Bændablaðið - 24.02.2022, Side 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 63
Með hækkandi sól og lengri
dagsbirtu er gaman að stunda
ýmiss konar útivist. Allir hafa
gaman af útiveru á góðum degi,
sama hvort það er að vetri eða á
sumrin, en á veturna þarf maður
að vera vel og rétt klæddur.
Þegar horft er út um gluggann á
degi sem lofar góðu til útivistar eru
margir sem feilreikna vindinn og
vindkælingu. Þó að hitamælir segi
að úti sé -2 til +2 gráður þá þarf að
reikna með vindkælingu við alla
útivist, sama hver hún er. Skíðafólk
klæðir sig almennt vel því oft er
kalt annaðhvort í lyftunni á leið
upp brekkuna eða þegar skíðað
er niður. Oft finnst fólki skrítið
að skíðasvæðin séu lokuð vegna
vinds, en ef stöðugur vindur fer
upp fyrir ákveðið marga metra á
sekúndu er skíðasvæðum lokað,
eða þau ekki opnuð. Það er oftar
en ekki út af vindkælingu.
Í kulda þarf að reikna metra
á sek. í kílómetrum
Til að átta sig á hvað vindkæling
getur verið mikil þá er gott að
vita hvað hraðinn sem maður
er á er mikill hraði í metrum á
sekúndu. Sé maður úti að skokka,
á hestbaki eða á gönguskíðum
er ekki óalgengt að maður sé á
hraða sem er á bilinu 4-6 metrar
á sek. Sé verið á tækjum eins og
fjórhjólum þá er algengur hraði
á þeim á bilinu 10 til 14 metrar á
sek., en á vélsleða er ekki óalgengt
að hraðinn sé á bilinu 18-26 metrar
á sekúndu.
Ef hitinn er á bilinu +2 til -2
gráður er vindkælingin fyrir
skokkarann, hestamanninn og
gönguskíðamanninn þá á bilinu
-3 til - 8 gráðu frost. Í sama hita
á fjórhjóli er vindkælingin -5 til
-11 gráður, en á vélsleðanum gæti
hún verið allt að -13 gráðu frost.
Því er ágætt að leggja á minnið
vindkælingatöfluna á myndinni
með þessari grein.
Ýmis ráð
Hingað til hafa Íslendingar
almennt verið sagðir kunna að
klæða sig gegn kulda og fyrir
útivist á veturna, en alltaf koma
sögur af hrakningum vegna kulda.
Það er mín persónulega skoðun
að enginn fatnaður jafnist á við
íslensk ullarföt, húfur, vettlinga og
aðrar handprjónaðar flíkur.
Fyrir nokkrum árum skrifaði
ég um upphituð undirföt sem
ég prófaði frá framleiðanda í
Bangladesh sem heitir Fieldsher.
Nú er hægt að fá svona vettlinga
með rafhlöðu sem heldur
vettlingnum heitum/volgum frá
2 klukkutímum upp í 10 tíma á
rafhlöðunni. Slíkir vettlingar voru
fáanlegir fyrir áramót í Costco og
kostaði parið um 16.000. Ég á
svona par og hef prófað og þetta
virkar fínt. Einnig er hægt að fá
einnota hitapoka sem maður setur
inn í vettlinga sem duga í allt að
sex tíma og litla leppa fyrir tær sem
maður límir neðan á sokkana áður
en maður fer í skó (fæst í kassavís
í Costco). Sjálfur er ég með hvort
sína pakkninguna (fyrir hendur
og tær) í vasanum á vinnuúlpunni
allan veturinn.
Ýmis ráð til að verjast kulda
Ýmis ráð eru til við að verjast
kulda, en einhver besti búnaður
sem ég hef kynnst til að verjast
fótakulda voru utanyfirskór
sem ætlaður var starfsfólki í
Bláfjöllum sem notaðir voru utan
yfir hefðbundna gönguskó eða
strigaskó. Aldrei varð manni kalt
í þessum skóbúnaði þó að maður
stæði klukkutímunum saman í
miklu frosti (veit ekki hvar þessar
„yfir-bomsur“ fást keyptar).
Fyrir þá sem eru mikið á
fjórhjólum, vélsleðum eða
mótorhjólum í útivist er hægt að
kaupa sérstaka poka á stýrið sem
hlífa höndunum fyrir vindkælingu
(fæst m.a. í JHM-Sport Stór höfða).
Bremsuhandföngin og kúplings-
handföng kæla mjög putta, en
með því að setja ál-límband
á handföngin eða bara venju-
legt einangrunarband dregur
það verulega úr puttakælingu.
Oft er nefið svo kalt að mann
verkjar í það, en með því að nota
hælsærisplástur á nefið og jafnvel á
kinnar er hægt að koma í veg fyrir
kulda og kal. Klæðum okkur í takt
við veður og njótum útiverunnar
þó að úti sé kalt, með því að klæða
okkur eftir veðri og vindum.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
LUFSUR ÝTA GÆLUNAFN BLAÐA-
BROT BLÓMI TÍMABILS
SSÁTTMÁLI T O F N S K R Á AGAÐUR
KGLEÐJA Æ T A ÓVILJANDI Ó V A R T
ÓURMULL T A FRJÁLSA
HLYKKI L A U S A
L GEIL
RIST S K A R Ð ALLS-
NÆGTIR M
L HLÝJA
ÞRÆÐIR
NÓTA T A U G A R
GERÐ
RAF-
VÖKVI T A G I
SVÍKJAFRÆÐA
LTVEIR EINS
STAGL
L
E Y R A TVEIR EINS
TÓNSTIGI R R KVÍÐI Ó R Ó TVEIR EINS
AFHENDA N NSKYNFÆRI
G L E F S ÆFA
STAFUR I Ð K A UPPISTAÐA
SLÁ L Ó NBIT
U U SKORPA
FLANA S K E L HLÉ
HAMLAR A F L Á T HAMINGJATVEIR
EINS
B R Á
SÉR-
HVERJA
NEÐAN A L L A
STAÐFESTA
BRAGAR-
HÁTTUR V O T T AKVK NAFN
E LÖTUR
ILLGRESI L U L L GAPA
AFGREITT F L A K A AUÐN U
K A P P I SKÁLMA
HVAÐ S T I K A STAFUR
MATJURT E ÐÁKAFA
K R A P API
Í RÖÐ H E R M I ÆTT
ÁTT K Y NSLABB
U
R
F
I
S
T
GER-
SIGRAR
U
M
N
A
HINDRUN
L
T
A
R
R
A
FYRIRGEFA
F
N
A
Á
L
Ð
I
AÞAKBRÚN
LETRUN
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
168
SKERÐING SVIF KLÆÐI NAPUR SANNUR UMRÓT
SÆLINDÝR KUNN-
GERA
ÓPRÝÐA KK NAFN
FJAR-
STÆÐA
SEMSÉ
FRAM-
BURÐUR
SIGTA
EFTIR-
FYLGJANDI
ÞRÆLKUN
NÖÐRU
ÓGÆFA
TVEIR EINS
ÍLÁT
SKYLDIR
Á NÝ
KRYDD-
JURT
EIN-
RÆKTA
TVEIR EINS
VAÐALL
GET
BIRTA
DRASL SKJÓTASTGLÓA
RISTIR
ÚRRÆÐA-
LÍTILL
VIÐMÓT
RÓT
GRAMUR
TEGUND
VERKFÆRI
REFSING
GANGFÆR
TVEIR
EINS
NOKKRIR
KOSIÐ
TVÍBAKA
EINBLÍNA
STRIT
MÆLTI
VAPP
ÞRÁIR
ÁÞEKK
STIG
SÍFELLT
ÁTT
KÚGA
VAXA
PLANTA
UM SÍÐIR
TVÍ-
HLJÓÐI
MÚÐUR
STEFNA
AÐ VÍSU
GARÐS-
HORN
GÆLU-
NAFN
ÞRÁR
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
169
Vindkæling er lúmskari en margan grunar