Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 25
CFORCE 520
Fjórgengis, eins cylindra, 495 cc, 35 hestöfl/
6200rpm. Innspýting, rafmagnstýri, spil,
dráttarkrókur. Hátt og lágt drif með læsingu.
12” álfelgur. Tveggja manna, traktorsskráð.
CFORCE 625
Fjórgengis, eins cylindra, 580 cc, 40 hestöfl/
6750rpm. Rafmagnstýri, bein innspýting, spil,
dráttarkrókur. Hátt og lágt drif með læsingu.
12” álfelgur, Tveggja manna. Traktorsskráð.
CFORCE 1000
Fjórgengis, tveggja cylindra, 963 cc, 80 hestöfl/7000rpm.
Rafmagnstýri, bein innspýting, spil, dráttarkrókur.
Hátt og lágt drif með læsingu. 14 tommu álfelgur
30 l. bensíntankur, tveggja manna. Traktorsskráð.
1.549.000,-
Án Vsk. 1.249.193,-
1.979.000,-
Án Vsk. 1.595.697,-
CFMOTO FJÓRHJÓL
2.689.000,-
Án Vsk. 2.168.548,-
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Stuðningsgreiðslur við
dýralæknaþjónustu á Vestfjörðum
Samningar lausir til umsóknar
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka
að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu á Vestfjörðum.
Markmiðið er að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna
þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum þar sem fjöldi
dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af skornum skammti,
sbr. 13. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.
Starfið felur í sér að gegna dýralæknisþjónustu fyrir búfé og gæludýr
á Vestfjörðum og að taka að sér tiltekin störf fyrir Matvælastofnun.
Gerðir verða tveir samningar, annars vegar þjónustusamningur og
hins vegar verkkaupasamningur, hvoru tveggja eru verktakasamningar
við Matvælastofnun. Almennri dýralæknaþjónustu tilheyrir einnig að
standa vaktir kvöld, nætur og helgidaga, en að tilteknu hámarki.
Auglýstur þjónustusamningur er gerður til fimm ára og gildir til
og með 1. júní 2027. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Matvælastofnunar www.mast.is.
Nánari upplýsingar um dýralæknaþjónustuna veitir Sigurborg Daðadóttir
yfirdýralæknir sigurborg.dadadottir@mast.is og í síma 530 4800.
Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið starf@mast.is merktar
“Dýralæknir – þjónustusvæði 3”. Umsóknarfrestur er til og með 3. mars
2022. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og afrit af prófskírteinum, ef við
á, ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar,
hvernig samstarfi umsækjandi hyggst koma á við aðra dýralækna og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Söngleikir eru vel þekkt tegund
leiklistar og vinsæl, en í þeim bland-
ast söngur, leikur og dans. Vanalega
fer tjáningin á sögu verksins því
að mestu í gegnum hreyfingar og
tónlistina, en samtöl á milli laga
töluð. Þó kemur fyrir að öll sam-
töl séu sungin – og á það meðal
annars við í söngleiknum fræga í
Les Misérables.
Hér á eftir verður litið yfir þrjá
vinsælustu söngleiki sem sýndir
hafa verið á sviði Broadway, sem og
þrjá óvinsælustu. Þó er alveg urmull
annarra sem mættu komast hér á blað.
En gjörið svo vel.
West Side Story, upphaflega sett
upp árið 1957, er að nokkru leyti
byggt á leikriti
Shakespeares
um Rómeó
og Júlíu, en
sagan gerist í
Bandaríkjunum
á sjötta ára
tugnum. Þar
takast á tveir
unglingahópar
af ólíkum
upp runa en
innan þeirra
blómstrar ástin
í leynum. Um
ræðir meðlimi
g e n g j a n n a
tveggja í
hverfinu Upper West Side í New
York – þar sem koma við sögu
ungmenni frá Púertó Ríkó. María
verður ástfangin af Tony sem er af
bandarískum uppruna. Í söngleiknum
eru mörg þekkt lög, svo sem „Maria“,
„America“ og „Tonight“.
Söngleikurinn Vesalingarnir eða
Les Misérables (1985) er byggður á
hinni frægu skáldsögu Victors Hugo
og á sér stað í París á fyrri hluta
19. aldar. Til sögunnar koma hinir
ýmsu karakterar, allt frá dreggjum
mannlífsins til hinna er telja sig
yfir þá hafnir. Aðalsöguhetjan,
Jean Valjean, hefur setið áralangt í
fangelsi en þarf nú að hafa fyrir því
að hefja nýtt líf úti í samfélaginu
en örlög hans flækjast miklum
umbrotum í samfélaginu. On My
Own er sjálfsagt best þekkta lagið
svo og Castle on a Cloud.
Pinball Wizard er lag sem nú flestir
þekkja enda afar vinsælt og gefið
út árið 1969 af hljómsveitinni The
Who – en söngvari hljómsveitarinnar,
Pete Townshead, samdi lagið. Pinball
Wizard er einnig eitt þekktasta lag
söngleikjarins eða rokkóperunnar
Tommy en hann fjallar um Tommy
sem elst upp við allsérstakar aðstæður.
Misnotkun á ýmsan hátt kemur við
sögu, eiturlyf og annað. Eftir að
faðir hans drepur elskhuga móður
hans ákveður móðirin að heilaþvo
Tommy og fá hann til að trúa því að
hann hafi bara alls ekki orðið vitni að
þeim ósköpum. Heilaþvotturinn tekst
svo vel að að skynfærin hætta að virka
og verður hann heyrnarlaus, mállaus
og blindur í kjölfarið – en treystir
í stað þess á
ímyndunarafl
sitt og innra
sálarlíf.
Önnur
þekkt
lög eru
The Acid
Queen,
Tommy Can
You Hear
Me, og I’m
Free.
Ef tekin eru
nokkur dæmi
þeirra söngleikja sem
þykja hvað verstir – þarna eru
um umdeildar skoðanir að
ræða – virðast eftirfarandi
vera efstir á baugi.
Carrie. Söngleikur
byggður á hrollvekju
eftir Stephen King árið 1988.
Útfærsla verksins þótti svo léleg
að þó um Broadway sýningu væri
að ræða var þeim hætt eftir fimm
skipti. Söngleikurinn fjallar um
menntaskólastúlkuna Carrie White,
frá ofstækistrúar og ofbeldisfullu
heimili, sem notar nýuppgötvaða
fjarskiptagetu sína til að hefna sín á
þeim sem kvelja hana. Gerð var önnur
tilraun til þess að koma söngleiknum
á svið árið 2012 en allt kom fyrir ekki
og var hann einnig skotinn í kaf, bæði
af almenningi og gagnrýnendum.
Höfundum söngleiksins vinsæla
Les Misérables þótti einhverra hluta
vegna ástæða til að reyna að toppa
sig og settu á svið söngleik sem var
kallaður Drottning sjóræningjanna
eða Pirate Queen. Sú hugmynd þeirra
fór ekki betur en svo að gagnrýnendur
kaffærðu verkið, bentu á líkindi
söngleikjanna tveggja auk þess sem
þeim þótti í raun allt benda til þess
að væri verið að reyna að endurskapa
fyrri velgengni. Var Drottning
sjóræningjanna þó á fjölunum í heila
tvo mánuði, eða frá apríl til júní árið
2007.
Að lokum, samkvæmt vefsíðu
nytix.com er sýningin Dance of
the Vampires (des. 2002–jan. 2003)
sú allra versta er nokkurn tíma
hefur verið sett upp. Var sýningin
svo skelfilega léleg á allan hátt að
aðstandendur síðunnar sáu sér ekki
annað fært en að setja upp aðra síðu
þar sem sýningin fær marga metra af
gagnrýni ein og sér. /SP
Söngleikjagleði
Söngleikurinn West Side Story var fyrst sýndur árið 1957.
Mynd / Wikipedia
Alhliða fasteignasala
Kynslóða- / eigendaskipti bújarða
Stofnun og skráning landspildna og lóða
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
GSM 896-9565
loftur@fasteignasalan.is
Fasteignasalan Bær · Austurvegi 26 · 800 Selfoss
Sími: 512 3400 · www.fasteignasalan.is