Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 59
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 59
FJÓSAMEISTARI
Á HVANNEYRI
HELSTU VERKEFNI
» Umsjón og rekstur fjóssins á Hvanneyri
» Fóðrun og dagleg umhirða gripa
» Umsjón ræktunarstefnu og hjarðskýrsluhalds
» Almennt viðhald og viðgerðir véla og tækja
» Jarðvinnsla og heyskapur
» Leiðbeining nemenda í verklegu námi í búfræði
og móttaka gesta
» Virk þátttaka í uppbyggingu og innleiðingu nýsköpunar
í búrekstri
» Samstarf við teymi kennara og sérfræðinga Landbúnaðar-
háskóla Íslands við verklega kennslu og rannsóknir
í nautgriparækt, jarðrækt, bútækni og umhverfismálum
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
» Búfræðipróf og/eða BS próf í búvísindum, auk annarrar
menntunar sem nýtist í starfi
» Reynsla af hirðingu búfjár og vélavinnu
» Sjálfstæð vinnubrögð
» Færni í mannlegum samskiptum
» Góð almenn tölvukunnátta
» Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2022
Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og helst eigi síðar en byrjun maí 2022.
Tilgangur Hvanneyrarbúsins ehf er að reka á hagkvæman hátt kúabú í þágu kennslu og rannsóknastarfs
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Nánari upplýsingar
Egill Gunnarsson, bústjóri Hvanneyrarbúsins, egill@lbhi.is, s. 848 2215
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LBHÍ, gudmunda@lbhi.is, s. 433 5000
Starf fjósameistara Hvanneyrarbúsins ehf við Landbúnaðarháskóla Íslands er nú laust til umsóknar
Hlutverk Landbúnaðarháskólans er að skapa og miðla þekkingu á sjálfbærri nýtingu auðlinda,
umhverfisskipulagi og landbúnaði á Norðurslóðum. Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af teymi
LbhÍ sem hefur umsjón með rekstri Hvanneyrarbúsins í samráði við bústjóra. Um fullt starf er að ræða.
LESENDARÝNI
Flökkusögur um folöld og fallþunga
Þann 19. janúar síðastliðinn sagði
Inga Sæland, þingmaður Flokks
fólksins, orðrétt í útvarps þættinum
Reykjavík síðdegis:
„Við erum með hér yfir 5000
merar sem eiga um 5000 folöld sem er
slátrað á hverju einasta hausti meira
og minna því þau eru verulega illa
á sig komin. Meðalvigt þeirra sam-
kvæmt upplýsingum sem ég hef úr
afurðastöð er langt frá því að vera
um meðalvigt folalda sem að hafa haft
eðlilegan aðbúnað í sínum uppvexti.“
Vakti þetta forvitni bónda nokkurs,
sem hafði ekki heyrt getið um að
meðalvigt folalda frá hryss um sem
hafðar eru til blóð töku væri lægri eða
folöldin verr á sig komin en gerðist
með folöld undan öðrum hryssum.
Sami bóndi býr á sunnlenskri jörð
þar sem hrossastóð hefur verið haldið
til margra ára. Fyrir nokkrum árum
fór bóndinn að hafa hryssur sínar til
blóðtöku. Sú breyting hefði orðið á
að hryssurnar eru ekki að kasta í apríl,
jafnvel snemma mánaðar, heldur í
fyrsta lagi í byrjun maí. Einnig fara
folöldin að jafnaði fyrr í sláturhús en
áður, yfirleitt frá miðjum nóvember
og fram í byrjun janúar. Áður fóru
folöld oft ekki fyrr en í lok febrúar
eða í byrjun mars, þá um 10 mánaða
gömul eða nærri ársgömul. Ekki
væri að sjá að folöldin væru verr á
sig komin eða hlutfallslega léttari
eftir að bóndinn fór að hafa hryssur
sínar til blóðtöku. Má einnig nefna að
eftir að bóndinn fór að hafa hryssur
sínar til blóðtöku margfaldaðist eft-
irlit með heilbrigði hryssanna frá því
sem áður var.
Fyrirspurn til afurðastöðva
Umræddur bóndi sendi fyrirspurn á
allar afurðastöðvarnar varðandi þetta
málefni. Svöruðu fimm afurðastöðvar
með tölvupósti og ein í síma. Ein gaf
ekki svar. Svör afurðastöðvanna voru
þau að þær miðla ekki upplýsingum
um einstaka innleggjendur né heldur
innlegg í heild sinni, þannig að Inga
Sæland hefði engar slíkar upplýs-
ingar fengið frá þeim.
Upplýsingar um innlegg og fall-
þunga fara eingöngu til viðkomandi
innleggjanda og til yfirvalda, sem
er MAST. Þrjár afurðastöðvar tóku
fram að fullyrðing Ingu Sæland væri
röng. „Kolröng“ og „svo sannar-
lega ekki rétt“ var orðalagið hjá
fulltrúum afurðastöðvanna, svo því
sé til haga haldið.
Fyrirspurn til MAST
Fyrirspurn bónda til MAST skilaði
upplýsingum sem yfirumsjónar maður
með kjötmati hafði tekið saman
vegna fyrirspurnar frá fréttamanni
í janúar. Viðkomandi bóndi hefur
ekki orðið var við opinbera birtingu
á niðurstöðum þessa svarbréfs, sem
fréttamaðurinn aflaði. Svörin frá
MAST hafa mögu lega ekki skilað
því sem vonast var eftir. Hér verður
svar MAST hins vegar birt í heild
sinni, enda gefur það upplýsingar um
ýmislegt sem Gróa á Leiti hefur velt
vöngum yfir fram að þessu.
Fyrirspurnin og svör
eru eftirfarandi:
– Mér skilst að sjö sláturhús á
landinu séu með stórgripaslátrun.
Hvaða sláturhús á Íslandi taka á móti
folöldum blóðmera til slátrunar og
hafa þau afkastagetu til þess að taka
á móti öllum folöldum sem koma úr
blóðmerahaldi?
Kjötafurðastöð KS, SAH afurðir,
SS Selfossi, Sláturhúsið Hellu, B.
Jensen, Norðlenska og Sláturhús
Vesturlands. Afkastagetan er marg-
föld á við það magn sem er framleitt.
– Hafa einhver sláturhús neitað
að taka á móti þessum folöldum?
Hvers vegna?
Nei, sú staða hefur ekki komið
upp.
– Eru dæmi um að bændur hafi
skotið folöldin sjálfir og urðað þau
ólöglega?
Nei, engin dæmi eru til um það,
enda ekki vandamál að koma þeim
til slátrunar.
Hér eru í töflu birtar til glöggv unar
upplýsingar um fjölda slátraðra fol-
alda á hverju slátur tíma bili og með-
alvigt. Slátrun hefst í ágúst og þau
síðustu koma inn í mars í venjulegu
ári. Því getur verið allt að 6 mánaða
aldursmunur á folöldum sem koma til
slátrunar sem hefur áhrif á fallþunga.
Meðalfallþungi hefur lítið breyst
á þessu árabili þrátt fyrir mikla aukn-
ingu í fjölda blóðmera undanfarin
ár og þrátt fyrir að sláturtímabilið
hefjist nú í ágúst í stað október en
sú breyting varð 2019.
Úrkast er mjög lítið, og líklega
minna en í öðrum tegundum. Hafa
skal í huga að folöld geta hafa farið
í úrkast ef ekki var gerð grein fyrir
móður. Því er ekki öruggt að þau hafi
verið sjúk.
Hvað er satt og hvað er logið?
Samkvæmt því sem hér hefur komið
fram virðast afurðastöðvar ekki hafa
miðlað neinum upplýsingum til Ingu
Sæland. Einnig blasir við að staðhæf-
ing hennar, um meðalvigt og ástand
folalda frá hryssum sem hafðar eru
til blóðtöku, er röng.
Sigríður Jónsdóttir
vann greinina í samstarfi
við Í-ess bændur
Upplýsingar frá Matvælastofnun um folaldaslátrun á Íslandi, veittar í janúar 2022
1. flokkur 2. flokkur Úrkast Meðal-
fjöldi fjöldi Úrkast fjöldi fallþungi kg
2021* 4359 10 13 4382 77
2020 5408 20 22 5450 76,1
2019 5248 38 5 5291 79
2018 4996 40 17 5053 81,9
2017 4949 57 13 5019 78,4
* Sláturtímabili ekki lokið fyrir folöld fædd 2021
Fjöldi allsFæðingarár
holdafari kúnna og stilla af fóðrun-
ina á síðari hluta mjaltaskeiðsins
svo kýrnar nái að safna réttu magni
af holdum. Ef þær eru hins vegar
of feitar þegar þær fara í geldstöðu,
hefur það neikvæð áhrif á kýrnar og
komandi mjaltaskeið rétt eins og ef
þær eru of holdrýrar. Þetta er því
nákvæmnisverk sem erfitt er að ná
nema með því að nota gott holda-
stigunarkerfi og nota það reglulega.
Almennt mæli ég með því að
holdastiga allar kýr í upphafi geld-
stöðu, við burð og svo 2-3 yfir
mjaltaskeiðið. Sumir mæla með
því að gera þetta enn oftar en mér
hefur fundist þessi tíðni gefa afar
gott yfirlit yfir þróunina á hverju búi.
Ef þetta er gert fær bóndinn mjög
gott yfirlit yfir þróun holdafarsins
hjá kúnum og getur brugðist við sé
holdafarið almennt að færast út fyrir
áætlun búsins.
Einnig er mikilvægt að gera
þetta hjá fengnum kvígum, svo þær
séu í réttum holdum við burð, rétt
eins og kýrnar.
Holdastigunarkerfið
Nokkur holdastigunarkerfi eru til í
heiminum en algengast er að nota
það kerfi sem hér verður lýst. Matið
er þannig framkvæmt að lagt er mat
á fitusöfnun kúnna á afturhluta lík-
amans, við halarót og setbein, þver-
þorn, mjaðmahnútu og rifbein (sjá
mynd 1).
Holdastigunin byggir svo á 5 mis-
munandi flokkum og gefin stig sem
hlaupa á 0,25 á milli hvers flokks ef
þörf þykir. Það tekur alltaf nokkurn
tíma að læra að nota þetta stigakerfi
en með æfingu geta allir lært þetta.
Holdastigin fimm eru (úr kennslu-
bókinni Nautgriparækt):
Holdastig 1: Grindhoraður gripur
sem er að öllum líkindum orðinn
veikur svo það á ekki við að holda-
stiga sérstaklega.
Holdastig 2: Hver hryggjarliður er
vel greinanlegur, rifbein vel grein-
anleg og lítil sem engin fylling á
milli þverþorna, mjaðmahnútur og
setbein vel útstæð og köntuð. Engin
fitumyndun er í halarót og U-laga
form er undir hana.
Holdastig 3: Hrygglínan orðin
aðeins afrúnnuð, aflíðandi lína
frá hrygg að þverþornaendum,
mjaðmahnútur og setbein jöfn og
aðeins mjúk og ekkert köntuð lengur.
Halagrópin er grunn og það er aðeins
fitumyndun við halarót.
Holdastig 4: Hrygglínan er
flöt og engir hryggjarliðir sjást
lengur. Þverþorn næstum flöt og
mjaðmahnútur og setbein rúnnuð
með fitu. Halagrópin fyllt af fitu og
halarótin að þykkna.
Holdastig 5: Akfeitur gripur, mikil
og greinileg fita alls staðar.
Eins og áður var getið um er holda-
stigunum svo skipt upp í undirflokka
sem hlaupa á 0,25 og til þess að átta
sig á dómsskalanum er best að skoða
myndir 2 og 3 sem sýna breytinguna
á milli undirflokkanna vel.
Eftir matið
Holdastigunin er afar gott bústjórn-
artæki sem nýtist alltaf til að bæta
árangur búsins og þegar búið er að
meta hjörðina þarf mögulega að
bregðast við.
Þetta geta verið þættir eins og
breytt fóðrun, möguleg flokkun gripa
í nýja hópa eða annað slíkt sem eykur
líkurnar á því að ná réttu holdafari
þegar kýrnar fara í geldstöðu eða
kvígurnar fara inn í lokatímabilið
fyrir burð.
Þetta fer auðvitað eftir fjósgerð-
um og aðstæðum hverju sinni og
því misjafnt hvað er hægt að gera.
Fjósgerðin eða stærð hjarðarinnar
ætti þó aldrei að halda bændum frá
því að holdastiga, hvort sem unnt
er að taka á einstökum gripum eða
ekki. Þá eru gripirnir mismunandi
að eðlisfari og safna holdum með
mismunandi hætti.
Það er ýmislegt sem bendir til
þess að íslensku kýrnar séu með
heldur meiri breytileika hvað holda-
stig snertir en kýr af öðru kúakyni og
að þær erlendu búi að meiri erfða-
festu þegar kemur að þessum þætti
og/eða búi við meiri stöðugleika
í fóðrun.
Það er því enn mikilvægara
fyrir íslenska bændur, en erlenda
kollega þeirra, að sinna holdastigun
vel og reglulega svo hægt sé að
ná sem mestum og bestum árangri
með kýrnar.
Ítarefni:
„Fóðuráætlanir“ eftir Berglindi
Ósk Óðinsdóttur í bókinni
Nautgriparækt, sem m.a. hægt er
að nálgast á vef Búgreinadeildar
kúabænda innan BÍ:
www.bondi.is/naut
Búnaðarþing 2022
Búnaðarþing 2022 verður að þessu sinni haldið á
Hótel Natura, dagana 31. mars og 1. apríl nk.
Þingsetning verður fimmtudaginn 31. mars
og hefst athöfnin kl. 12.30.
Framboðsfrestur til stjórnar BÍ er 16. mars.
Frestur til þess að senda inn mál til stjórnar
er 17. mars.
Vakin er athygli á því að kæra vegna kosningu
Búnaðarþingsfulltrúa þarf að berast stjórn BÍ a.m.k.
tveimur vikum áður en þing er sett.
Ósk þingfulltrúa um setu í ákveðnum nefndum
þingsins þurfa að berast stjórn fyrir 17. mars nk.
Fundargögn verða send þingfulltrúum
í síðasta lagi 24. mars nk.
Nánari upplýsingar verður að finna á bondi.is
Stjórn Bændasamtaka Íslands
Fylgstu með bændum á Facebook, á bondi.is og bbl.is