Bændablaðið - 24.02.2022, Síða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 43
15% AFSLÁTTUR Í FORSÖLU
8.542 kr. pr./bréf
9.324 kr. pr./bréf
BETRI ÁRANGUR MEÐ
JOSILAC íblöndunarefni
Öll verð eru án vsk.
Verð miðast við bréf (150g)
Eykur fóðurgæði Betri inntaka Meiri meltanleiki Heilbrigðari kýr Betri afkoma
Gildir til 31. mars
JOSILAC Ferm - 9.324 kr. - 15% afsl. 7.925 kr.
JOSILAC Classic - 8.542 kr. - 15% afsl. 7.260 kr.
NYTJAJURTIR
Holtasóleyin okkar Íslendinga
og þjóðarblóm síðan árið 2004 er
ein einkennisjurta norðurslóða,
en hana má finna í N-Bretlandi,
Írlandi, Skandinavíu – auk þess að
blómstra í fjalllendi í Frakklandi og
Þýskalandi.
Samkvæmt síðu Náttúrufræði-
stofnunar Íslands kemur fram að hún
sé talin góð við ýmsum kvillum, svo
sem eins og veilu í hjarta, bólgum
og sárum í tannholdi en af henni
megi gera te. Gott sé að bæta þá við
blóðbergi og vallhumli en blóðberg
er gott við hósta, öngviti og svima
svo eitthvað sé nefnt og vallhumall
lækkar blóðþrýsting og ýmsa kvilla
er fylgja breytingaskeiðinu.
Þess má geta að vallhumall
var reyndar þekktur sem
hrukkubani hér á öldum
áður – en talið var að
andlitsþvottur úr seyði hans
eyddi hrukkum ...
Reykingar ávallt móðins
Hins vegar það sem
veldur hrukkum eru
nú oft reykingar. Má
ætla að hinir sömu og
stunduðu slíkt hér á árum áður
hafi haft það bak við eyrað að tína
vallhumal við hin helstu tækifæri.
Einhver snillingurinn tók nefnilega
til þess bragðs að drýgja reyktóbak sitt
með muldum blöðum holtasóleyjar.
Þetta varð móðins og neðstu laufblöð
blómsins, rjúpnalaufin svokölluðu,
voru semsé áður þurrkuð og mulin
til að drýgja reyktóbak. Tíndu menn
þá gjarnan blöðin er farið var í
„plöntuhaga“ og sóleyjadrýgt tóbak
kallað mulningur.
Nú á tímum reykja menn enn
ýmislegt, misgáfulegt reyndar, en á
vefsíðu www.modernfarmer.com má
finna ýmsar jurtir, flestar þó erlendar,
sem hægt er að vefja sér í rettu. Hér
á eftir verður nokkur dæmi tekin þess
efnis – en lesendur beðnir að fara að
öllu með gát enda reykingar skaðlegar
og ekki endilega til góðs að öllu leyti.
Lavender (Lavandula)
Efnasambönd lavenderblóma hafa
löngum verið þekkt fyrir að draga úr
streitu, kvíða og auka svefngæði, til
dæmis við notkun lavenderolíu eða
í te. Hið sama er upp á teningnum
þegar jurtin er þurrkuð og reykt.
Blómakeimur fyllir lungun við
innöndun og veitir slökun auk þess
að ef reykt er reglulega – dregur úr
streitu, kvíða, lækkar blóðþrýsting og
örvar svefn.
St. John’s Wort eða Jóhannesarjurt
(Hypericum perforatum)
Jóhannesarjurt er kunnug sem
náttúrulækningajurt en hún hefur,
í læknisfræðilegum tilgangi,
meðal annars verið notuð gegn
taugaröskunum og léttvægum kvillum
sálarinnar. Vafin og reykt virkar þessi
planta sem róandi lyf sem dregur úr
spennu um allan líkamann og bragðið
er örlítið sætt og beiskt.
Kamilla (Chamaemelum nobile L.)
Líkt og lavenderblómið er jurt
kamillunnar þekkt fyrir róandi áhrif
og er hún er reykt dregur hún úr
spennu, veitir krampastillandi áhrif
auk þess að draga úr tilfinningalegu
uppnámi og kvíða. Nefnt hefur
verið að neysla hennar á þennan hátt
auðveldi reykingamönnum að færa
sig frá tóbaksneyslu þegar verið er að
reyna að hætta að reykja.
Mynta (Mentha spp.)
Blöð myntunnar eru gjarnan
notuð til þess að blanda við aðrar
jurtir sem reyktar eru, þá til þess að
milda innöndun ef svo má að orði
komast. Ef reykt ein og sér bætir
hún blóðrásina, endurnærir huga og
auðveldar öndun með því að hreinsa
lungu og öndunarfæri.
Ólympíukyndill
(Verbascum olympicum)
Ólympíukyndillinn finnst nú víða
hérlendis en líkt og myntan auðveldar
hann öndun auk þess að milda eymsli
í hálsi, er slakandi og róandi og því
góður gegn kvíða.
Jurtir af körfublómaætt
þekkt kaffibót
Nú, hjá þeim sem una sér við reykingar
hefur sá vani þekkst að drekka
kaffi þeim samhliða. Sem tilbrigði
og reyndar á tímum þurrðar, hafa
Íslendingar og reyndar aðrar þjóðir,
þurrkað fíflarót, mulið og drýgt með
því kaffið. Jurtir af körfublómaætt,
þá helst túnfífillinn er þekkt kaffibót,
en erlendis það sem kallast með réttu
kaffifífill eða Cichorium intybus. Víðs
vegar um heiminn er hefð fyrir því að
rista, baka og mala ræturnar sem eru
þá notaðar sem kaffibætir og kallast
Chicory. Í Frakklandi er til sérstakur
kaffidrykkur sem er að rúmum
þriðjungi það sem kallast Ricoré
sem inniheldur þá rótarmulning.
Einnig þekkist slíkur mulningur sem
kaffiviðbót blandað í indverskt síukaffi
og í hlutum Suðaustur-Asíu, Suður-
Afríku og suðurhluta Bandaríkjanna,
sérstaklega í New Orleans.
Í efnahagskreppu þriðja áratugarins
og seinni heimsstyrjöld meginlands
Evrópu var Chicory þetta nýtt til hins
ýtrasta í kaffidrykki. Meira að segja
á árununum 1976-79 í austurþýsku
kaffikreppunni var þess til viðbótar
þurrkaðar og malaðar sykurrófur
og rúgur og því blandað saman við
kaffitíund eða svo og úr því varð
drykkur kallaður Mischkaffee eða
Kaffiblanda.
Sveppakaffi nútímans
Nú á dögum hefur hins vegar
komist í tísku svokallað sveppakaffi
sem þykir vera hinn sérlegasti drykkur
vellíðunar og einbeitingar og stuðla
að ótakmarkaðri heilastarfsemi.
Samsetning þess var gerð eftir rannsókn
jurta- og sveppasérfræðings nokkurs
sem setti saman blöndu venjulegs
kaffis og dufts lækningasveppa á
borð við Chaga, Cordycepls, Reishi,
Lions mane og Turkey tail. Kaffi þetta,
undir nafninu Four Sigmatic, má að
sjálfsögðu finna hérlendis í búðum
á borð við þær er standa fyrir andliti
heilbrigðis og hreysti.
Rétt er að geta þess að ekki þykir
góð hugmynd að tína sveppi til neyslu
án þess að vita áhrif þeirra og skiptir
þá litlu hvort hugmyndin er að reykja
afurðina eða nýta sem kaffimulning.
/SP
Kaffibætir & Mulningur