Bændablaðið - 24.02.2022, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202254
LÍFSGÆÐI
Er það versta að baki? Við
spurningunni fæst ekkert svar.
Hvort sem hún á við um storma,
hríð og slagveður vetrarins eða
ástand og ógnir vegna veirunnar,
Covid. Við erum öll mannleg,
ekki ofurmenni, heldur eins og
fólk er flest. Eigum okkar góðu
daga en líka lamandi erfiðar
stundir, stundum heilu kaflana
sem reyna virkilega á sálartetrið.
Á góðu dögunum sjáum við
fegurðina þegar sólin sindrar á
hjarninu, kvígan undan Gráflekku
svolgrar í sig pelann, Golta rífur í
sig græna töðuna í fjárhúsunum og
hundarnir gjamma að hrafninum
á hliðstaurnum. Á þeim slæmu
tökum við ekki eftir neinu af þessu.
Yfirþyrmandi hugsanir, eru já,
einmitt, yfirþyrmandi. Þær taka ekki
bara yfir hugann heldur líka athygli
okkar og líðan. Þá þarf átak til að
rífa sig lausan og ná að snúa niður
ólmandi bolann í eigin huga. Hann
getur borið nöfn eins og depurð,
þunglyndi, kvíði, lamandi streita,
ofuráhyggjur, sjálfsefasemdir,
jafnvel skömm, tilgangsleysi og
vonleysi. Rannsóknir sýna að það
er oft þegar fer aðeins að birta sem
bolinn ólmast mest. Þegar hillir í
að veiran sé gengin yfir. Þegar
farið er að birta, þegar leiðir og
tækifæri opnast. Því það er einmitt
þá sem við finnum eigin vanmátt
svo skýrt. Finnum að við erum í
besta falli eftir okkur en líklega líka
flest, langþreytt og mædd og þá
sækja efasemdir að. Sjálfsmyndin
hefur ekki fengið rétta speglun og
styrkingu svo mánuðum og jafnvel
árum skiptir, ekki eins og var áður
en veiran skall á heimsbyggðinni.
Hvar ert þú í þessu öllu, ertu bara
brattur eða er allt í volli?
Einu sinni var sú sem þetta ritar
kúabóndi, í 15 ár, en hefur nú starfað
í 11 ár á sálfræðistofu að hjálpa
fólki að ná aftur taktinum. Tölta
af stað í sólarátt eftir erfiðleika og
halda áfram þar til lífið dansar aftur
áfram á fljúgandi svifléttu hröðu
tölti eftir vikum lífsins með öllum
sínum sóleyjum, hrossagaukum
og ævintýrum. Núna vil ég tala
til þín. Þín sem hefur bullandi
áhyggjur af áburðarverðinu,
hækkun á öllum aðföngum. Þín
sem hefur einangrast í Covid-
höftunum. Ykkar allra sem hafið
seiglast gegnum daga og vikur
en ekki getað lyft lundinni með
hressandi samveru við nágranna,
hvetjandi hittingnum á fundum,
söngæfingum og öðrum viðburðum
og aftur engin alvöru þorrablót.
Núna er hann orðinn langur tíminn
sem það hefur varla gefist tækifæri
til að skella sér í sparigallann og
hafa gaman með fólkinu í sveitinni.
Öllum sem vinna einir og á
litlum vinnustöðum hefur reynst
Covid-tíminn erfiður, ekki bara
bændum. Við erum félagsverur og
þurfum á því að halda til að heilinn
okkar virki rétt að hitta fólk, sjá
viðbrögð við okkar eigin orðum,
að fá bros til baka, ekki bara undir
grímu við mjólkurkælinn í næstu
búð. Við þurfum meira samneyti
við fólk en það og ef þú ert þinn
eini vinnufélagi, daglega dags,
eða þú og maki þinn tvö ein, þá
er jú fátt um fína drætti. Þá eru
líkur á að þú eins og flestir sem
vinna á einmennings eða fámennis
vinnustöðum finnir fyrir félagslegri
fátækt. Því fylgir ekki bara leiði
heldur líka vantrú á sjálfan sig
og sitt. Það vantar samhljóminn,
speglunina, stuðninginn sem felst í
samskiptum við sína líka. Það vantar
líka tilbreytingu, nýjar upplifanir
og fjölbreytileika. Við þurfum
öll að fara reglulega út úr okkar
daglega hring og fá þannig nýtt
sálarfóður. Það hefur nú ekki verið
mikið um slíkt á veirutímanum.
Einmitt þess vegna þurfum við
núna að ákveða að spyrna okkur
upp. Við þurfum að gæta þess að
dorma ekki hugsunarlaust áfram
í þeim takmörkuðu lífsgæðunum
sem þröngi hringurinn gefur. Þá
verðum við eins og hross sem eru
alltaf bara inni í gerðinu. Þau lifa af
fái þau fóður og vatn en þau njóta
sín ekki, þau blómstra ekki, þau
nýta ekki hæfileika sína eða getu,
lifa ekki lífinu.
Vonandi eru flestir sem þetta
lesa óþreyjufullir að fara út úr
Covid-gerðinu, til í það og virkilega
með kjark, kraft og orku til þess og
blómstra eins og fíflar að vori á
næstu vikum og mánuðum. Ykkur
hin vil ég með þessum pistli vekja
til meðvitundar um mikilvægi þess
að hafa sig út í lífið á ný. Vara
ykkur við hættunni á viðvarandi
óyndi, depurð og kvíða og hvetja
ykkur til að leita ykkur hjálpar ef
líðanin er hamlandi, lamandi, að
ég nú ekki tali um sársaukafull,
hættuleg. Það sakar aldrei að fara
í svo sem einn sálfræðitíma eða
leita annarrar faglegar hjálpar, það
er alveg satt!
Hér eru nokkur ráð úr pokahorninu:
• Komdu þér úr vinnufötunum
ALLTAF annaðhvort
laugardag eða sunnudag og
farðu af bæ. Ja, nema kannski á
sauðburði. Bíltúr í næstu sveit
er betra en ekkert, enn betra að
heimsækja einhvern eða mæta
á einhvers konar viðburð, sjá
fólk. Ef þú ert svo lánsamur
að eiga maka, farið þið saman,
þessar samverustundir eru
dýrmætar, ekki vanrækja þær.
• Skipuleggðu reglulega
samverustundir með
fjölskyldunni þar sem þú
ert EKKI í vinnufötunum.
Upplifið eitthvað saman. Hér
er ekki síður átt við að hitta
fjölskyldumeðlimi sem búa
annars staðar, það er jú það
sem hefur víða dalað í Covid.
• Hittu VIKULEGA einn til
þrjá bestu vini þína, eða
heyrðu í þeim í síma ef
ekki vill betur til. Ræktaðu
markvisst upp samband við
þessa einstaklinga/ fjölskyldur.
Hugsanlega er kal í sambandinu
eftir Covid en ekki láta það
verða að órækt. Gerðu í því að
hitta þitt besta fólk reglulega.
Aðeins þannig verðið þið vitni
að lífi hvert annars og þar með
stuðningsaðilar. Vikulega er
bara fjórum sinnum í mánuði,
það eru þá samt 26 dagar sem
þið hittist ekki eða heyrist, svo
vikulega er EKKI of mikið, má
vera oftar. Hugsanlega áttu
nágranna, samstarfsfélaga,
eða vin sem þú heyrir í svona
annan hvern dag. Það er
dýrmætt ef þið náið að gefa
hvor öðrum hlustun til skiptis,
hvatningu og slá á létta strengi.
Ekki ef samtalið er bölmóður.
• Forðastu skaðráð, eins og
drykkju eða aðra deyfingu.
Ef þú hefur ósjálfrátt leitað í
baukinn eða flöskuna á Covid-
tímanum, ertu ekki einn um
það. En hvað ætlar þú þér?
Viltu þetta sull áfram eða
viltu alvöru lifandi líf? Taktu
þig taki, taktu ákvörðun um
hvaða dag þú ætlar að breyta
þessari hegðun og gerðu það!
Leitaðu hjálpar ef þarf.
•
• Það eru vissulega blikur á lofti í
afkomu og rekstri. Ekki upplifa
þig einan í skítnum. Ræddu
áhyggjur þínar af rekstri og
reikningunum við einhvern.
Mættu á fundi sem verða í boði
í þínu samfélagi, fylgstu með,
þá upplifir þú stuðninginn í
samkenndinni. Það gerist ekki
ef þú lokar þig af einn heima.
Farðu fram á fundi með þínum
viðskiptaaðilum. Það er verra
að vera strútur með hausinn
í sandinum, það eykur bara
kvíðann. Glímdu við drauginn,
það er alltaf betra. Ef þú tapar
orrustu þá velur þú nýjar leiðir,
ef þú sigrar er kvíðinn horfinn
á braut.
• Þú átt þetta líf. Sýndu þér og
þínum virðingu og umhyggju,
alveg eins og bændur gera
þegar folald, lamb eða kálfur
bröltir á fætur. Þú ert dýrmætur
og það kemur sumar.
Kristín Linda Jónsdóttir,
sálfræðingur hjá Huglind
Að klára þorrann og þreyja góuna
Kristín Linda Jónsdóttir.
SAGA&MENNING
Sögubrot um búfræðslu 4:
Að mæla land og halla
Varla þarf að hafa orð á því við
lesanda þessa pistils hve auðvelt
er nú að fá upplýsingar um land
og landshætti. Með vasasímanum
einum er hægt að skoða landið
hvort heldur er í smáum kvarða
eða stórum, mæla vegalengdir,
flatarmál og fleira. Tæknina nýta
bændur og aðrir landnotendur í
meiri eða minna mæli. Þörfin fyrir
þennan fróðleik vaknaði snemma.
Í fyrstu reglugerð fyrir Búnaðar-
skólann á Hvanneyri voru land- og
hallamæling meðal þeirra verklegu
greina sem kenna skyldi, rétt eins
og í öðrum innlendum og erlendum
búnaðarskólum á ofanverðri
nítjándu öld. Þá þegar var völ á
býsna rækilegum kennslubókum
í greininni, sem mikilvæg taldist
í vestur-evrópskri landnýtingu.
Hallamælingar voru líka grunnþáttur
vatnsmiðlunar, m.a. til ræktunar svo
sem með áveitum og framræslu.
Vegna kennslu í land- og halla-
mælingum eru nú til allmargir upp-
drættir af túnum og öðrum ræktun-
arlöndum frá síðustu árum nítjándu
aldar. Árið 1915 voru sett lög um
mælingar á túnum og matjurtagörð-
um að frumkvæði Ræktunarfélags
Norðurlands og Búnaðarfélags
Íslands. Fyrir mönnum vakti að
fá traustar upplýsingar um stærð
ræktaðs lands sem undirstöðu að
áreiðanlegum hagskýrslum. Næstu
árin voru tún mæld og kortlögð
um nær allt land og varð þannig
til gagnagrunnur sem í dag þykir
einstakur í sinni röð. Kortin eru
varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands
og vel aðgengileg á heimasíðu safns-
ins, sjá skjalasafn.is og leitarorðið
tunakort. Margir af þeim, sem kortin
gerðu, höfðu numið undirstöðuatriði
landmælinga á búnaðarskólunum.
Á fyrstu árum innlendrar
búnaðarkennslu var búnaðurinn ekki
flókinn, sem notaður var til land-
og hallamælinga. Lengi vel dugðu
málband (mælikeðja) og svonefndur
hornspegill til þess að kortleggja til
dæmis túnblett: Út frá beinni línu
voru fjarlægðir til meginpunkta
þess sem draga skyldi inn á kortið
(hús, vegir, girðingar, skurðir ...)
mældar undir réttu (90°) horni. Væru
verkefnin stærri eða flóknari komu
til sögu sérstök tæki til landmælinga
(landmælingakíkir – Theodolit),
sem á tímabili voru staðalbúnaður
jarðræktarráðunauta. Mælingarnar
voru töluvert nákvæmnisverk, en
síðan beið allmikil handavinna við
að vinna úr mælingunum og draga
niðurstöður þeirra upp á blað.
Á áveituárunum miklu hérlend-
is, á árafjórðungunum sitt hvorum
megin við fyrri aldamót, þótti gott að
kunna vel til hallamælinga. Þá skipti
máli að geta metið halla lands svo
haganlega mætti greiða áveituvatni
leið yfir ræktunarlönd – en líka í
burtu þegar þurrka skyldi land. Þótt
sumir „vatnsveitíngamenn“, eins og
þeir voru kallaðir, hefðu undra mikla
hæfileika „til þess að láta áveitu-
vatnið elta sig“ studdu fleiri sig
við hallamæla.
Nú þarf ekki lengur að kenna
búfræðinemum þessar greinar.
Loftmynda- og fjarkönnunartækni
hefur opnað aðra og haganlegri
möguleika, sem mjög eru aðgengi-
legir. Túnkort gamla tímans, gerð
með hinni einföldu tækni horfins
tíma, geyma hins vegar afskap lega
merkilegar heimildir um búskap-
araðstöðu og menningar landslag
fyrri tíðar.
Bjarni Guðmundsson
Ásgeir L. Jónsson vatnsvirkjafræðingur (t.v.) kennir nemendum Framhalds
deildarinnar á Hvanneyri landmælingar sumarið 1956. Mynd / Magnús Óskarsson
Aldargamalt kort af Hvanneyri og óvenju íburðarmikið, gert af Jóhanni G.
Björnssyni veturinn 1922; orðið lúið af notkun og inn á það hafa verið dregnar
seinni tíma upplýsingar.