Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202262
Góð sala var fyrir síðustu áramót
á tvinnbílum (hybrid) áður en
þeir náðu 15.000 skráðum bílum,
eitthvað hefur hægst á sölunni
á svoleiðis bílum þar sem þeir
hækkuðu töluvert eftir að 15.000
bílum var náð.
Flestir þessara tvinnbíla komast á
bilinu 25-50 km á rafhlöðunni áður
en jarðeldsneytisvélin tekur við.
Einn er sá bíll sem kemst töluvert
lengra en aðrir, en Benz GLE 350
Plug-in-Hybrid er gefinn upp fyrir að
komast allt að 94 km á rafhlöðunni
áður en vélin tekur við. Ég prófaði
Benz GLE 350 de 4Matic Coupe
helgina 12.–13. febrúar, „Hybrid bíll
sem kemst lengra en aðrir“.
Frostið á bilinu -8 niður í
-3 á rafhlöðunni
Fyrri daginn var mikið frost, en
mjög gott veður og byrjaði ég á að
langkeyrslu. Frá Öskju að síðasta
hringtorginu fyrir Flugstöðina í
Keflavík fór bensínmótorinn aldrei
í gang, en þegar ég beygði út úr
hringtorginu fór mótorinn í gang,
en þá hafði ég ekið á rafhlöðunni
einni í 53 km. Ekki slæmt því við
Öskju byrjaði ég í -8 stiga frosti og
hæst fór hitinn í -3 á þessari leið.
Það skal tekið fram að ég var ekkert
að reyna að spara rafmagn og ekki á
sparakstursstillingu.
Ég myndi treysta mér til að fara
a.m.k. 20 km lengra ef ég hefði verið
að spara rafmagnið í þessum kulda
og í innanbæjarakstri því bíllinn
hleður inn á rafhlöðuna í hvert
sinn sem hægt er á og bremsað.
Þannig endist lengur á rafhlöðunni
í innanbæjarakstri, en fer hraðar út
í jafnri langkeyrslu.
Eins og alla bíla sem ég prófa
mældi ég hávaðann inni í bílnum á
90 km hraða og kom bíllinn mjög vel
út og mældist hávaðinn inni í honum
ekki nema 65,3 db., sem er með því
betra sem ég hef mælt.
Kraftmikill og skemmtilegur
í akstri
Benz GLE er fáanlegur í mörgum
útfærslum, kostar frá 11.990.000.
Bíllinn sem ég prófaði kostar
14.490.000. Aflið í bílnum sem
prófaður var er sagt vera 306 hestöfl,
sjálfskiptur og uppgefin eyðsla er
sögð vera 1,3 lítrar á hundraðið
miðað við 100 km akstur og fulla
rafhlöðu í byrjun.
Þegar ég var búinn með allt
rafmagn var ég að eyða nálægt 8
lítrum í langkeyrslu og virtist vera rétt
yfir 10 lítrum í innanbæjarakstrinum.
Bíllinn er með mjög góða snerpu
og er sagður eiga að ná 100 km
hraða á 6,9 sek. Eina hættan sem
ég skynjaði oft að ég var gjarnan
kominn á of mikinn hraða vegna þess
hvað snerpan var góð. Skriðþunginn
er of mikill á bílnum, sem er um
2.600 kg, var óþægilega mikill þegar
ég þurfti að bremsa þar sem hálka
var mikil og snjór á veginum.
Miðað við tvinnbíl þá er
dráttargeta hans góð, en bíllinn
sem prófaður var má draga 2.900
kg kerru. Algengt er að tvinnbílar
megi ekki draga þyngra en 750-1500
kg kerrur.
Þægindi, öryggi og meiri þægindi
Bíllinn er með endalausa takka til
að auka þægindi, sem hægt væri
að skrifa mikið um en plássið fyrir
texta er takmarkað og er hér það
helsta. Ég minnist ekki að hafa
keyrt bíl með svona þægilegum
framsætum, endalausar stillingar,
hitinn upp á bak. Mig langar svo
mikið í þessi sæti í minn bíl, bara
eitt orð um þau; VÁ.
Miðstöðin er varla mikið meira
en mínútu að byrja að blása heitu,
hitinn í stýrinu er stundum aðeins
of heitur, en notalegt að hafa hita
í stýrinu.
Bíllinn er nánast gallalaus, en ég
er frekar heftur á tölvur og takka,
en það tók mig smá stund að finna
hvernig ég gæti tekið spólvörnina
af þegar ég var að skoða hvað hann
gæti í snjó, en ég klóraði mig fram
úr því og í gegnum skaflinn fór
bíllinn tiltölulega létt.
Ekkert varadekk er í bílnum
og 20 tommu felgurnar voru ekki
að skora hátt hjá mér. Þegar ég
fór í snjóskaflinn fór snjór inn í
felgurnar og festist þar og þegar
hann byrjaði að brotna úr hristist og
skalf bíllinn svo mikið að ég varð
að stoppa og brjóta snjó/klakann
innan úr felgunum. Ef bíllinn
hefði verið á eins litlum felgum
og hægt hefði verið að setja undir
hann hefðu bremsudælurnar séð
um að halda felgunum snjólausum
að innan. Þetta er ekki fyrsti bíllinn
á of stórum felgum sem ég hef
keyrt sem ég hef orðið var við
þessi leiðindi.
Þrátt fyrir örfáa neikvæða
punkta þá eru jákvæðu punktarnir
svo miklu fleiri. Einfaldlega besti
„hybrid“ bíll sem ég hef keyrt, fer
lengst af öllum sem ég hef prófað
á rafhlöðunni, er kraftmikill og
þægilegur í akstri.
Nánar má lesa um bílinn á
vefsíðunni www.askja.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 2.655 kg
Hæð 1.795 mm
Breidd 1.947 mm
Lengd 4.924 mm
Helstu mál og upplýsingar
Benz GLE 350 de 4MATIC Coupé. Myndir / HLJ
Á erfitt með að lýsa hrifningu minni á þessu sæti.
Fannst of seinlegt og flókið að taka spólvörnina af, hefði viljað 1 takka og
spólvörnin af strax.
Á jafnri keyrslu stakk bíll sér rétt fram fyrir mig og þá kom þessi viðvörun
í mælaborðið.
20 tommu felgurnar skoruðu ekki hátt hjá mér, fullar af snjó og klaka.
Farangursrýmið er mjög stórt, en ekkert varadekk, bara pumpa og vökvi.
Hávaði inni í bíl upp á 65,3 desíbel
er mjög gott á 90 km hraða.