Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 41
LÍF&STARF Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
Árlegri vetrarmælingu Hafrann-
sóknastofnunar á loðnu er
lokið og samkvæmt henni er
hrygningarstofn loðnu metinn
904 þúsund tonn en heildarstærð
stofnsins 1.104 þúsund tonn.
Mælingarnar fóru fram
dagana 19. janúar til 2.
febrúar, með bergmálsaðferð
á rannsóknaskipunum Árna
Friðrikssyni og Bjarna
Sæmundssyni, á göngu loðnu
austur eftir norðurmiðum og suður
með kantinum austan lands. Í
leiðangrinum náðust tvær óháðar
mælingar á stofninum.
Stofnstærðin 1.104 þúsund tonn
Samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu Hafrannsóknastofnunar
segir að þegar tekið er tillit til afla
fram að leiðangrinum sé stofnstærðin
1.104 þúsund tonn. Í samanburði var
hrygningarstofninn í haustleiðangri
2021 metinn 1.833 þúsund tonn, sem
leiddi til að ráðlagt var að heildarafli
var 904 þúsund tonn.
Ráðgjöf í samræmi við aflareglu
Samkvæmt lögum skal lokaráðgjöf
vera í samræmi við aflareglu sem er
byggð á tiltækum stofnmælingum.
Þegar aflareglunni er beitt með 1.833
og 1.104 tonn sem upphafsstofn
hermana skilaði það 800 þúsund
tonna ráðgjöf á yfirstandandi vertíð
sem er 100 þúsund tonnum minna
en fyrri ráðgjöf.
Hafrannsóknastofnun lítur svo á
að mikilvægt sé að gera grein fyrir
þessum upplýsingum tafarlaust.
Hafís hindraði mælingar
Hafís norðvestan við Ísland kom
í veg fyrir mælingar á svæði sem
loðnu hefur mögulega verið að finna
á og telur Hafrannsóknastofnun
nauðsynlegt að kanna það svæði
frekar áður en endanleg lokaráðgjöf
verður gefin út.
Leiði sá leiðangur hins vegar ekki
til hækkunar á mati mun lokaráðgjöf
væntanlega verða um 800 þús. tonn.
/VH
Loðna, Mallotus villosus, er smávax-
inn uppsjávarfiskur sem heldur sig í
torfum og algeng í köldum og kald-
tempruðum sjó á norðurhveli jarðar.
Mynd / seafoodfromcanada.ca
Loðnumælingar Hafrannsóknastofnunar:
Ráðlögð veiði væntanlega
800 þúsund tonn
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19