Bændablaðið - 24.02.2022, Side 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202226
LÍF&STARF
Lengi vel voru einungis þrjú
kúabú á Íslandi sem framleiddu
lífrænt vottaða mjólk; Búland í
Austur-Landeyjum, Neðri-Háls
í Kjós og Skaftholt í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Síðasttalda
búið hefur aðallega stundað
sjálfsþurftarbúskap fyrir bæinn,
en það er líka heimili fyrir fólk
með þroskahömlun. Hin hafa sett
mjólkina sína á markað í gegn-
um mjólkurvinnsluna Biobú, sem
sérhæfir sig í lífrænt vottuðum
mjólkurvörum. Fjórða búið, Eyði-
Sandvík rétt við Selfoss, bættist í
hópinn seint á síðasta ári en fram-
leiðsla þess jafngildir samanlögðu
innleggi hinna tveggja.
Sannkallaður fjölskyldubúskap-
ur er stundaður í Eyði-Sandvík.
Að honum standa hjónin Ólafur
Ingi Sigurmundsson og Anna
Gísladóttir ásamt börnum sínum,
þeim Rúnari Geir, Guðbirni Má,
Maríu Ósk og eiginmanni hennar,
Hlyni Sigurðssyni. Guðbjörn Már á
börnin Rannveigu Ósk, Önnu Björk
og Óskar Ólaf. María og Hlynur eiga
svo þrjá drengi; Ólaf Geir, Vilhjálm
Frey og Grétar Dag – en öll börnin
eru dugleg að hjálpa til í búskapnum.
Áhuginn vaknaði á námskeiði í
lífrænum landbúnaði
Fjölskyldan kaupir Eyði-Sandvík
1999, en þá voru þar 14 mjólkandi
kýr í 28 kúa fjósi með rörmjalta-
kerfi – og um 70 ær. Áður voru
þau með kúabúskap í Björnskoti í
Skeiðarhreppi og fluttu þaðan með
sér kýr og kvígur. Fyrstu verk þeirra
var að fjölga kúnum í 28 og stórefla
jarðræktina. Þegar þau kaupa jörðina
voru 23 hektarar í túnum en í dag eru
það 106 hektarar.
Árið 2007 var byggt nýtt lausa-
göngufjós með 72 legubásum og
jafnframt var tekin í notkun Lely
A3 mjaltaþjón. Heildar landstærð í
Eyði-Sandvík er yfir 255 hektarar.
Rúnar Geir er búfræðingurinn
á bænum og er til svara um þá
ákvörðun fjölskyldunnar að fara
leið lífrænnar mjólkurframleiðslu.
„Haustið 2010 hóf ég nám í
búfræði á Hvanneyri, þar sem ég
tók meðal annars áfangann Lífrænn
landbúnaður og þá byrjaði svona
áhuginn fyrir þessu fyrst. Eftir
það hófum við tilraunir með að sá
smára með þegar við endurræktuð-
um túnin.“
Almennt tekur aðlögun
tvö og hálft ár
Að sögn Rúnars tekur aðlögun að
lífrænt vottuðum kúabúskap almennt
tvö og hálft ár; tvö ár tekur að aðlaga
tún og þegar túnin eru orðin vottuð
lífræn – og þar með fóðurvottað – þá
er hægt að aðlaga bústofninn fyrir
mjólkurframleiðsluna. Það tekur sex
mánuði, en fyrir kjötframleiðslu eru
það 12 mánuðir.
„Árið 2017 tókum við þá
ákvörðun að hefja aðlögun á landi
en settum fyrst 19 hektara í aðlögun.
Við vildum sjá hvernig uppskeran
myndi verða við þessar breytingar
áður en hið endanlega skref væri
tekið, smátt og smátt bættum við
fleiri túnum í aðlögun ár hvert.
Í apríl 2021 fór bústofninn;
kýr, kvígur og hross, í aðlögun.
Fyrsta lífrænt vottaða mjólkin fór
frá okkur í október síðastliðinn og
getum við farið að selja lífrænt vott-
að kjöt í apríl.“
Áburðarmálin helsta áskorunin
Rúnar Geir segir Vottunarstofuna
Tún hafa verið mjög hjálplega við
að leiðbeina þeim í gegnum ferlið,
en hann hefur séð um alla pappírs-
vinnuna sem fylgt hefur ferlinu.
„Helsta fyrsta áskorunin var að
reyna að finna út úr áburðarmálum,
við nýtum alla þá kúamykju eins vel
og mögulegt er og erum aðeins farin
að fikra okkur áfram í moltugerð.
Smára er sáð í öll tún, en hann býr til
Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ - s. 787 9933
vpallar@vpallar.is - www.vpallar is
Mikið
úrval
Margar
stærðir
Olíu- og rafmagnshitablásarar
Vandaðar tröppur og stigar
Átsvæði kúnna og bygggjafakerfið. Myndir / Úr einkasafni
Fjölskyldan í Eyði-Sandvík.
Kálfar.
Árið 2007 var byggt nýtt lausagöngufjós með 72 legubásum.
Eyði-Sandvík komið með lífræna vottun til mjólkurframleiðslu:
Að stærstum hluta hugsjónastarf
sem gefur þó hærra afurðaverð
– Eiginlega engir gallar en útheimtir meiri vinnu sem felst aðallega í dreifingu á lífrænum áburði, endurræktun og sáðskiptaræktun