Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202228
LÍF&STARF
Dóra Guðbjört Jónsdóttir
gullsmiður er stúlkuleg í fasi, rétt
rúmlega níræð og starfar enn á
verkstæði sínu, Gullkistunni við
Frakkastíg. Sérgrein Dóru er
þjóðbúningasilfur en um árabil sá
hún um að klæða fjallkonurnar í
Reykjavík 17. júní.
Að auki má geta þess að árið 2011
var hún sæmd heiðurs merki hinn ar
ís lensku fálka orðu af þáverandi for
seta Íslands, Ólafi Ragn ari Gríms
syni, fyrir fram lag sitt til þjóðlegr ar
gull og silf ur smíði.
Sama ár hlaut hún þakkarviður
kenningu FKA – Félags kvenna í
atvinnurekstri „fyrir að hafa smíðað
mörg af dýrustu djásnum íslenskra
kvenna og örlæti hennar við að
miðla öðrum af þekkingu sinni“,
auk þess sem Iðnaðarmannafélagið
í Reykjavík veitti henni nafnbótina
„Iðnaðarmaður ársins 2011“ á
verðlaunahátíð sinni 5. febrúar.
Viðurkenninguna fékk hún fyrir
„ómetanlegt starf í þágu gullsmíða-
greinarinnar“.
Listafólk í ættir aftur
Verkstæði Gullkistunnar hefur verið
starfrækt frá árinu 1874. Þá var það
verkstæði Erlendar Magnússonar
gullsmiðs til 1909. Við af honum
tók Magnús Erlendsson gullsmiður,
sonur hans, er lærði hjá honum og
rak fyrirtækið til 1930.
Jón Dalmannsson gullsmiður,
faðir Dóru, keypti þá verkstæðið, sem
staðsett var í Þingholtsstræti 5. Móðir
hans, amma Dóru, var Steinunn
Stefánsdóttir, dóttir Stefáns gullsmiðs
Jónssonar frá Höll í Þverárhlíð.
Gullsmiðir og hagleiksfólk í
ættir aftur.
Verkstæðið flutti hann seinna að
Vitastíg 20 og seinna, árið 1938,
að Grettisgötu 6. Árið 1946 var
timburhúsið að Grettisgötu 6 flutt
inn í Kleppsholt og nýtt hús byggt,
en á meðan á því stóð var verk
stæðið starfrækt á Grettisgötu 2,
eða til ársins 1949. Eftir nokkurt
rót fluttist það svo í hús
Fatabúðarinnar árið 1952 í samfloti
með Sigurði Tómassyni úrsmið undir
nafninu skrautgripaverslun Jóns
Dalmannssonar.
Jón rak fyrirtækið til dauðadags
1970, en þá tók dóttir hans, Dóra
Guðbjört Jónsdóttir, við rekstrinum.
Dóra hafði, eftir almennt nám hér
lendis, lagt land undir fót til Svíþjóðar
og sótti þar tvítug að aldri nám í
gullsmíði við Kunstfackskólann í
Stokkhólmi eftir ársdvöl í lýðhá
skólanum Tärna þarlendis.
Samhliða gullsmíðanáminu
nam hún leturgröft á verkstæði
í Stokkhólmi, var í lýðháskóla í
Lunden í NorðurÞýskalandi 1953
54 og stundaði framhaldsnám í
gullsmíði við Vereinigte Gold und
Werkschule í Pforzheim í Þýskalandi
1954. Dóra starfaði að því loknu
samhliða föður sínum á verkstæði
hans, en tók að lokum, eins og áður
sagði, við rekstrinum árið 1970.
Nokkrum árum síðar, árið 1976,
fékk verkstæðið nafnið Gullkistan,
þá með aðsetur að Frakkastíg 10 þar
sem það er enn þann dag í dag.
Smiðjur bænda
Fyrirtækið hefur alltaf boðið upp
á fjölbreytt úrval af þjóðbúninga
silfri og unnið er meðal annars eftir
gömlum munstrum, sem Erlendur
Magnússon hafði safnað og mótin,
sem gerð voru fyrir sandsteypu,
fylgdu verkstæðinu. Enn er farið
eftir þessum gömlu munstrum, en
gömlu mótin eru nú komin í varð
veislu í Árbæjarsafni.
„Já, við vorum lengi með sand
steypu sem var notuð mikið hér á
landi. Flestir gullsmiðir voru nú bara
bændur. Lærðu gullsmíði, helst þeir
þar sem smiðjur voru á heimilum og
þeir gátu verið að steypa. Handlagnir
lærðu svo víravirki líka og gátu þá
farið að smíða búningasilfur, jöfn
um höndum víravirkið og steypt, það
voru bara til svo mörg mismunandi
munstur í þessu steypta auk þess sem
það var ódýrara.
Svo var tíminn nú ekki reiknaður í
gamla daga. Ég man þegar ég var að
læra, þá byrjuðu menn klukkan átta
á morgnana og unnu til sex og fram
eftir ef þurfti. Þá sátu menn bara til
miðnættis án þess að líta á klukkuna
og ætla sér tímakaup. Hver hlutur var
bara kláraður, annað en tíðkast í dag.
Þetta er alveg gjörbreytt.
En steypan var nokkuð erfið og
ekki allra að ná tökum á. Steypa
þurfti hluti, ekki í heilu lagi heldur
nokkrum hlutum og sumir náðu
aldrei almennilegu lagi á því. Sérstök
mót voru, er kölluð voru flöskur, og
sandurinn settur þar í. Þau mót eða
form voru í tvennu lagi, efri hlutinn
með götum og settur á hvolf niður á
plötu sem var undir en þar var stráð
sérstöku efni, svipuðu hveiti að áferð
svo ekki festist sandurinn við.
Svo var sandurinn hnoðaður, mátti
hvorki vera of rakur né of þurr, án
þess að menn væru með sérstök tæki
til mælingar. Þetta var sett í formin
þá hnoðað, bætt ofan á og sléttað, þá
var þetta sett á plötu og svo snúið við.
Eins var gert með formið sem kom á
móti – en næst var flaskan reist upp
og skrúfuð saman. Grafa þurfti frá
rennsli frá hverjum hlut svo loftið
færi út. Þannig steyptum við þetta.
Misjafnt var hversu margir hlutir
voru í hverju móti eða flösku og svo
var þetta auðvitað mjög heitt þegar
úr eldinum kom, þannig þá þurfti að
bíða eftir að þetta kólnaði og hægt
væri að ná því í sundur.
Tangir voru iðulega notaðar og
hlutirnir settir í vatn til kælingar, næst
sagaðir að utan og sorfnir – þannig
þetta var gríðarlega mikil vinna.
Svo var þetta pólerað, myllur,
nælur, hálsmen eða hvað það nú var.
Þetta var nú svona úti á landi.“
Sandsteypumaður með meiru
„Þegar gullsmiðirnir í Reykjavík
ætluðu svo að taka til höndum og
gera slíkt hið sama gekk það auð
vitað sæmilega, þeir gerðu þetta
ekki jafn oft og bændurnir og náðu
því síður almennilegum tökum á
öllu ferlinu.
En á þessum tíma sem pabbi
keypti verkstæðið, þá var svo mikið
atvinnuleysi að litli bróðir minn, þá
unglingur sem kunni í raun bara
sveitavinnu, var fenginn til að reyna
sig við gullsmíðina enda afskaplega
laginn. Pabbi fór semsagt að láta
hann hjálpa sér, meðal annars prófa
steypuna, og hann náði afskaplega
góðum tökum á henni.
En þá fóru aðrir gullsmiðir í
bænum til hans og báðu hann að
steypa fyrir þá líka!
Þannig á tímabili var þetta nánast
eins og steypustöð, gullsmíðaverk
stæðið hans pabba. Og varð svolítið
þekkt fyrir að vera steypustöðin
síðan þá og bróðir minn fékk titilinn
sandsteypumaður, sjálfsagt sá eini
hérlendis sem fékk iðnréttindi út á
þann stimpil!
Annars þurftu gullsmiðir að taka
sveinspróf og hann kunni náttúrlega
töluvert í gullsmíði, þegar hann
var ekki við steypu þá vann hann
við smíðina.“
Munstur fyrri alda enn í móð
„Munstrin sem við notuðum þá og
notum enn, eru mörg hundruð ára
gömul – frá miðöldum, krossfara
tíma, tímanum þegar englar, ljón og
þess háttar verur – María mey – voru
dýrkaðar og dáðar.
Í glugganum hjá mér núna (í búð
Gullkistunnar á Frakkastíg) má sjá
armband sem heitir Boðun Maríu,
en á því er sérstök mynd þess efnis.
Svo var nú annað afskaplega vinsælt
sem ég man eftir síðan á stríðsárun
um, þá var endalaust verið að smíða
armbandið Guðspjallamennirnir. Það
voru þeir Matteus, Markús, Lúkas og
Jóhannes sem voru voðalega móðins
þarna og guðspjöllin heita eftir.
Armband guðspjallamannanna
hafði svo myndir af erni, konungi
fuglanna, ljóni, konungi dýranna,
naut sem var skilgreint sem konungur
tömdu dýranna og svo engill sem var
yfir mannfólk. Það eru alltaf sögur
sem fylgja þessum munstrum öllum.
Ég man eftir öðru, ákaflega vin
sælu sem fólk spyr enn þá um, gam
alt munstur sem heitir Selstúlkan og
kom frá Noregi upphaflega. Það er þá
af stúlku sem stendur við tré, hefur
með sér hund og er að gæta geita.
Einnig sést í selkofann.“
Snúrulagt víravirki
„Ég á mér sjálf kannski ekki upp
áhaldshlut – það er erfitt að gera á
milli og breytilegt eftir árum. Mér
þykir alltaf gaman af gamla íslenska
hringavíravirkinu, til dæmis það sem
er snúrulögð silfurkúla með laufum.
Við gullsmiðir köllum þetta snúru
lagt, enda búum við til snúrurnar,
snúum þær saman úr tveimur vírum,
myndum hringi og leggjum þá
á smíðina.
Það er skemmtilegt að segja frá
því að nú í dag hefur áhugi fólks á
íslensku búningaskrautsmíðinni auk
ist gífurlega en ég var uggandi hér
fyrir 1015 árum. Þá lá við að enginn
hefði áhuga á að halda þessu við eða
læra. En nú eru breyttir tímar. Boðið
er upp á kynningu náms í víravirki
hér í Tækniskólanum en þar hef ég
verið með ýmis námskeið. Einhvern
veginn hefur áhuginn alveg hald
ist svo síðan. Fólk smíðar þá til
dæmis myllusett.
Og manni finnst alltaf gaman
þegar áhuginn kviknar á gamla
handverkinu og ég verð alltaf svo
fegin að upplifa að þetta er ekki alveg
að gleymast. Þetta er hluti af sögunni
okkar. Við megum ekki týna þessu.“
/SP
Dóra Jónsdóttir gullsmiður:
Flestir gullsmiðir voru bændur
Hluti armbands með munstri er ber
nafnið Boðun Maríu. Munstrið barst
hingað fyrir nokkrum hundruðum
ára og steyptu íslenskir gullsmiðir
það í sandsteypumót, en upphaflega
var það hluti af þjóðbúningasilfri.
Dóra Guðbjört í notalegu horni verkstæðis síns þar sem finna má ýmis áhöld, sum hver komin til ára sinna – jafnvel
á annað hundrað ár. Myndir / SP
Hér má sjá snúrulagt víravirki, kúlurnar eru gerðar úr steyptum helmingum
sem lagðir eru saman, vírar snúnir saman og lagðir á.