Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022
LÍF&STARF
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Nautin lækkuðu heldur í mati
Nýtt kynbótamat var keyrt núna í
janúar að loknu ársuppgjöri. Það
er því ekki úr vegi að skoða aðeins
þær breytingar sem urðu og stöðu
nautanna að lokinni uppfærslu á
matinu.
Núna var kynbótamatið í fyrsta
skipti keyrt að því er segja má
algjörlega heildstætt. Það þýðir
að allir eiginleikar voru keyrðir í
nokkurs konar samfellu í einu og
sama forritinu. Þórdís Þórarinsdóttir
hefur haft veg og vanda af þeirri
vinnu en hún er liður í uppfærslum
sem eru nauðsynlegur undanfari
innleiðingar á erfðamengisúrvali.
Þá var einnig keyrt nýtt endingarmat
að þessu sinni og horfið frá gamla
matinu sem var orðið barn síns tíma.
Nánari útskýringar á því hvernig nýja
endingarmatið er byggt upp bíða betri
tíma.
Fagráð í nautgriparækt ákvað að
gera lágmarks breytingar á reyndum
nautum í dreifingu. Bæði kemur
þar til að þau naut sem eru núna
í dreifingu er flest búin að vera í
notkun í tiltölulega skamman tíma
og svo að enn sem komið er eru engin
naut fædd 2017 komin með nægilegt
öryggi á sinn afkvæmadóm. Í heildina
standa þau naut sem voru í dreifingu
ekki við fyrra mat og lækka heldur
í mati. Á það verður þó að horfa að
fyrra mat var geysihátt þannig að þau
eru eftir sem áður með mjög gott mat.
Við skulum líta aðeins nánar á nautin
og þær breytingar sem urðu.
Kláus 14031, f. Hjarði 06029,
mf. Laski 00010. Kláus þarf vart
að kynna lengur en hann er búinn
að vera í notkun um allnokkurt
skeið. Aðalsmerki hans eru sér-
lega mjólkurlagnar dætur með
góð efnahlutföll í mjólk. Kláus
hefur sífellt verið að styrkja sína
stöðu og er núna kominn með 113
í heildareinkunn eftir hækkun um 1
stig. Kláus er það naut sem stend-
ur efstur allra í nýju endingarmati,
með 137.
Risi 15014, f. Laufás 08003, mf.
Hjarði 06029. Risi var tekinn úr
hópi nautsfeðra enda búið að kaupa
hóp kálfa undan honum á stöðina.
Hann er með jákvætt mat fyrir flesta
þætti en dætur Risa eru stórar kýr,
nokkuð sem gott er að hafa í huga
við notkun hans. Risi lækkaði um
tvö stig og er heildareinkunn hans
nú 109.
Köngull 05019, f. Toppur
07046, mf. Bambi 08049. Köngull
er öflugt efnahlutfallanaut og
júgurgerð dætra með afbrigðum
góð og spenar vel gerðir en stuttir.
Köngull lækkaði um eitt stig og er
með 107 í heildareinkunn.
Steinar 15042, f. Bambi
08049, mf. Gæi 09047. Steinar var
í hópi nautsfeðra um stutt skeið
en hefur lækkað þó dætur hans
flaggi stórgóðri júgurgerð, mjög
góðum mjöltum og skapi. Steinar
lækkaði um tvö stig og er með 106
í heildareinkunn.
Mikki 15043, f. Sandur
07014, mf. Bambi 08049. Mikki
er efnahlutfallanaut auk þess sem
dætur hans státa af úrvalsgóðri
júgurgerð og góðum mjöltum og
skapi. Hafa þarf í huga að hann
gefur granna og langa spena. Mikki
er í hópi nautsfeðra og hækkaði
um eitt stig, er nú með 112 í
heildareinkunn.
Tanni 15065, f. Sandur 07014,
mf. Koli 06003. Tanni kemur
aftur inn sem nautsfaðir en hann
hækkaði um eitt stig, stendur í 115
í heildareinkunn sem skipar honum
í hóp þeirra allra bestu. Hann gefur
ákaflega júgurhraustar kýr með
úrvalsgóða júgurgerð en spenar eru
langir og grannir.
Knöttur 16006, f. Bolti 09021,
mf. Bambi 08049. Knöttur kom
inn með miklum látum og hefur
verið eitt alvinsælasta nautið
enda efnahlutfallanaut auk þess
sem dætur hans skarta mikilli
júgurhreysti, úrvalsgóðri júgurgerð
og góðu skapi. Hann lækkar hins
vegar um ein sex stig en ástæða
þess er að hann lækkar nokkuð fyrir
afurðir auk þess sem hann sígur
niður í flestum þeim eiginleikum
sem hafa vægi í heildareinkunn.
Niðurstaðan verður honum því
óhagfelld. Hann er eftir sem áður
með gott mat, 107 í heildareinkunn.
Bikar 16008, f. Bambi 08049.
mf. Vindill 05028. Bikar kom til
notkunar með gríðarhátt mat en vitað
var að það gæti tekið breytingum
vegna algjörs lágmarksfjölda dætra
á þeim tíma. Dætur hans hafa til
að bera frábæra júgurgerð auk
þess sem mjaltir og skap eru með
því besta sem við þekkjum. Hann
verður áfram í hópi nautsfeðra enda
mjög hár í mati þó hann hafi lækkað
um fjögur stig, heildareinkunn 112.
Jarfi 16016, f. Bambi 08049,
mf. Stíll 04041. Jarfi skipar áfram
flokk þeirra allra bestu þó hann hafi
lækkað um tvö stig. Styrkleikar
hans liggja í mikilli júgurhreysti,
frábærri júgurgerð, góðum mjöltum
og geysigóðu skapi auk þess sem
dætur hans skora hátt í gæðaröð.
Rétt er að hafa bak við eyrað að
spenar eru grannir. Heildareinkunn
er 115.
Skírnir 16018, f. Gustur 09003,
mf. Síríus 02032. Skírnir lækkar um
fjögur stig og verður ekki áfram í
hópi nautsfeðra. Hann er eftir sem
áður með gott mat enda eru dætur
hans efnaháar, með góða júgurgerð,
mjaltir og skap. Heildareinkunn
107.
Róður 16019, f. Keipur 07054,
mf. Lykill 02003. Róður verður
áfram meðal nautsfeðra þó hann
hafi lækkað um þrjú stig. Dætur
hans eru með mjög há efnahlutföll
í mjólk sem skilar honum mjög góðu
afurðamati. Spenar eru stuttir og
taka verður tillit til þess við notkun.
Heildareinkunn 108.
Kári 16026, f. Gustur 09003,
mf. Sandur 07014. Aðalsmerki Kára
er mikil júgurhreysti dætra ásamt
úrvalsgóðri júgurgerð, mjöltum
og skapi. Hvað afurðagetu varðar
eru dætur hans tæplega meðalkýr
en hann getur hentað mjög vel
á afurðakýr þar sem bæta þarf
byggingu, mjaltir og skap. Hann
lækkaði um þrjú stig en heldur samt
mjög góðu mati, heildareinkunn 107.
Höttur 16028, f. Flekkur 08029,
mf. Glæðir 02001. Dætur Hattar
eru miklar afurðakýr með góða
júgurgerð og jákvætt mat í flestum
eiginleikum. Stærsti gallinn á gjöf
Njarðar er að þær eru lágfættar og til
þess þarf að horfa við notkun. Höttur
hentar því öðru fremur á háfættar kýr
og getur nýst vel sem slíkur. Hann
lækkaði um tvö stig en heldur mjög
góðu mati, heildareinkunn 108.
Jónki 16036, f. Gói 08037, mf.
Flói 02029. Jónki verður áfram í
hópi nautsfeðra enda dætur hans
geysimiklar afurðakýr með góðar
mjaltir. Hins vegar er júgurgerð
ekki með því betra og því þarf að
nota hann með hliðsjón af því. Hann
er einnig annarrar ættar en önnur
naut í notkun og með mjög gott mat
þó hann hafi lækkað um þrjú stig,
heildareinkunn 108.
Herkir 16069, f. Gustur 09003,
mf. Baldi 06010. Herkir er með
jákvætt mat hvað flesta eiginleika
varðar þó það sé hvergi gríðarhátt.
Þetta er því naut sem getur hentað
alveg prýðilega í flestum tilvikum
en þó þarf að horfa til þess að
júgurgerð er heldur undir meðaltali.
Afurðageta er góð sem og mjaltir
og þá fellur mönnum vel við þessar
kýr. Herkir lækkaði um þrjú stig og
er heildareinkunn nú 106.
Naut sem fara úr notkun
Með hliðsjón af lækkun í mati og
lítilli notkun voru Dalur 16025 og
Númi 16038 teknir úr dreifingu.
Nautsfeður
Að undanförnu hefur Nautastöðin
einkum verið að kaupa kálfa undan
Pipari 12007, Hæl 14008, Kláusi
14031 og Risa 15014. Synir Mikka
15043, Tanna 15065 og Knattar
16006 eru byrjaðir að láta á sér
kræla.
Á næstu misserum verður
sjónum einkum beint að kálfum
undan Mikka 15043, Tanna 15065,
Bikari 16008, Jarfa 16016, Róðri
16019 og Jónka 16036. Auk þess
verður eitthvað keypt af kálfum
undan Steinari 15042, Knetti
16006 og Skírni 16018. Þeim
tilmælum er beint til manna að
láta sæða kýr á nautsmæðraskrá
og efnilegar kvígur með einhverju
eftirtalinna nauta; Mikka 15043,
Tanna 15065, Bakri 16008, Jarfa
16016, Róðri 16019 eða Jónka
16036.
Nautsmæður
Á nautsmæðraskrá í Huppu (með
rautt flagg) eru kýr með a.m.k.
107 í heildareinkunn, 90 fyrir
fituhlutfall og 100 fyrir mjaltir.
Þegar tilkynnt er um nautkálf
undan væntanlegri nautsmóður
eru aðrir þættir vegnir og metnir
svo sem afurðir og frjósemi.
Á skrá yfir efnilegar kvígur (með
grænt flagg) eru kvígur sem eru
með a.m.k. 108 í heildareinkunn,
90 fyrir fituhlutfall og 100 fyrir
mjaltir. Þegar tilkynnt er um
nautkálf undan kvígu eru aðrir
þættir skoðaðir og beðið fyrstu
mælingar, kýrsýnis og ákveðinnar
reynslu áður en ákvörðun um
framhaldið er tekin.
Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar um nautin er
hægt að nálgast á nautaskra.net
auk þess sem allt kynbótamat er
að finna inni á Huppu.
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur
í nautgriparækt
mundi@rml.is
Jarfi 16016 frá Helgavatni.
Tanni 15065 frá Tannstaðabakka.