hvíta-Rússlands, hefur nú viðurkennt
aðild sína að atganginum
og segir „mögulegt“
að hermenn ríkis-
ins hafi aðstoðað
flóttamenn við að
fara yfir landa-
mæri Póllands
– þó ekki til að
skapa ófrið.
Lukashenko hefur
verið ásakaður um að ógna stöð-
ugleika ESB með því að beina
flóttamönnum Hvíta-Rússlands yfir
til landanna Póllands, Lettlands og
Litháen, en að eigin sögn telur hann
það fráleita hugmynd og gefur þeirri
hugmynd engan hljómgrunn.
Hins vegar skal taka það fram
að átök milli Hvíta-Rússlands og
ESB blossuðu upp þegar Alexander
Lukashenko hélt fram sigri í forseta-
kosningunum í ágúst 2020 ... þrátt
fyrir skjalfestar fullyrðingar um að
kosningaúrslitin hefðu verið fölsuð.
Mikil mótmæli urðu vegna kosn-
inganna og er því Hvíta-Rússland nú
talið hafa kynt undir landamæraófrið
sem einhvers konar refsingu fyrir
mótmælin.
Möguleg afturköllun skóglendis
Białowieża af heimsminjaskrá
Allavega, þá taka afleiðingar þessa
ófriðar allverulegan toll á náttúrunni
í kring. Pólska ríkisstjórnin hefur
þegar reist tveggja metra háa, flug-
beitta girðingu meðfram landamær-
unum í gegnum Białowieża skóginn
og stóran hluta landamærasvæðanna í
kring. Fregnir herma að í girðingunni
hafi þegar fest og dáið dýr, þar á
meðal vísundar og elgir.
Bygging múrsins hins vegar hófst
við norðurbrún landamæra Póllands
og Hvíta-Rússlands, sem liggur að
Litháen, og teygir sig suður að Bug-
ánni, en á bökkum hennar stendur
girðingin enn sem komið er.
Ekki virðist sem stjórnvöld líti til
þess að Białowieża skógurinn, eins
og áður sagði, er á heimsminjaskrá
en samkvæmt skyldum þess titils
og lögfræðilegu áliti sérfræðinga
umhverfisréttar, skuli bæði land og
dýrategundir verndað og skógurinn í
heild ekki skaðaður – jafnvel sá hluti
sem liggur yfir til Hvíta-Rússlands.
Ef ekki er farið að lögum er
mögulegt að bygging múrsins geti
leitt til þess að UNESCO afturkallaði
stöðu skógarins á heimsminjaskrá,
sem væri mikið áfall fyrir landið
og svæðið – en aðeins einu sinni í
sögunni hefur náttúruminjasvæði
verið fjarlægt af lista UNESCO.
Eitt verndarsvæða heimsins
Þess þá heldur hefur pólski hluti
Białowieża skógarins einnig verið
útnefndur verndarsvæði Natura 2000
samkvæmt vistgerðatilskip-
un Evrópu sambandsins,
eins og ógrynni annarra
skóga er standa á
landamærum. (Natura
2000 eru þau verndar-
svæði sem ná yfir
hvað verðmætustu
tegundir og búsvæði
Evrópu – í sem mestri hættu – og
hefur þannig stærsta yfirlit verndar-
svæða í heiminum sem nær yfir öll 28
ESB löndin, bæði á landi og á sjó.)
Bygging múrsins sem hefur haf-
ist skýtur einnig skökku við skuld-
bindingar Póllands samkvæmt ESB-
lögum í þessu sambandi, en undir
þeim hatti ætti að finna aðra lausn.
Lög ESB sem bæði eru bindandi
og lúta háum sektum, kveða á um að
framkvæmdir sem geta hugsanlega
talist skaðlegar megi einungis heim-
ila ef sýnt er að hafi ekki í för með sér
augljóst umhverfistjón – sem á ber-
sýnilega ekki við í þessu tilviki, en
jafnvel með uppsetningu girðingar-
innar hafa pólsk stjórnvöld nú þegar
brotið í bága við lög er kemur að
vernduðu skóga- og dýralífi eins og
um ræðir.
Endalaus ófriður?
Ekki er ljóst hver niðurstaða þessara
múrbygginga verður en árátta stjórn-
valda á heimsvísu til þess að reisa
veggi milli ófriðarsvæða og skapa
þannig í raun fordæmalausa skipt-
ingu búsvæða sýnir að alþjóðlegt
samstarf er ekki upp á sitt besta.
Í stað þess að leysa að fullu þau
vandamál sem koma upp er tekið
til þess bragðs að reisa múr á milli.
Sem bæði leysir engin vandamál og
hefur oft stór og óafturkræf áhrif
á umhverfið.
Hvað varðar samskipti Póllands
svo við ESB hefur áður kastast
í kekki á milli þeirra. Á árunum
2016-2018 stóð pólska ríkisstjórnin
fyrir skógarhöggi trjáa í Białowieża-
skóginum er sýkt voru vegna ágangs
barkarbjöllu. Í kjölfar úrskurðaði
dómstóll ESB skógarhöggið ólög-
legt á grundvelli friðunar og var því
þá hætt.
Engu að síður tók pólska rík-
isstjórnin þá ákvörðun nú í ár að
hefja skógarhöggið á ný og eru
skógarhöggsmenn enn við þann
starfa í útjaðri Białowieża. /SP
Landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands:
Umhverfisslys í vinnslu
BYKO býður nú ýmsar stærðir steinbita
fyrir nautgripi á lager
Hvort sem verið er að endurnýja eldri fjós
eða byggja nýtt bjóðum við steinbita sem
henta fyrir öll verkefni.
Steinbitarnir eru framleiddir í vottuðum
verksmiðjum og uppfylla allar kröfur um
evrópustaðla.
Steinbitana er mögulegt að fá fyrir allt
að 6 tonna öxulþunga.
Við bjóðum einnig sérsniðin velferðagólf
fyrir steinbita.
GÓLF Í GRIPAHÚS
NAUTGRIPIR,
SVÍN OG SAUÐFÉ
Til á lager
bondi@byko.is
Barkarbjalla, hinn
fimm millimetra ógn-
valdur skóglendis.
Vísundur á rölti um Białowieża-skóginn. Mynd / Unsplash
Hermenn girða landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands af með allsherjar
víravirki sem dýr eru gjörn á að festast í ... Mynd / Alamy