Bændablaðið - 24.02.2022, Side 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202258
Samhliða auknum afurðum íslenskra
mjólkurkúa, eykst þörfin fyrir ná-
kvæmni við bústjórn enda mega
kúabændur síður við mistökum
við bústjórn þar sem afurðasemin
er mikil í samanburði við bú með
lægri afurðasemi. Skýrist það ein-
faldlega af því að kýrnar eru undir
meira álagi, sem þær þola mjög vel
sé rétt staðið að bústjórninni.
Bústjórn er auðvitað gríðarlega
umfangsmikið verkefni og snýr að
öllum þáttum búsins, en í þessari
grein verður horft sérstaklega til
þess þáttar sem snýr að holdastigun
kúnna og hvernig hana má nýta til
þess að ná betri árangri.
Holdastigun skiptir máli
Þegar kýr eru holdastigaðar er til-
gangurinn, eins og nafnið gefur til
kynna, að meta holdafar þeirra. Eftir
burð, geta kýr alla jafnan ekki étið
nógu mikið fóður til þess að hafa
undan mjólkurframleiðslunni og því
gengur líkaminn á orkuforðann. Því
tapa kýrnar holdum á þessu tímabili
og það er þeim í raun eðlislægt.
En ef þær eru of holdrýrar á þessu
tímabili lífsins, hafa þær of lítinn
forða að ganga á og þá bitnar það á
framleiðslunni og heilsufari þeirra.
Það skiptir því verulega miklu máli
að kýrnar séu í réttum holdum fyrir
burð. Markmiðið er að kýrnar séu
með holdastig (sjá síðar) upp á 3,5
þegar þær fara í geldstöðu og haldi
því holdastigi fram yfir burð. Það
getur þó verið munur á milli búa, þ.e.
að hvaða holdastigi sé stefnt og fer
það eftir nythæð og fleiri þáttum. +
Hér er því um viðmið að ræða
sem gæti þurft að hnika til á milli
búa og ég mæli alltaf með því að
bændur setji upp sín markmið í sam-
vinnu við fóðrunarráðgjafa.
Holdastiga 4-5 sinnum
Það þarf eðlilega að fylgjast vel með
Á FAGLEGUM NÓTUM
Allt landið hefur nú verið
þakið í snjó í langan tíma,
sumum til leiðinda en aðrir
láta sér fátt um finnast og
gleðjast jafnvel yfir ósköpun-
um. Garðeigendur hafa víst
ólíkar skoðanir á þessu eins og
öðru, en hvað ætli plöntunum
sjálfum finnist?
Yfirleitt þolir grasflötin
ágætlega snjóþekju, en þá er
hagstæðara ef snjórinn fellur
áður en hörð frost koma. Ef
skiptist oft á frost og þíða getur
snjórinn hlíft grasinu, en snjór
sem fellur um vetur, nær að
blotna og liggur síðan fram á
vor er líka varasamur grasinu.
Brum grasanna eru að jafnaði
í sverðinum og eru þess vegna
varin gegn miklum frostum.
Eiginlegt frostkal er því ekki
algengt í grasflötinni en meiri
hætta er á svellkali, sem mynd-
ast þegar þétt svell leggst yfir
grasflötina eða hluta hennar
og kemur í veg fyrir aðgang
súrefnis til eðlilegrar öndunar.
Geta jafnvel myndast eiturefni í
jarðveginum við þessar aðstæð-
ur sem safnast upp og valda
drepi. Þá hefði farið betur á því
að snjórinn hlífði flötinni.
Sígrænn gróður og
snjóþekjan
Sígrænn runnagróður vill
gjarnan hvíla undir snjóbreiðu
allan veturinn þegar hann hefur
lokið vexti sínum og vetrarundir-
búningi, en þá þarf snjórinn helst
að þekja alla plöntuna og falla á
jörð áður en hún frýs mikið. Ef
snjórinn fellur á harðfrosna jörð
stöðvast virkni rótanna þar til
vorar á ný. Greinarnar sem upp
úr standa hlýna af sólarhitanum
og þorna. Ræturnar sem standa
í frosnum jarðveginum hafa ekki
tök á að mæta rakatapinu og
við það þorna barrnálar og
toppar greinanna.
Oft má sjá slíkar skemmdir
í sígrænum gróðri, bæði
í garðagróðri og í ungum
skógarteigum. Þetta lýsir sér
sem ryðrauður litur á dauðum
barrnálum og sést alloft í ungum
stafafuruteigum. Með aldrinum
minnkar þessi hætta, er ræturnar
eflast. Ljós sem snjórinn
endurkastar getur valdið skaða á
svipaðan hátt. Hæfilegt snjófarg
getur líka hlíft viðkvæmum gróðri
fyrir miklum vetrarkuldum.
Plöntur nota annars ýmis
úrræði til að lifa af vetrarkulda,
snjófarg og vindálag. Lyngrósir
hafa til að mynda þann
eiginleika að rúlla upp og
sveigja niður á við sínu sígræna
laufi þannig að útgufun, vind-
og snjóálag verði með allra
minnsta móti.
Fjölærar plöntur og skraut-
runnar sofa vært undir snjónum
Fjölær garðagróður nýtur góðs af
snjóþekjunni og mætti snjórinn
þess vegna liggja yfir þeim allan
veturinn og fram á vor. Í íslenskri
náttúru eru mörg dæmi þess að
snjór falli á fjölæran villigróður
í snjódældum að hausti og hverfi
ekki fyrr en í sumarbyrjun. Þá
getur gróðurinn jafnvel farið
að taka við sér undir þunnri
snjóþekjunni og komið ferskur
og grænn undan snjónum.
Langflestir lágvaxnir garða-
runnar hafa gott af snjóþekjunni,
á svipaðan hátt og fjölæringar.
Snjófarg sligar greinar og tré
Ef miklir skaflar myndast í
görðum og trjáreitum geta þeir
átt það til að brjóta greinar af
trjám og jafnvel brotið gilda
trjástofna. Hér er breytileiki
mikill milli tegunda. Hánorræn
tré sem eru vön löngum
snjóavetrum hafa aðlagast þess
háttar aðstæðum og láta ekki
mestu snjóa á sig fá. Greinarnar
leggjast niður með trjástofninum
við snjófargið og svo reisa þær
sig á ný þegar snjóa leysir, án
þess að bera skaða af. Gott
dæmi um þetta er hvítgreni og
rauðgreni. Önnur tré þola fargið
síður og má nefna hlyn, sumar
reynitegundir og gullregn sem
dæmi. Blautur snjór er erfiðastur
og er mest hætta á snjóbroti
þegar hann hleðst á trjágreinar
og sligar þær.
Vel heppnaður garður er
fallegur allt árið. Vetrarásýndin
getur verið afskaplega notaleg,
og nærandi að njóta hans í
hlýjum gróðurskála þar sem
gróðurinn vex við birtuna sem
stafar af snjóþekjunni.
Ingólfur Guðnason.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Hvað er með allan þennan snjó?
Lyngrósir fara sínar eigin leiðir til að verjast vetrarálagi.
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Snjór á barri.
Rétt holdastig við burð stóreykur
líkur á góðu mjaltaskeiði
Mynd 3. Holdastigun frá 3,25 til 5,00
Mynd 1. Fitusöfnun kúa er metin á ákveðnum stöðum eins og hér sést.
Mynd 2. Holdastigun frá 2,00 til 3,00