Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 66
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202266
UMHVERFISMÁL
Ekki er alltaf tekið út með sældinni
að sinna störfum lögreglusveitar
Los Angelesborgar, en fyrir 3-4
árum póstuðu þeir félagar tölu-
verðum fréttum á Tvitter.
Aðdragandi þeirra frétta hófst
með þeim ósköpum að mikið var
um kvartanir til lögreglu vegna
aukaverkana sem fólk varð fyrir,
við förðun sína og snyrtirútínu, þá
til að mynda vegna bólumyndunar
og kláða, helst í kringum augu
og munn. Ekki hefðu allir leitað
til yfirvalda vegna slíkra málefna
en tekið var á málinu með mikilli
alvöru og sveit rannsóknarlögreglu
sett í að finna lausn.
Kom á daginn að margir þeir er
sendu inn kvartanir höfðu verslað í
því sem kallast „Fashion District“
hverfi Los Angeles og brugðu yfirvöld
sveitar þeirrar er rannsökuðu málið á
það ráð að dulbúast í gervi almennra
borgara og keyptu snyrtivörur af
búðum og sölubásum sem selja hvað
helst falsaðar snyrtivörur. Þessar
snyrtivörur fela sig undir ágætis
merkjum eins og förðunarlínu Kylie
Kardashian, Urban Decay, NARS,
MAC, sem og Naked, en sú lína
gefur sig alla jafna út fyrir að selja
sem lífrænastar vörur. ... Ekki það
að vörurnar sem seldar voru undir
fölskum formerkjum hafi ekki verið
stútfullar af lífrænum efnum en e.t.v.
ekki á sama hátt og neytendur myndu
ætla.
Eftir verslunarferðina var farðinn
sendur á rannsóknarstofu lögreglunn-
ar og við niðurstöður rannsókna kom
í ljós að hann innihélt ótæpilegt magn
baktería og saurs úr mannfólki.
Lögregla brást skjótt við og
greindi frá niðurstöðum sínum á
samfélagsmiðlinum Twitter. „The
best price is not always the best deal“
var fyrirsögnin, sem þýða má á þá leið
að gæta þyrfti að sér þegar keyptar
væru ódýrar snyrtivörur. Lögreglan
áminnti fólk um að hafa varann á
þegar ætlunin væri að spara sér
örfáar krónur því hættan af fölsuðum
snyrtivörum gæti vegið meira en
bara á fjárhagslegan máta. Margar
snyrtivaranna færu alls ekki í gegnum
venjulegt ferli heilbrigðiseftirlits og
gætu haft skelfileg áhrif á neytendur,
stefnt öryggi þeirra í hættu. Auk hás
hlutfalls baktería og mannasaurs
sem fundust í snyrtivörunum,
fannst einnig mikið magn af blýi
auk dýraskíts.
Telur lögreglan blönduna hafa
verið orsakavaldur óþols þeirra
neytenda er lögðu fram kvartanir og
biðlar til almennings að kynna sér
vel þær vörur sem verslaðar eru inn
á heimilið og þó þekkt vörumerki
séu eitthvað dýrari er vænlegra
að líta fram hjá því en að verða
fyrir eitrunum.
Við rannsóknina voru sex
einstaklingar handteknir og
lögreglan lagði hald á snyrtivörur
að andvirði 700.000 bandarískra
dollara! Og reikniði nú!
Sama rassía átti sér stað aftur
tveimur árum síðar samkvæmt
reglubundnu eftirliti og þá var
lagt hald á snyrtivörur að andvirði
yfir 300.00 dollara og aftur lenti
förðunarlína Kylie Kardashian illa
í því. Kylie sjálf er afar vinsæll
áhrifavaldur og vörur hennar
vinsælar. Engir sölumenn voru
handteknir í þetta skiptið en fengu
viðvörun – og ekki var um að ræða
þá sömu og voru áður settir á bak
við lás og slá.
Nú stendur yfir hið tví-árlega
eftirlit, en endanlegar tölur ekki
komnar í hús og þá spurning hvort fólk
hafi gætt betur að gæðum varnings er
berast þeim frá „heildsölum“, hvort
færri versli þessar ódýru vörur eða
hvort fólk sem kaupir snyrtivarning
af sölubásum skammist sín fyrir – og
velji að deila ekki þeim upplýsingum,
jafnvel þó það klæji. /SP
Tilkynning á Twitter:
Lögregla varar við
ódýrum snyrtivörum
Fölsuð vara eða ekki? Lítum
á merki MAC og Kylie.
MAC varalitur
- Silfurlitur límmiði á botninum
sem ber nefnið Angel er gráleitari
og mattari á vöru sem er fölsuð.
Einnig á nafni varalitarins sem grafið
er í hulstrið, er C-ið í MAC örlítið
uppsveigt í fölsuðu vörunni og svo
ættu þeir sem kunnugir eru varalitnum
að þekkja sæta lykt hans á meðan
hana er ekki að finna á þeim falsaða.
Kylie varablýantur / gloss
- Á falsaðri vöru er leturgerðin örlítið
grennri, litur boxins á falsaða boxinu
appelsínurauðari í stað þess að hafa
bláan undirtón, en það sem mest
er um vert vantar copyright merkið
á boxið! Á vörunni sjálfri, í þessu
tilviki varablýantur og gloss, má sjá að
falski varablýanturinn er mun styttri
en hinn. Stimpill fölsku vörunnar er
silfurlitaður en á hinni réttu er hann
grafinn í blýantinn. Glossið hins vegar
hið falska er einnig styttra og meðal
annars hefur hönnunin á dropum
umbúðanna eitthvað farið forgörðum.
Fremsti hluti glossins, sem borinn
er á varirnar, hefur þynnri bursta á
þeim falska og er áferðin allt önnur
en á þeim rétta. Sæt lykt og rennilegra
gloss tilheyrir þeim sem er ófalsaður.
Í áðursögðum fréttum hér á síðum
Bændablaðsins var farið aðeins
yfir stöðu tískurisanna, Chanel,
Dior og annarra varðandi
sjálfbærni, sóun og stöðu er
kemur að umhverfisvernd.
Gleðilegt er að segja frá því
að nú gyrti franska stórveldið
Chanel sig í brók er kom að
húð-og förðunarvörum og hóf
árið með lífræna línu sem byggir á
vistvænum og heildrænum stöðlum.
Umbúðir varanna eru að sama skapi
undir þeim formerkjum, en nýlega
sendu höfuðstöðvar tískunnar frá sér
tilkynningu þar sem kom fram að
þetta skref væri umhverfisvænt átak,
liður fyrirtækisins í að vinna með
lífrænar afurðir. Um ræðir hágæða
vörur, gerðar úr sem náttúrulegustum
hráefnum auk þess sem kynntar voru á
markaðinn umhverfisvænni umbúðir.
Meðal þess sem má finna í þessari
nýju vörulínu er serum, húðkrem,
nokkur andlits- og augnkrem, ilmúði,
hreinsiefni og ýmislegt annað.
N°1 de Chanel
N°1 de Chanel, eins og línan kallast,
státar af því að í þeim eru allt að
97% innihaldsefna af náttúrulegum
uppruna (samkvæmt ISO 16128
staðlinum, sem skilgreinir hvernig á
að ákvarða tölulegt magn náttúrulegs
og lífræns uppruna og gerir það
auðvelt að bera saman einstök
hráefni og fullunnar vörur). Ákveðið
var að aðalsmerki N°1 de Chanel yrði
blómið Rauða kamellían (Camellia
japonica) en það var eftirlætisblóm
Gabrielle Chanel.
Rauða kamellían hefur þann
kost að vera rík af andoxunarefnum
og dregur úr öldrunareinkennum
húðarinnar auk þess að örva
náttúrulega endurnýjun hennar. Sem
dæmi, í húðkreminu Revitalizing
Cream má finna allt að 76%
efnis unnu úr Rauðu kamellíunni,
meðal annars úr krónublöðunum
og fræjunum, en reynt er að nýta
plöntuna til hins ýtrasta svo sem
minnst fari til spillis.
Léttar og umhverfisvænar
umbúðir
Mikið hefur verið lagt í umbúðirnar
– ekki síður en innihald þeirra.
Notkun plasts var takmörkuð,
sérstaklega einnota. Sellófan utan
um pakkningar hefur verið fjarlægt,
auk upplýsinga á pappír skipt út fyrir
QR kóða. Aðeins lífrænt blek notað
til að skreyta glerflöskurnar og nöfn
snyrtivaranna frekar grafin í umbúðir
heldur en prentuð á með bleki. Að
auki eru öll lok á krukkum eða túbum
gerð úr endurunnu eða lífrænu efni.
Glerkrukkur eru áberandi, allt
að 80% umbúða í stað plasts áður,
þyngd þeirra hefur minnkað um 30%
að meðaltali með straumlínulagaðri
hönnun auk þess sem hugmyndin
er að áfyllingar séu í boði. Ef
tekið er dæmi – með því að
endurfylla Revitalizing Cream
krukkuna tvisvar, getur losun
gróðurhúsalofttegunda þess
minnk að um helming.
Að lokum
Að auki innihalda lok á krukkum
kremsins Revitalizing Cream
meðal annars hismi fræja Rauðu
kamellíunnar. Þessi nýjung er
afrakstur samstarfs Chanel og finnska
sprotafyrirtækisins Sulapac en lokin
eru samsett úr 90% lífrænum efnum
sem koma frá endurnýjanlegum
auðlindum, þar á meðal hismi
kamellíufræjanna. Áhugavert er
annars að við framleiðslu lokanna
var hvert smáatriði í ferlinu íhugað
vandlega. Allt frá viðnámi efnisins
gegn hitabreytingum, hljóðið sem
heyrist er krukkunni er lokað,
hvernig krukkan fer í hendi ... en
svo var kórónan sett á toppinn er
hið táknræna tvöfalda C var grafið
á lokið með mattri satínáferð.
N°1 de Chanel er nú fáanlegt
í rafrænni verslun Chanel (www.
chanel.com) og verður væntanlega
komið í hendur íslenskra neytenda
áður en langt um líður. /SP
Vistvæn framleiðsla úr blómum Rauðu kamellíunnar:
Ný lína lífrænna húð-
og förðunarvara
Breska fyrirtækið vinsæla, Lush
Cosmetics, tók nýverið þá róttæku
ákvörðun að hætta á nokkrum
helstu samfélagsmiðlunum –
Facebook, Instagram, TikTok og
Snapchat – til þess að vekja athygli
á þeim skaða er þessir vettvangar
hafa á geðheilsu fólks. Þetta er þó
í annað sinn sem fyrirtækið tekur
til þessa bragðs og spurning hvort
fylgjendur taki hugmyndina
alvarlega.
Vörur Lush Cosmetics
og innihaldsefni, líkt
og lífrænar baðbombur,
sjampó og sápur, eru ekki
prófuð á dýrum, né má
finna í þeim nokkuð sem
ekki hentar grænmetisætum
– og eru því vandlega merktar
stimpli PETA. Vörumerkið er
einnig virkur stuðnings- og baráttu-
aðili félags um umhverfismál, styður
meðal annars Black Lives Matter,
berst gegn eyðingu skóga og stuðlar
að sjálfbærni.
Lush, sem er með meira en 900
verslanir um allan heim, þar af 240 í
Bandaríkjunum og Kanada, tilkynnti
að það myndi halda sig utan samfé-
lagsmiðlanna þar til tekið yrði á því
umhverfi og það gert öruggara fyrir
fylgjendur sína.
Ákvörðunin tekur þó ekki yfir
alla miðla en í stað fyrrgreindra
samfélagsmiðla ætlar fyrirtækið að
auka viðveru sína á Youtube, nota
Twitter til þess að þjónusta viðskipta-
vini, senda fréttabréf í tölvupósti
þegar kemur að herferðum og nýta
Pinterest til auglýsinga.
Til viðbótar,
þá hefur sú hugmynd
komið upp að senda út bæk-
linga og vera virkari með kynningar
í samfélaginu sjálfu – ekki yfir netið.
Einn yfirmanna Lush, Jack
Constantine, benti á að hlutverk hans
í fyrirtækinu fæli meðal annars í sér
að hanna vörur sem hjálpuðu fólki
að slaka á og huga að vellíðan sinni.
Forrit samfélagsmiðla væru andstæð-
ur þess markmiðs en þau eru hönnuð
með það fyrir augum að fólk fletti í
sífellu og finni því ekki þá andlegu
afslöppun er hugmyndafræði Lush
sæi fyrir sér.
Lush er ekki fyrsta stóra vöru-
merkið til að endurskoða stefnu sína
á samfélagsmiðlum. Samkvæmt vef-
síðu www.vouge.com hætti Bottega
Veneta óvænt á samfélagsmiðlum í
apríl sl. og gefur þess í stað út staf-
rænt tímarit ársfjórðungslega sem
heitir Issue. Balenciaga hreinsar
nú reglulega allt út af Instagram
aðgangi sínum í stað þess að
halda öllu inni og Nicolas
Ghesquière fylgdi í kjölfarið á
vor/sumarsýningu Louis Vuitton
2022. Einungis má sjá tvö mynd-
bönd frá sýningunni á Instagram
aðgangi hans.
Svo virðist sem almenningur
sé líka að verða meðvitaðri um galla
þess að vera stöðugt að fylgjast með
veröldinni yfir samfélagsmiðla.
Áhrifavaldar svokallaðir virðast
einnig fylgja straumnum en æ fleiri
setja nú efni á miðla sína sem er
vistað þannig að það hverfur eftir
stuttan tíma.
Að auki er fólk nú oftar að kaupa
vörumerki sem setja gildi sín í forgang
í stað þess að eltast á allan mögulegan
hátt við tilvonandi viðskiptavini með
það fyrir augum að græða sem mest.
/SP
Lush Cosmetics standa fyrir hugarró og huggulegheit:
Hættir á samfélagsmiðlum