Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202244
LÍF&STARF
Yfirbyggt reiðgerði sem reist var í
hesthúsahverfinu Breiðholti ofan
Akureyrar hefur vakið mikla
lukku meðal þeirra sem þar
halda hross. Hestamannafélagið
Léttir kostaði smíði gerðisins,
efniskostnaður var um 7 milljónir
króna, en gerðið er um 200
fermetrar að stærð.
Sjálfboðaliðar í Létti lögðu fram
mikla vinnu við smíðina. Öllum
félagsmönnum býðst að nýta gerðið
endurgjaldslaust og hafa hestamenn
óspart nýtt sér þennan möguleika
en fyrir tilkomu þess var engin
aðstaða innandyra fyrir hestamenn
í hverfinu.
„Það er mikil og almenn
ánægja með reiðgerðið og má
segja að andinn í hverfinu hafi
lyfst í hæstu hæðir,“ segir Svanur
Stefánsson, sem sæti á í stjórn
Hestamannafélagsins Léttis á
Akureyri.
„Fólk var með hross sín í eigin
girðingum á klaka og svelli og
það er alls ekki boðleg aðstaða
til að þjálfa hross. Þetta reiðgerði
hefur gert heilmikið fyrir hverfið
og óhætt að fullyrða að það er
vel nýtt. Nánast alltaf er einhver
að nota það frá morgni fram eftir
kvöldi og aldursbilið er breitt, hér
eru krakkar niður í 9 ára og fólk
komið yfir sjötugt.“
Breiðholt er annað af tveimur
hesthúsahverfum á Akureyri og það
eldra. Þar eru um 100 hesthús og
mikill fjöldi hesta. Það er fullbyggt
og þegar svo var komið var annað
hverfi byggt upp í Lögmannshlíð.
Þar eru nú öll ný hesthús byggð og
þar er reiðhöllin staðsett og mikið
nýtt. Svanur segir að Breiðhyltingar
noti reiðhöllina vel, en það kosti
smá bras að fara yfir, með hross í
kerru eða ríðandi ef þau eru tamin.
„Þetta reiðgerði gerir mikið fyrir þá
sem eru með hross í tamningu og
þjálfun,“ segir hann, en reiðgerðið
var tekið í notkun í lok síðastliðins
árs.
Góður kostur
Svanur segir að ýmsar vanga
veltur um inniaðstöðu á
Breiðholtssvæðinu hafi verið meðal
hestamanna áður en reiðgerðið var
reist. Rætt hefði verið um að byggja
reiðskemmu sem vissulega hefði
verið góður kostur en dýrari.
Segir Svanur að yfirbyggða
reiðgerðið hafi orðið fyrir valinu
en ekki þarf að greiða af slíku gerði
gatnagerðargjöld og fasteignagjöld
og því umtalsvert ódýrara í rekstri
en skemma. „Menn voru líka að
hugsa um að þetta kæmi ekki um of
við pyngju hestamannafélagsins,“
segir Svanur og telur að reiðgerðið
sé góður kostur.
Allir vildu taka þátt
Hafist var handa við að reisa gerðið
síðsumars og sá félagið um að greiða
efniskostnað, en fjöldi sjálfboðaliða
tók þátt í byggingaframkvæmdum.
„Það voru allir boðnir og búnir
að leggja hönd á plóg, sáu fyrir
sér að nýta gerðið þegar það væri
komið upp og vildu eiga sinn þátt
í verkinu. Þeir sem ekki lögðu til
vinnu með hamar og sög mættu með
kaffi og kleinur.
Stemningin var þannig að allir
vildu vera með og taka þátt. Það var
svo gaman að sjá hvað mikil gleði
fylgdi þessu verkefni, menn voru
ánægðir með að hittast og vinna
að einhverju uppbyggilegu,“ segir
Svanur. „Þetta verkefni þjappaði
mönnum saman.“
Nánast alltaf í notkun
Seglið var sett yfir skömmu fyrir
jól og þá var mikil og góð mæting,
enda verkefnið á lokametrum.
„Við náðum að klára þetta verk
efni og opna reiðgerðið skömmu
fyrir áramót og það er engu logið
þegar ég segi að gerðið er nánast
alltaf í notkun.
Það er mikill munur yfir
harðasta veturinn þegar allt er á
kafi í snjó eða svell og klaki yfir
að geta komist aðeins inn fyrir
á þurrt og gott undirlag. Þetta
skiptir okkur sem erum með hross
í Breiðholtshverfi miklu máli og
hefur jákvæð áhrif á stemninguna,“
segir hann. /MÞÞ
Hestamannafélagið Léttir á Akureyri:
Yfirbyggt reiðgerði tekið í notkun
við almenna ánægju
Yfirbyggða reiðgerðið í Breiðholti hefur slegið í gegn, það er nánast í notkun
frá morgni fram á kvöld alla daga.
Svanur Stefánsson í stjórn Hestamannafélagsins Léttis og Blær frá Sigríðar-
stöðum. Að baki þeim sést í reiðgerðið sem slegið hefur í gegn meðal þeirra
sem halda hross í hesthúsahverfinu Breiðholti ofan Akureyrar. Myndir / MÞÞ
Íbúðarhúsnæði hefur verið byggt
af kappi í Húnaþingi vestra
undanfarin ár, en þrátt fyrir það er
mikil uppsöfnuð þörf þegar kemur
að framboði á íbúðarhúsnæði í
sveitarfélaginu. Framboð af lóðum
er gott þó svo mörgum lóðum hafi
verið úthlutað.
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir
sveitarstjóri segir að vegna mikillar
eftirspurnar eftir íbúðarhúsnæði
nú hafi sveitarstjórn samþykkt
tímabundna heimild til að fella
niður gatnagerðargjöld á níu lóðum
á Hvammstanga og tveimur á
Laugabakka. Íbúum í Húnaþingi
vestra hafi fjölgað stöðugt síðustu
ár og bendi allt til að framhald verði
þar á. Næg vinna sé í sveitarfélaginu
en tímabundinn húsnæðisskortur geti
haft áhrif.
Uppsöfnuð húsnæðisþörf
Nýverið samþykkti Húnaþing
vestra húsnæðisáætlun fyrir
sveitarfélagið, en hlutverk slíkra
áætlana er að draga upp mynd af
því hver staða húsnæðismála sé í
sveitarfélögum, greina framboð
og eftirspurn eftir margvíslegum
húsnæðisformum og setja fram áætlun
um á hvern hátt sveitarfélagið ætlar að
mæta húsnæðisþörf, bæði til lengri og
skemmri tíma.
Mikil uppsöfnuð húsnæðisþörf
er í Húnaþingi vestra og kemur
hún ekki fram í áætluninni, að sögn
Ragnheiðar Jónu. Gert er ráð fyrir
að uppsöfnuð þörf sé um það bil
sex íbúðir umfram áætlunina. Fram
kemur í áætluninni að 13 íbúðir eru
í byggingu í sveitarfélaginu, þær eru
bæði á Hvammstanga og í sveitunum.
Áframhaldandi uppbygging er fram
undan og stefnt er á að byggja fjórar
íbúðir í samvinnu við Bríet á árinu
2022. „Miðað við núverandi þörf mun
það ekki nægja til að koma á móts við
hana,“ segir hún.
Nú í upphafi árs úthlutaði
byggðarráð fjórum lóðum undir
íbúðarhúsnæði og fyrr í vetur
var þremur lóðum úthlutað undir
íbúðarhúsnæði svo óhætt er að segja að
uppbyggingin haldi áfram á þessu ári.
Byggt við grunnskólann
Fjölgun fólks í sveitarfélaginu kallar
á sterkari innviði að sögn Ragnheiðar
Jónu sem nefnir að nú standi yfir
framkvæmdir við Grunnskóla
Húnaþings vestra þar sem verið er
að byggja rúmlega 1200 fermetra
viðbyggingu.
Hluti byggingarinnar var tekinn í
notkun á liðnu hausti, en þar er eldhús,
fjölnota salur, frístund, skrifstofur og
Tónlistarskóli Húnaþings vestra. Lokið
verður við bygginguna á komandi
Húsnæðisáætlun fyrir Húnaþing vestra samþykkt:
Næg vinna í sveitarfélaginu
en vantar fleiri íbúðir
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,
sveitarstjóri í Húnaþingi vestra.
Alls eru 13 íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu og þær eru bæði á Hvammstanga og í sveitunum. Myndir / Aðsendar