Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022
„Ritverk um Skriðuhrepp er sann-
kallað stórvirki og sýnir mikið
þrek höfundar, vandvirkni og
þrautseigju.
Og fyrir sveitina er þetta ritverk
á við stóran gullsjóð,“ segir Jón
Hjaltason, útgefandi hjá Völuspá
útgáfu, en ritverkið Skriðuhreppur
hinn forni, bændur og búalið á
19. öld eftir Bernharð Haraldsson,
fyrrverandi skólameistara
Verkmenntaskólans á Akureyri, er
nýlega komið út á vegum útgáfunnar.
Um er að ræða tveggja binda
verk, samtals um 1000 blaðsíður,
prýtt ljósmyndum, teknum úr lofti, af
staðháttum þar sem merktir eru inn
allir bæir sem um er fjallað. Að baki
liggur margra ára vinna og grúsk í
öllum mögulegum og ómögulegum
heimildum og afraksturinn einstakt
verk segir Jón. „Og er þá ekki djúpt
í árina tekið.“
Í ritverkinu er fjallað um fólkið
í Skriðuhreppi á 19. öld, skyggnst
inn í heim, sem okkur er horfinn.
Bæjaröðin hefst við Syðri-Bægisá,
ysta bæ í Öxnadal og lýkur við
Dunhagakot í Hörgárdal. Alls eru
bæirnir 64 talsins og eru margir
þeirra farnir í eyði á okkar dögum.
Sagt frá ábúendum á hverjum bæ
Raktir eru ábúendur á hverjum bæ,
sagt frá uppruna þeirra, og gerð
grein fyrir afkomu og efnahag. Svo
eru fjölskylduhagir teknir til frekari
skoðunar, afkomendunum fylgt
eftir, sagt frá kunnáttu og menntun
og vegferð þeirra eftir því sem kostur
er. Skyldleika fólks eru gerð nokkur
skil. Litið er á mannlegan breyskleika
bæði er tekur til lausaleiksbarna
og gripdeilda. Vinnufólk fær sína
umfjöllun svo og fátæklingarnir,
margir þeirra aldnir og veikir,
umkomulítil börn, allt er þetta nefnt
einu nafni hreppsómagar.
Sagt er frá fyrsta póstráni sögunnar
og stórtækasta sauðaþjófnaði fyrr
og síðar í Eyjafjarðarsýslu, flóknum
réttarhöldum og dómum, erfðadeilur
koma við sögu, einnig slysfarir og
skaðar.
Ritið, sem er 1.016 bls. að
lengd og í tveim bindum, er byggt
á kirkjubókum, hreppsbókum,
dómabókum og manntölum auk um
100 rita og greina. Þar eru einnig
loftmyndir, þar sem merktir eru
inn þeir bæir, sem koma við sögu
og einnig eru nokkrar myndir af
húsakosti fyrri tíðar.
Rúmlega áratugur frá upphafi
til enda verksins
Bernharð Haraldsson, höfundur verks-
ins, segir að þó svo hann hafi verið að
í áratug, með góðum hléum á milli,
sé mun lengra liðið frá því fyrsta
hugmynd hafi kviknað í kolli sér. Sú
saga nær allt til haustsins 1973 þegar
hann lagði upp í ferðalag frá Akureyri
suður yfir heiðar að sækja glænýjan
draumabíl fyrir fjölskylduna og ók
honum einn norður. Við Héraðsvötn
í Skagafirði tók hann mann upp í bíl-
inn, sá kvaðst heita Stefán Jónsson
og vera á leið í Fremri Kot. Rakti
hann garnir úr bílstjóranum um ættir
og uppruna en móðurætt Bernharðs
er úr gamla Skriðuhreppi, móðurafi
hans, Sigursteinn, var bóndi í eina tíð
á Vindheimum.
Átti að vera lítil bók um íbúa hins
forna Skriðuhrepps
Bernharð segir að hann hafi í kjöl-
farið skoðað kirkjubækur á filmum á
Héraðsskjalasafninu og haft gaman
af því grúski. Tími fyrir slíkt hafi þó
verið helst til naumur á meðan hann
sinnti annasömu starfi skólameist-
ara í fjölmennum framhaldsskóla.
Þegar hann lét af störfum í kring-
um síðastliðin aldamót tóku ýmis
verkefni við, hann skrifaði Sögu
Verkmenntaskólans á Akureyri og
Sögu Gagnfræðaskólans á Akureyri
ásamt öðrum, auk þess að taka þátt
í að búa sögu Eyfirðinga í 6 bindum
til prentunar. Á þeim tíma velti hann
fyrir sér að taka saman litla bók um
íbúa í hinum forna Skriðuhreppi og
hófst skipulega handa við að safna
heimildum.
Verkið óx heldur betur að umfangi,
endaði í ríflega þúsund blaðsíðna
ritverki. „Það er rúmlega áratugur frá
upphafi til enda þessa verks,“ segir
Bernharð. „En hléin voru mörg,“
bætir hann við og vitnar í konu eina
á Þelamörk sem sagði um tímann að
hann væri ekki langur þegar hann væri
liðinn. Hann segir ýmsar tilfinningar
skjótast upp á yfirborðið við verklok.
„Ánægjan yfir loknu verkefni, hún
verður ekki af manni tekin. Uggur
um að ekki hafi verið nógu vel
unnið. Vonandi er hann byggður á
misskilningi,“ segir Bernharð og bætir
við til að hafa á hreinu: Bókin er bara
svona og svona verður hún.“ /MÞÞ
BÆKUR& MENNING
Skriðuhreppur hinn forni, bændur og búalið á 19. öld:
Sannkallað stórvirki
sem jafnast á við
gullsjóð fyrir sveitina
Bernharð Haraldsson, fyrrverandi
skólameistari Verkmenntaskólans
á Akureyri, höfundur ritverksins
Skriðuhreppur hinn forni, bændur
og búaliða á 19. öld. Myndir / Aðsendar
Alls er fjallað um ábúendur á 64 bæjum í gamla Skriðuhreppi, en þeir eru
merktir á loftmyndir sem birtar eru í bókinni.