Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 39
Þriðjungur Banda-
ríkjamanna er í
samvinnufélögum
Það kemur
mörgum svolít-
ið á óvart en
staðreynd er
það samt að
samvinnuhreyfingin er í hvað
mestum vexti í Bandaríkjunum.
Þriðjungur Bandaríkjamanna er
félagi í samvinnufélögum og fé-
lögin eru um 65 þúsund af fjöl-
breyttasta tagi. Í Afríku og Asíu
er samvinnuhreyfing í örum
vexti og víða í Evrópu stendur
hún traustum fótum.
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 SAMVINNUHREYFINGIN 140 ÁRA 7
„Í grunninn er Kaupfélag Vestur-
Húnvetninga gamaldags kaupfélag
sem sinnir fyrst og fremst verlsun og
viðskiptum á sínu starfsvæði“, segir
Björn Líndal Traustason kaupfélags-
stjóri, sem tók við stjórninni í þessu
113 ára félagi fyrir rúmu ári síðan.
„Kaupfélagið hefur trausta fjárhags-
stöðu og hefur lengst af verið stýrt af
öryggi.“
Hann lítur á reksturinn sem hreint
samfélagslegt verkefni. Markmiðið sé
ekki að græða þótt reksturinn þurfi
að ganga upp, heldur að starfa að
verkefnum sem koma samfélaginu til
góða. Og samvinnufélagsformið
hentar ágætlega að mati Björns
Líndals.
Uppsveifla á Hvammstanga
Kaupfélagið hefur eftir mætti beitt
sér í þágu samfélagsins. Félagið hefur
til dæmis staðið fyrir útgerð og rak
sláturhús í áratugi, stóð fyrir stofnun
bakarís og ýmiskonar annarri starf-
semi. Nú á Kaupfélagið 50% hlut í
Slturhúsı́KVH ehf. á móti KS. Félag-
ið hefur auk þess með höndum vöru-
afgreiðslu fyrir Vörumiðlun. Auk
þess leigir KVH út húsnæði til Fæð-
ingarorlofssjóðs, Selaseturs, Vín-
búðar og hins rómaða veitingastaðar
Sjávarborgar. Starfsemi þessara aðila
hefur reynst vítamínsprauta á
Hvammstanga, þangað hafa flust
verkefni og vel menntað starfsfólk.
„Hér er yfir fjallvegi að fara ætli
fólk sér að eiga viðskipti við stórar
verslunarkeðjur. Það skiptir því
miklu að hafa verslun á svæðinu og
það er í uppsveiflu á okkar mæli-
kvarða. Við þurfum að sinna þörfum
íbúa Húnaþings vestra með dagvörur,
rekstrarvörur og ýmislegt annað. Það
má segja að þetta endurspeglist hjá
okkur í því að kjörbúðin er líka með
föt, leikföng, skó og búsáhöld og
annað slíkt, byggingarvöruverslunin
með sportvörur og heimilistæki og
búvöruverslunin ekki bara með bú-
vörur heldur líka timbur og hverslags
byggingarefni til dæmis.“
KVH gæti látið að sér kveða
Í Kaupfélagi Vestur-Hunvetninga
eru 383 félagsmenn í sex deildum
sem flestar bera gömlu hreppa nöfnin
Fremri-Torfastaðahreppsdeild, Ytri-
Torfastaðahreppsdeild, Þverár- og
Kirkjuhvammshreppadeild og Þor-
kelshólshreppsdeild auk Hrútafjarð-
ardeildar og Hvammstangadeildar.
Björn Líndal, sem áður stjórnaði
Sparisjóði Strandamanna og stýrði
Samtökum sveitarfélaga á Norður-
landi vestra, segir að framtíðarmögu-
leikar KVH kunni að felast í stækkun
viðskiptasvæðisins. „Kaupfélagið er
með góða eiginfjárstöðu og gæti látið
að sér kveða við frekari uppbyggingu
atvinnutækifæra á svæðinu.“
Kaupfélagið starfar í þágu samfélagsins
Björn Líndal Traustason: Það skiptir
miklu að hafa verslun á staðnum.
Í KVH eru 383 félagsmenn í sex deildum sem flestar bera gömlu hreppanöfnin
„Framtíðarmöguleikar
KVH gætu falist í stækk-
un félagssvæðisins.“
Höfuð-
stöðvar
KVH á
Hvamms-
tanga.
Kaupfélag Borgfirðinga er í dag versl-
unarfyrirtæki, sem rekur búrekstr-
ardeild og er hluthafi í Samkaupum
ásamt því að vera eignarhaldsfélag um
fasteignir félagsins. Búrekstrardeildin
hefur vaxið og dafnað undanfarin
misseri, þó svo að bændum fækki og
stóru búin kaupi í vaxandi mæli beint
frá þjónustuaðilum. „Fólk veit nú orð-
ið hvað KB stendur fyrir og í gegnum
netverslunina og auglýsingar á sem
höfða til bænda hefur okkur tekist að
skapa kaupfélaginu sérstöðu. Fólk
hefur gaman af því að koma inn í
verslunina sem er oft lýst sem gam-
aldags kaupfélagi þar sem úrvalið
kemur skemmtilega á óvart,“ segir
Margrét Katrín Guðnadóttir, sem
byrjaði hjá KB árið 2008 sem versl-
unarstjóri og hefur verið kaupfélags-
stjóri síðan 2019.
Dýralæknir í kaupfélagsrekstri
„Það var alls ekki ætlunin að fara
inn á þessa braut,“ segir Margrét
Katrín. „Fjölskylduaðstæðurnar voru
þannig árið 2008 að það var gott að
hafa fasta vinnu. Svo gekk þetta bara
vel og var mun skemmtilegra og fjöl-
breyttara en ég átti von á. Þegar ofan á
bættist að dýralæknirnn fékk bæði
dýra- og frjókornaofnæmi þá var skyn-
samlegra að hörfa úr sveitastarfinu.
Verslunarstjórastarfið vakti svo áhuga
minn á því að bæta við rekstrarþekk-
ingu og því fór ég í MBA-nám sem ég
lauk árið 2018. Samhliða kaupfélags-
stjórastarfinu rekur Margrét litla dýra-
læknastofu í Borgarnesi enda eru
dýralæknar til margs nytsamlegir eins
og dæmin sanna.“
Þegar skammt var liðið af þessari
öld sameinaði KB verslunarrekstur, í
matvöru, rekstri Samkaupa. Nú er
10,4% eignarhlutur KB í Samkaupum
ein stærsta og arðsamasta eign KB í
dag Ein Nettóverslun er rekin í Borg-
arnesi en Samkaup rekur 65 verslanir
á landsvísu. Búrekstr-
ardeildin og skrifstofur KB
eru í eigin húsnæði í Borg-
arnesi, en félagið á einnig
húsnæði Húsasmiðjunnar í
Borgarnesi og Krambúð-
arinnar á Akranesi. Borg-
arland ehf. sem er í eigu KB,
á um 80% af Hyrnutorgi við
Borgarbraut og svo Digra-
nesgötu 4 sem byggt var á
árunum 2018-2019 fyrir veit-
ingarekstur
Gengið á ýmsu í Covid
„Ætlunin var að grípa rútutraffík-
ina og byggja upp fyrsta flokks að-
stöðu fyrir stutt stopp. Food Station
varð til og hefur gengið á ýmsu vegna
Covid-19-faraldursins en nú hefur
reksturinn verið leigður út enda veit-
ingarekstur ekki kjarnastarfsemi KB
lengur. Ísbúðin Huppa er einnig rekin
í húsnæðinu. Allt er til reiðu fyrir
næstu uppsveiflu í ferðaþjónustunni.
Þá eru uppi áform um þemagarð á
vegum Latabæjar á lóð sem er laus við
hliðina og hefur verið eyrnamerkt
þessu verkefni. Verið er
að kynna þessi spenn-
andi áform og leita eftir
fjárfestum.“
Búrekstrardeild KB
hefur aukið vöruúrval
sitt til muna, lagt áherslu
á ráðgjöf við við-
skiptavini og opnað net-
verslun sem sendir vítt og
breitt um landið. Kálfa-
fóður, skrúfur og fuglahús, fatnaður,
gæludýravörur, veiðivörur, verkfæri og
leikföng sem tengjast landbúnaði eru
nokkur dæmi um úrvalið hjá KB sem
kemur mörgum á óvart.
Á daglegu máli bænda
„Við auglýsum á bændamáli í sam-
lesnum auglýsingum á RÚV og reyn-
um að finna kjarngóð íslensk orð og
orð sem að teljast sjaldgæf í daglegu
tali almennings,“ segir Margrét Katr-
ín, „og hikum ekki við auglýsa burð-
arslím, útvíkkunarstíla, amboð og
hálfvita, svo eitthvað sé nefnt. Þessi
orð eru ekki á hvers manns vörum
þótt þau séu í daglegu máli bænda, en
þau skapa okkur sérstöðu.“ Fyrir þá
sem ekki vita eru amboð handverkfæri
og hálfviti í máli bænda mun vera
blikkandi ljós á vinnuvél.
Í dag er staða KB góð þótt Covid-
tímabilið hafi reynt á og framtíðin er
björt fyrir Kaupfélag Borgfirðinga í
Borgarnesi sem er á vaxtarsvæði og
ýmis tækifæri í sjónmáli.
„Það má að sjálfsögðu hafa áhyggj-
ur af stöðu bænda í dag með þeim
hækkunum sem liggja fyrir á rekstr-
arvörum bænda og þeirri samþjöppun
sem að er að eiga sér stað til sveita.
Þátttaka á félagsfundum deilda mætti
líka vera betri, líkt og í öðru fé-
lagsstarfi á Íslandi,“ segir Margrét
Katrín. „Á hinn bóginn er aðalfundur
KB jafnan vel sóttur af fulltrúum allra
15 deilda kaupfélagsins, þar sem
stefna félagsins er mótuð og stjórn
þess kjörin. Félagið var stofnað árið
1904 Félagsmenn eru nú 1854 og
njóta þeir m.a. afsláttarkjara í Sam-
kaupum og í búrekstrardeildinni.“
Tekist hefur að skapa KB
sérstöðu í vöruúrvali
Mynd/GunnhildurLind
Merki Kaupfélags
Borgfirðinga
Aðalfundur KB er jafnan vel sóttur af fulltrúum allra 15 deilda kaupfélagsins
„Við hikum ekki við að
auglýsa amboð og hálf-
vita“, segir Margrét
Katrín Guðnadóttir,
kaupfélagsstjóri KB.
Margrét Katrín Guðna-
dóttir: Framtíðin er björt
fyrir Kaupfélag Borgfirð-
inga í Borgarnesi sem er
á vaxtarsvæði og ýmis
tækifæri í sjónmáli.
Euro Coop er
öflugasta smá-
söluafl Evrópu
þar sem sam-
vinnuhreyf-
ingar í 20 Evrópulöndum koma
saman. Innan vébanda þess eru
7 þúsund samvinnufyritæki, 94
þúsund sölustaðir, 750 þúsund
starfsmenn, 30 milljónir félags-
manna. Samanlögð ársvelta
innan Euro Coop er um 10 þús-
und milljarðar króna.
Euro-Coop
sterkast í Evrópu
Samvinnuhreyf-
ingin á alþjóða-
vettvangi er
miklu sterkari
en fólk almennt
gerir sér grein
fyrir á Íslandi. Þetta á við
bæði um verslunar- og þjón-
usturekstur sem og ýmiskon-
ar framleiðslu- og starfs-
mannafélög. Á heimsvísu eru
um 3 milljónir virkra sam-
vinnufélaga með um milljarð
félagsmanna. Flest eru þau í
Asíulöndum þar sem sam-
vinnuformið er mjög algengt í
stóru sem smáu. Í þremur
Evrópulöndum, Hollandi,
Frakklandi og Finnlandi, er
hlutur samvinnuhreyfingar-
innar í vergri landsfram-
leiðslu milli 10 og 20%. Hið
sama gildir á Nýja-Sjálandi.
3 milljónir virkra
samvinnufélaga í
heiminum
24