Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202248
LESENDARÝNI
Framleiðslukostnaður og verðmæti blóðs
Stóðbændur, sem halda hross
til blóðframleiðslu, standa nú í
réttinda- og kjarabaráttu fyrir
sig og sína og hafa mátt verjast
á mörgum vígstöðvum. En nú er
svo komið að við hyggjumst sækja
fram. Í síðasta Bændablaði var
sagt frá því að flestir stóðbændur
hafa fyrir skemmstu sagt upp
samningum við líftæknifyrirtækið
Ísteka, sem kaupir afurðina af
bændum.
Þó svo að þessi búgrein hafi
verið stunduð hér á landi í 40 ár,
hefur hún hlotið litla athygli og
rekstrarforsendur blóðframleiðslu
sjaldan verið til umfjöllunar. Jafnvel
hefur verið litið á starfsemina sem
þægilega aukagetu með öðrum
búgreinum og framleiðslukostnaði
því enginn gaumur gefinn. Slíkar
hugmyndir eru löngu úreltar.
Blóð tekið úr merum
sem voru til hvort sem var
Á fyrsta tímaskeiði blóðframleiðslu
hér á landi, var gengið í stóð sem
voru til hvort sem var. Þetta voru
samtals nokkur hundruð merar á
þeim svæðum sem best gefast til að
halda hross án mikils tilkostnaðar.
Sá tími er löngu liðinn.
Blóð framleitt á bæjum þar sem
fólk býr hvort sem er
Þegar umsvifin í blóðinu jukust
og kaupandinn vildi fá meira blóð,
þurfti að fjölga hrossum. Annað
tímaskeið í blóðframleiðslu hófst.
Menn halda hross sérstaklega til
blóðframleiðslu, gjarnan samhliða
öðrum búskap. En þetta tímaskeið
er líka á enda. Allar greinar
landbúnaðar standa nú frammi
fyrir miklum erfiðleikum vegna
verðhækkana á aðföngum. Það
bætist ofan á margra ára og áratuga
samdrátt í sveitum landsins, þar
sem mannfækkun og byggðaröskun
hefur þegar höggvið skörð í mörg
byggðarlög, þjónusta dregst saman
og ekkert lát virðist vera á þessari
þróun.
Búseta á einstökum bæjum
byggir á hrossabúskap til
blóðframleiðslu
Þriðja tímaskeið í blóðframleiðslu
er að hefjast. Þeir sem vilja kaupa
íslenskt hryssublóð í framtíðinni
geta ekki gert ráð fyrir því að
hundruð manna búi sveitabúi og
haldi hryssur til blóðframleiðslu
sem aukagetu við annan búskap.
Þeir geta ekki gert ráð fyrir því
að menn afli sér tekna samhliða
hrossabúskap með annarri vinnu
á svæðum þar sem ekkert slíkt er
að hafa. Hrossabúskapurinn verður
einfaldlega að standa undir sér ef
einhver framtíð á að vera í þessari
starfsemi.
Framleiðslukostnaður blóðs
Hér mun ég gera grein fyrir útreikn
uðum kostnaði við framleiðslu á
blóði, miðað við að starfsemin standi
undir sér og sé ekki niðurgreidd
af öðrum rekstri. Margar leiðir
eru færar til að reikna út slíkan
kostnað en hér hef ég notast við
meðaltal kostnaðar tveggja ára á
raunverulegu búi sem heyjar og
gefur 350380 rúllur á ári. Við
meðalaðstæður dugar sá heyfengur
til að framfleyta 100 hrossa stóði
með 80 hryssum. Meðalafurðir
af slíku búi eru um 360 brúsar af
blóði á ári. Við erfiðari aðstæður og
í vondu árferði getur þurft meira af
heyi fyrir svo stórt stóð á útigangi.
Því gef ég einnig upp útreikning
miðað við að heyjaðar séu 500 rúllur
á þessu sama búi. Vinnulaun eru
samkvæmt forskrift ríkisskattstjóra
um reiknað endurgjald hrossabónda,
annars vegar fyrir 75% starf, hins
vegar fyrir 100% starf eins manns.
Niðurstöður eru birtar í töflu 1 og
samkvæmt þeim þurfa að fást 2835
þúsund krónur fyrir brúsa af blóði
til að standa undir kostnaði við
framleiðsluna.
Kjör merabænda fram til þessa
Viðskiptasamningar við Ísteka,
sem allflestir merabændur hafa nú
sagt upp, innifela verðskrá fyrir
tímabilið 20192023. Þegar þau
viðskiptaskilyrði voru settir fram
af hendi Ísteka, höfðu merabændur
reifað málstað sinn og kynnt kostnað
og tekjur við hrossahald, reiknað út
af ráðunaut hjá Ráðgjafamiðstöð
landbúnaðarins. Ráðunautur RML
gerði afar hófsama nálgun á þennan
kostnað, þar sem föstum kostnaði
í búrekstri var nær alfarið sleppt.
Samkvæmt þeim útreikningum
þurfti lágmark 12.245 krónur til að
framleiða brúsa af blóði. Það var árið
2018. Þrátt fyrir svo hógværar kröfur
ákvað Ísteka að setja fram verðskrá
með þrem verðflokkum, þar sem
enginn verðflokkur náði útreiknuðu
kostnaðarverði. Hæsti flokkurinn
var 90% af útreiknuðum kostnaði,
miðflokkurinn 82% og lægsta verðið
68%. Lægri verðin borgar Ísteka
þeim sem eru með hlutfallslega
litlar afurðir miðað við talinn fjölda
mera í stóði. Maður með nokkrar
geldar merar sem gefa ekki blóð, fær
minna borgað en aðrir fyrir hvern
lítra af blóði. Til að komast hjá allt
að fjórðungs verðfellingu á öllum
sínum afurðum hafa margir bændur
neyðst til að sóna hryssuhópinn hjá
sér til að ná geldu merunum út. Þessu
flokkakerfi hafa bændur ævinlega
mótmælt, enda er það svívirða, en
málefni þess eru efni í aðra grein.
Krónutöluhækkun er milli ára í
verðskrá Ísteka. Þar til nú hefur sú
hækkun rétt lafað í að halda í við
vísitölu, en engin tenging er við
verðlag í viðskiptaskilyrðum Ísteka
og engin endurskoðunarákvæði.
Áburðarverðshækkunin sem nú er
skollin á, auk annarra hækkana á
verðlagi, gerir það að verkum að
vonlaust er að blóðframleiðsla
geti borið sig á grunni þessarar
verðskrár. Þess vegna sögðum við
henni upp.
Merabændur þurfa ekki nokkurra
tuga prósentuhækkun á afurðaverði.
Þeir þurfa margföldun á afurðaverði.
Tvöföldun til þreföldun á verði
fyrir blóð er nauðsynleg til að
greinin haldi velli í yfirstandandi
þrengingum og geti þróast eðlilega
til framtíðar. Mörgum getur þótt það
bratt að fara fram með slíkar kröfur
en hér hef ég aðeins fjallað um
framleiðslukostnað á blóði. Næst
skulum við líta á verðmæti blóðs.
Verðmæti blóðs
Líftæknifyrirtækið Ísteka hefur
keypt hryssublóð af bændum til
lyfjaframleiðslu frá því árið 2002.
Segja má að eigandi fyrirtækisins sé
aðeins einn, Hörður Kristjánsson,
en hann og félag í hans eigu
á yfirgnæfandi meirihluta í
fyrirtækinu. Ársreikningar Ísteka
frá upphafi til vorra daga sýna að
mínu mati margt áhugavert og hef
ég tekið saman helstu tölur í töflu
2. Niðurstaðan er að hvert einasta ár
allan þennan tíma hefur fyrirtækið
skilað hagnaði. Fram til ársins
2016 eru reikningarnir reyndar
hauslausir og sýna ekki grunntölur
rekstrarreiknings, þ.e.a.s. tekjur
og gjöld. Þess vegna get ég ekki
reiknað hagnað sem prósent af
veltu nema fyrir sex síðustu árin,
en þá var hagnaðurinn oftast um
38%. Á því tímabili fjórfölduðust
eignir félagsins og gott betur, svo
einhverju hefur þar verið úr að spila.
Árið 2016 var hagnaðurinn reyndar
ekki nema tæplega 18% af veltu,
eða 85 milljónir, sem var lítið miðað
við önnur ár bæði á undan og eftir.
Þá hefur fátæktin einnig sorfið svo
að eigandanum að hann greiddi
sér 160 milljónir í arð til að rétta af
persónulegan fjárhag sinn.
Samanlagður arður greiddur
til eiganda, á þeim 19 árum sem
þessar tölur ná yfir, nemur rúmlega
1,3 milljörðum að núvirði. Það
jafngildir 5,9 milljónum á mánuði
allan þennan tíma.
Hvernig urðu allir þessir
peningar til?
Vöxtur Ísteka stendur í beinu
sambandi við aukna blóðframleiðslu
hjá bændum. Stundum hafa
Ístekamenn reynt að skýra gróða
sinn með einhverju öðru, en þær
skýringar hafa aldrei haft neina
sýnilega stoð. Hlutfallslegur
hagnaður fyrirtækisins af vinnslu
blóðs hefur verið mikill og stöðugur
svo langt sem séð verður.
Árið 2020 borgaði Ísteka
10.582 krónur fyrir brúsa af blóði,
ef blóðið kom úr stóði sem lenti í
miðflokki. Reikna má með að um
5 þúsund merar hafi verið í blóði
þá um sumarið og að hver þeirra
hafi gefið blóð í fimm skipti.
Kostnaður Ísteka vegna kaupa á
blóði hefur verið um það bil 265
milljónir. Hagnaður fyrirtækisins
var 740 milljónir. Meðan bóndi fékk
á bilinu 8.818 til 11.636 krónur fyrir
brúsa af blóði, hagnaðist Ísteka um
29.600 krónur á hverjum brúsa. Ef
þessum hagnaði hefði verið skipt
til helminga milli bændanna og
fyrirtækisins, hefði blóðbrúsinn
fært 25.382 krónur heim á býli sem
lenti miðflokki. Ísteka hefði aðeins
hagnast um 370 milljónir árið 2020,
en það hefði Herði Kristjánssyni
líklega þótt of lítið. Mér skilst líka
á framkvæmdastjóranum, Arnþóri
Guðlaugssyni, að hann treysti sér
alls ekki til að halda fyrirtækinu
réttum megin við núllið við þau
skilyrði.
Ísteka hefur mokað inn hagnaði
og þanið út eigur sínar alla sína
tíð, sem nú eru orðin 20 ár.
Frumbýlingsárin eru liðin. Litla
sprotafyrirtækið sem eitt sinn stóð
svo völtum fótum (þetta er háð) er
nú orðið að lyfjarisa á heimsvísu.
Þetta fyrirtæki óx og safnaði arði á
sama tíma og bændur notuðust við
aðstöðu búna til úr drasli, borguðu
afsláttarverð fyrir merar og stóðu í
blóðtöku í sínum eigin frítíma og
annarra. Þetta verður að breytast.
Við eigum gríðarlega fjármuni
inni hjá þessu fyrirtæki og kröfur
okkar um afurðaverð sem stendur
undir framleiðslukostnaði eru
löngu tímabærar, sanngjarnar og
raunhæfar.
Sigríður Jónsdóttir
Tafla 1. Framleiðslukostnaður blóðs árið 2022
- fjárhæðir í íslenskum krónum
Meðal Erfiðar
aðstæður aðstæður
Hey til fóðurs 350-380 rúllur 500 rúllur
Breytilegur kostnaður 3.487.000 4.367.000
Fastur kostnaður 3.591.000 3.591.000
Laun og launagjöld 4.532.000 6.043.000
Rekstrarkostnaður samtals 11.610.000 14.001.000
Tekjur af öðru en blóði 1.465.000 1.465.000
Kostnaður á brúsa af blóði 28.180 34.821
Býli með 100 hrossum
Bjarni í Arnarholti við gegningar í febrúar 2022.
Tafla 2. Rekstrarniðurstaða Ísteka samkvæmt ársreikningum
- fjárhæðir í milljónum króna
Hagnaður Greiddur Handbært fé Eignir Hagnaður
fyrir skatta arður í árslok umfram skuldir % af veltu
2020 1.734 740 300 327 1.654 42,60%
2019 1.673 634 0 111 1.362 37,90%
2018 930 351 296 856 37,70%
2017 839 292 0 575 34,80%
2016 478 85 160 341 17,80%
2015 463 177 0 472 38,20%
2014 171 200 331
2013 186 73 394
2012 100 59 318
2011 147 45 297
2010 104 35 225
2009 201 70 175
2008 41 30 74
2007 36 22,5 69
2006 35 15 61
2005 20 7,5 46
2004 13 37
2003 14 39
2002 10 28
Ár Tekjur