Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202236
S-grúppan í Finnlandi er
allt í öllu og talið er að hún
snerti daglegt líf yfir 80%
Finna, enda stendur S-ið
fyrir Finnland (Suomi). S-
grúppan er í eigu við-
skiptavina og saman-
stendur af neti samvinnu-
fyrirtækja á neytenda- og
þjónustumarkaði sem eru
með um 1.800 sölustaði í
Finnlandi. Innan hennar
eru samvinnufyriræki í 19 sjálfstæðum svæð-
iseiningum og saman eiga þau stoðþjónust-
una SOK. Fyrir utan fjölbreyttan verslunar-
rekstur er S-grúppan umsvifamikil í elds-
neytissölu, ferðaþjónustu og hótelrekstri í
Finnlandi og m.a. einnig í Rússlandi og Eist-
landi.
Merki S-hópsins í
Finnlandi
S-grúppan er allt
í öllu í Finnlandi
4 SAMVINNUHREYFINGIN 140 ÁRA FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Mondragon-samstæðan á Spáni er
ágætt dæmi um hve samvinnufélög
geta verið af mörgu tagi. Hún á rætur
sínar í Baskalandi í félagsstarfi kaþ-
ólska prestsins José Maria Arizm-
endiarrieta í smábænum Mondragón
þar sem hann stofnaði tækniskóla
með ungu fólki upp úr síðari heims-
styrjöld. Starfsmannasamvinnufélagið
var stofnað 1956 og fyrsta fram-
leiðsluvaran var vaxhitari. Það starfar
í samræmi við yfirlýst gildi Alþjóða-
sambands samvinnuhreyfinga um
mannúðlegt viðskiptasiðferði ásamt
þátttöku- og samstöðuviðhorfum.
Mondragon aðhyllist sjö grundvall-
aratriði samvinnustarfs, þar sem gert
er ráð fyrir opnu, lýðræðislegu og
vinnumiðuðu skipulagi, kapítalið er
þjónn en ekki herra og menntun,
launajafnrétti og alþjóðahyggja eru í
hávegum höfð.
Starfsmenn leggja með sér
Hjá Mondragon leggur hver starfs-
maður með sér 2,2 milljónir króna
sem þátttökugjald. Mondragon-
bankinn veitir oftast lán til þessa
gjalds. Mondragon rekur Eroski-
verslunarkeðjunna sem er í hópi
hinna tíu stærstu á Spáni. Starfsmenn
Mondragon nálgast 100 þúsund og
starfsemin er alþjóðleg í yfir 30 lönd-
um. Um 80% af veltunni kemur er-
lendis frá. Mondragon starfar í 257
fyrirtækjum og samvinnufélögum á
fjórum sviðum: fjármálastarfsemi,
framleiðsluiðnaði, smásöluverslun og
þekkingariðnaði. Mondragon hefur í
æ ríkari mæli einbeitt sér að hátækni
á síðari árum og rekur meðal annars
eigin háskóla.
Starfsmannafókusinn er skýr
Hannes Karlsson og Skúli Þorberg-
ur Skúlason hafa sem stjórnarmenn í
SíS kynnt sér rekstur Mondragon.
Þeir eru sammála um að áherslurnar
séu athyglisverðar. Félagið Mon-
dragon starfar til dæmis náið með
sveitarfélögum og félagasamtökum en
eingöngu ef það þjónar hagsmunum
og markmiðum þess. Þegar Mondra-
gon selur frá sér fyrirtæki þá setur
það skilyrði um að það starfi áfram á
svæðinu. Starfsmenn fá vinnu annað
hvort hjá hinu selda fyrirtæki eða inn-
an Mondragon-samstæðunnar.
Valkostur við kapítalísk fyrirtæki
Mondragon hefur verið hyllt sem
valkostur við kapítalísk fyrirtæki og
hagfræðingar eins og Bandaríkjamað-
urinn Richard D. Wolff hafa lofað fé-
lagið fyrir góð laun, áhrif starfsfólks á
stjórnun og kynjajafnrétti. Á hinn
bóginn telur bandaríski samfélgsrýn-
irinn Noam Chomsky að þótt
Mondragon sé valkostur við kapítal-
ismann sé samstæðan umvafin hinu
kapítalíska kerfi og það setji henni
skorður. Frá viðskiptajsónarmiði segir
prófessor Vicenc Navarro í Barcelona
að Mondragon takist vel að ná jafn-
vægi milli hagkvæmni annars vegar og
samstöðu og lýðræðis hins vegar.
Þrátt fyrir allt gangi vel að viðhalda
samvinnuandanum þótt Mondragon
hafi þurft að fást við mikinn vöxt
með því að ráða inn vinnuafl sem
ekki er meðal eigenda og hafi verið
seint að taka við sér varðandi jafnrétti
milli kynja.
Mondragon-samstæðan
í Baskalandi er valkostur
Íslenskir samvinnumenn fyrir framan höfuðstöðvarnar í Mondragón árið 2018 ásamt fulltrúa frá spænska sam-
vinnusambandinu. Frá vinstri Skúli Þorbergur Skúlason KSK, Stefán Guðjónsson Samkaupum, Hannes Karlsson
SÍS, Sigurður Árni Sigurðsson, fyrrum framkvæmdastjóri BÚR og starfsmaður SÍS í Lundúnum, Guðsteinn Ein-
arsson, fyrrum kaupfélagsstjóri KB og loks Daniel Martinez.
Starfsmannasamvinnufélag með starfsemi í yfir 30 löndum
Fyrirtækið starfar í
samræmi við yfirlýst
gildi Alþjóðasambands
samvinnuhreyfinga um
mannúðlegt viðskipta-
siðferði ásamt þátttöku-
og samstöðuviðhorfum.
Mondragon rekur meðal
annars Eroski-verslunar-
keðjuna sem er í hópi
hinna tíu stærstu á Spáni.
Í danska Coop,
sem er leiðandi
á neytenda-
markaði í Dan-
mörku, eru
félagslegir
eigendur 1,8
milljónir og
starfsfólk um
40 þúsund. Fé-
lagar geta bæði
tekið þátt í
ákvörðunum í
sambandi við
heimaverslun
sína og með því að kjósa landsstjórn Coop.
Margir á Íslandi kannast við verslunar-
keðjur Coop í Danmörku svo sem Kvickly,
SuperBrugsen og Dagli’Brugsen.
1,8 milljónir eigenda
í danska Coop
Margir Íslendingar kannast
við Brugsen.
Mynd/Nillerdk
Samvinnuhreyfingin á alþjóða-
vísu er hvað öflugust sem sam-
vinnubankar. Sem dæmi má
nefna stórbanka eins og Crédit
Agricole í Frakklandi sem bæði
er banki og tryggingafyrirtæki,
Rabobank í Hollandi, Migros og
C00P-banka í Sviss, SKOK-
bankann í Póllandi og Cooper-
ative Bank í Manchester á
Englandi. Í Asíu er meðal ann-
ars stórbankinn Noughyuop. S-
bankinn í Finnlandi var fyrsti
svokallaði stórmarkaðsbank-
inn þar en hann byggir meðal
annars á því að afgreiðslustaðir
hans eru í stórmörkuðum sam-
vinnhreyfingarinnar í Finnlandi.
Samvinnu-
bankar eru
víða öflugir
Stjórn Samvinnubanka Þróun-
arfélags kvenna í Mulukanoor
í Karimnagar, Indlandi, fyrir
utan höfuðstöðvarnar.
24 2