Bændablaðið - 24.02.2022, Page 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 49
LÍF&STARF
Hýsi-Verkheimar ehf. | Smiðjuvegi 44-46, Kópavogi | Sími 497 2700 | hysi@hysi.is | www.hysi.is
Atvinnuhúsnæði, Geymslur
Skóla- og Frístundabyggingar
Límtrésbyggingar
Klæddar yleiningum. Heildarlausn í boði
með hönnun, verkfræðiteikningum,
gluggum og hurðum.
Trimo húseiningar
Vönduð lausn fyrir færanlegar
skólabyggingar, skrifstofuhúsnæði
og gistirými.
Bogahýsi frá Rundebuehaller
Færanleg eða varanleg. Hundruð húsa
seld á Íslandi síðasta áratuginn og húsin
eru því þrautreynd við íslenskar aðstæður.
Stálgrindarbyggingar
Klæddar yleiningum.
Trimo gámahús
Geymslur, WC eða vinnubúðir.
Yleiningar
Með steinullar- eða PIR kjarna.
Auglýst er eftir framboðum til
stjórnarsetu í Bændasamtökum Íslands
2022-2024
▶ Í samræmi við 4. mgr. 6. gr. samþykkta Bændasamtaka Íslands eru sex stjórnarmenn
kosnir á Búnaðarþingi til tveggja ára í senn. Framboð til stjórnarsetu í
samtökunum skulu liggja fyrir að minnsta kosti tveimur vikum fyrir Búnaðarþing,
sbr. 4. mgr. 13. gr. samþykkta BÍ.
▶ Allir félagsmenn sem teljast fullgildir í samtökunum frá og með 31. desember sl.,
þ.e. skulda ekki gjaldfallin félagsgjöld, geta boðið sig fram til stjórnarsetu
Bændahöllin Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Í samræmi við samþykktir Bændasamtaka Íslands er hér með leitað eftir framboðum
frá félagsmönnum til setu í stjórn Bændasamtakanna fyrir kjörtímabilið 2022-2024.
Framboðsfrestur er til miðnættis 16. mars 2022 og skal framboðum skilað inn á
netfangið kjorstjorn@bondi.is
Hver og einn frambjóðandi skal skila ljósmynd, ásamt nafni, kennitölu og upplýsingum
um búgrein. Einnig skulu frambjóðendur skila allt að 200 orða kynningartexta með
framboði sínu. Efnið verður notað til að kynna framboðið. Frambjóðendum er að auki
heimilt að láta fylgja með ferilskrá og senda með hlekki inn á heimasíðu, samfélagsmiðla
og annað sem tengist framboði þeirra.
Uppstillingarnefnd starfar samkvæmt samþykktum Bændasamtaka Íslands og
starfsreglum nefndarinnar sem staðfestar voru á aukabúnaðarþingi hinn 10. júní 2021.
Hlutverk uppstillingarnefndar er að tryggja framboð til stjórnar úr öllum helstu geirum
landbúnaðarins sem taki einnig tillit til landfræðilegrar dreifingar og kynjahlutfalla og
leggja fram tillögu sína fyrir Búnaðarþing.
Uppstillingarnefnd skipa:
Birgir H. Arason, formaður.
Bessi Freyr Vésteinsson.
Hrafnhildur Baldursdóttir.
Rannsóknir á Heiðarfjalli í
Langanesbyggð benda til þess að
svæðið sé mjög mengað eftir að
bandaríska herliðið rak ratsjár-
og fjarskiptastöð á fjallinu á árun-
um 1954 Til 1970.
Á heimasíðu Umhverfis-
stofnunar segir að í rannsókn á
svæðinu hafi mælst mikill styrkur
PCB efna. Styrkur mengunarinnar
bendir til að hvorki sé æskilegt fyrir
fólk né dýr að dvelja á svæðinu nema
í stutta stund og forðast beri að neyta
gróðurs og yfirborðsvatns.
Rannsóknin var framkvæmd
af The Royal Military College of
Canada árið 2017.
Blý, sink, úran, kvikasilfur
og olíuefni
Einnig fundust önnur mengandi efni
á svæðinu í styrkleika sem getur
haft áhrif á menn, dýr og náttúru.
Meðal þessara efna eru blý, sink,
úran, kvikasilfur og olíuefni.
PCB eru þrávirk efni sem safn-
ast upp í fituvefjum og geta haft
ýmiss konar skaðleg áhrif á heilsu
og umhverfi. Sum PCB efni eru
þekktir krabbameinsvaldar. Meðal
annarra þekktra áhrifa þess að vera
útsettur fyrir efnunum til lengri tíma
eru skaðleg áhrif á æxlun, þroska og
mótstöðuafl gegn sjúkdómum.
Aðgerðir í undirbúningi
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðu-
neytið hefur falið Umhverfisstofnun
að hafa umsjón með undirbúningi að
frekari rannsóknum á svæðinu ásamt
því að upplýsa um hættuna sem er
fyrir hendi.
Stofnunin vinnur að undirbúningi
málsins í samstarfi við landeigendur,
rannsóknaraðila, viðeigandi stofn-
anir og ráðuneyti og með tilliti til
styrks mengunar á svæðinu hefur
Umhverfisstofnun látið reisa skilti
þar sem fólk er beðið að gæta fyllstu
varúðar við ferðir um svæðið. /VH
Magn mengandi efna á Heiðarfjalli í Langanesbyggð er það mikið að fólki
er ráðlagt að eyða ekki löngum tíma á svæðinu. Mynd / Bergþóra Njála
Umhverfisstofnun:
Mikil mengun í jarðvegi á Heiðar-
fjalli í Langanesbyggð