Bændablaðið - 24.02.2022, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202224
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
√ Kardimommubær Freyvangsleikhússins verður
frumsýndur þann 4. mars nk. að öllu óbreyttu.
Upplýsingar um miðasölu er í síma 857-5598.
√ Spéverkið Ef væri ég gullfiskur í höndum Leikfélags
Reykholts verður sýnt í Aratungu er nær dregur aprílmánuði, en
aðstandendur og leikarar gefa sig alla þessa
dagana við æfingar og utanumhald.
√ Þrátt fyrir óvissu vegna Covid-19 stefnir Þjóðleikhúsið á
val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins í
vor. Þjóðleikhúsið hefur verið í samstarfi við BÍL í tæpa þrjá
áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju
áhugaleikfélaganna sem sérstaka
athygli vekur. Í kjölfarið hefur
viðkomandi félagi verið boðið að
sýna í Þjóðleikhúsinu. Covid-19
hefur komið í veg fyrir valið
síðastliðin tvö ár en að óbreyttu
er stefnt á að velja sýningu á vori
komanda.
Að þessu sinni verður hægt að sækja
um fyrir sýningar sem frumsýndar
voru leikárin 2020-21 og 2021-22 fram til loka
umsóknarfrests sem er 20. apríl 2022. Dómnefnd á vegum
Þjóðleikhússins mun velja þá sýningu sem nefndin telur
sérstaklega athyglinnar virði og verður valið samkvæmt venju
tilkynnt á aðalfundi BÍL sem verður haldinn í byrjun maí.
Umsóknarform fyrir Athyglisverðustu áhugaleiksýningu
ársins 2022 er tiltækt þegar félag skráir sig inn á vef
bandalagsins, www.leiklist.is.
Hvað er í gangi?!
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra
leikfélaga hefur starfað í nú-
verandi mynd síðan vorið 1997.
Ár hvert, nær undantekningar-
laust, 9 daga á ári, venjulega í júní,
hefur verið boðið upp á mikinn
fjölda námskeiða sem sótt hafa verið
af hátt á níunda hundrað nemenda
og afar vel látið af.
Nú í sumar verður Leiklistarskóli
Bíl haldinn að Reykjum í Hrútafirði,
dagana 18.–26. júní og boðið verður
upp á þrjú mismunandi námskeið.
Opnað verður fyrir skráningu þann
1. mars næstkomandi en hægt verður
að velja um þrenns konar námskeið.
Leiklist I þar sem kennarinn
mun verða Ólafur Ásgeirsson,
Leikstjórn II undir stjórn Jennýjar
Láru Arnþórsdóttur og að lokum
Sérnámskeið fyrir leikara undir
stjórn Ágústu Skúladóttur.
Nánari námskeiðslýsingar verða
birtar á vefsíðu bandalagsins, www.
bil.is innan tíðar.
/SP
Leiklistarskóli Bíl
Reykjaskóli, eða Héraðsskólinn að Reykjum í Hrútafirði, er skóli sem stendur
á Reykjatanga við austanverðan Hrútafjörð í Vestur-Húnavatnssýslu. Einnig
er þar staðsett Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna. Þar er því löngum
glatt á hjalla og auk Leiklistarskóla Bíl sækja tilvonandi fermingarbörn
skólann heim og fræðast um allt það sem skiptir mögulega máli er viðkemur
þeirra fermingarfræðslu. Mynd / Wikipedia
Leikfélag Kópavogs, sem stendur
við Funalind 2, hefur nú sextugasta
og fimmta leikár sitt – á því
stórafmæli í ár, en leikfélagið var
formlega stofnað í ársbyrjun árið
1957 þann 5. janúar.
Mikið var um grósku í
Kópavoginum á þessum árum –
bæði er kom að húsbyggingum og
uppbyggingu samfélags. Nokkrir
voru þeir sem langaði að kynda
undir leiklist og skemmtan og var
því boðað til formlegs stofnfundar
í barnaskóla bæjarins þar sem 46
fundarmenn gerðust stofnfélagar
Leikfélags Kópavogs.
Hin ýmsu hlutverk skólahússins
Er ákvörðun um stofnun áhuga-
leikfélags var tekin þurfti náttúrlega
að finna húsnæði. Í raun kom
á þessum tíma einungis eitt til
greina, en á vefsíðu Áhugaleikhúss
Kópavogs kemur eftirfarandi fram:
„... barnaskólahúsið við Digranesveg
hafði verið sannkallað fjölnotahús frá
því það var tekið í gagnið í byrjun árs
1949 – auk þess að vera menntasetur
og bæjarbókasafn voru þar m.a.
haldnir borgarafundir og dansiböll,
guðsþjónustur og heilmargt fleira. Er
þess náttúrlega skemmst að minnast
að stofnfundur leikfélagsins fór einmitt
þar fram. Og nú hafði hugvitssömum
bæjarmönnum sem sé dottið í hug að
dubba skólann upp sem leikhús.“
Og þar með var það þannig. Á
vefsíðunni kemur einnig fram að
„... Frímann Jónasson skólastjóri
var sennilega orðinn ýmsu vanur
þegar nýjasta hugdettan um hlutverk
skólahússins barst inn á borð.
Án frekari umsvifa var hinu glæ-
nýja leikfélagi fengnar rúmgóðar
skólastofur tímabundið til umráða,
tvær samliggjandi stofur urðu að leik-
sal og sú þriðja að aðstöðu leikenda.
Þá var fátt að vanbúnaði.“
Spanskflugan vekur hrifningu
Menn vildu hefja feril sinn á sviðinu
sem allra fyrst – leikstjóri því fenginn
hið snarasta, Ingibjörg Steinsdóttir
að nafni, og lá ekki á henni er kom
að þjálfun og yfirumsjón alls er að
leikhúsi sneri.
Ákveðið var þetta fyrsta ár að
takast á við hinn sprenghlægilega
gamanleik Spanskfluguna og þótti
frumsýning verksins – sem var
einungis sex vikum eftir stofnun
leikfélagsins – svo mikilfengleg að
frétt þess efnis var sett á baksíðu
Morgunblaðsins sem einnig fjallaði
um Spanskfluguna næstu daga á eftir.
Leikfélag Kópavogs hefur, ekki
ólíkt flestum áhugaleikhúsunum,
farið varhluta af faraldri Covid
sem hefur haft mikil neikvæð áhrif
á sýningar, æfingar og flest það er
kemur leikhúsum við.
Þó setti leikfélagið upp barna-
leikritið vinsæla, Rúa og Stúa eftir
þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn
Alexandersson og hóf sýningar á
því veturinn 2020. Þeim sýningum
þurfti að hætta í miðju kafi en þó var
þráðurinn tekinn upp aftur tæpu ári
síðar en þann 25. september 2021
glöddu þau leikhúsgesti að nýju með
þeim félögum.
Verk eftir Dario Fo í bígerð
Eins og sést hafa meðlimir leik-
hússins ekki látið deigan síga yfir
árin og hafa nú á prjónunum eitthvað
skemmtilegt verk eftir Dario Fo –
enn óákveðið – en eins og stendur var
samlestur að hefjast. Bændablaðið
fylgist grannt með og hrópar húrra
fyrir dugnaði þeirra og elju sem sjá
sér fært að taka sér slíkt fyrir hendur.
Sýningar Kópavogsleikhússins
verða að sjálfsögðu auglýstar þegar
þar að kemur og svo er vonandi að
sem flestir í þjóðfélaginu nái sér á
strik á næstu misserum. / SP
Sextugasta og fimmta leikárið:
Leikfélag Kópavogs
Þarna sjást leikararnir Erlendur Blandon í hlutverkum Klinke til vinstri og Magnús
Bæringur Kristinsson sem H. Meisel úr fyrsta verki Leikfélags Kópavogs,
gamanleiknum Spanskflugunni eftir þýsku leikarana Arnold og Bach. Mynd / Timarit.is