Milli mála - 2021, Blaðsíða 125
MILLI MÁLA
124 Milli mála 13/2021
y toros (,útdeila dúsum‘), paz y tranquilidad (‚friður og ró‘), (como)
perro y gato (‚eins og hundur og köttur‘), punto y basta (‚punktur og
basta‘), Romeo y Julieta, (ser) tortas y pan pintado (‚vera auðvelt‘), (ser)
uña y carne (‚vera mjög nánir vinir‘), usos y costumbres (‚venjur og
hefðir‘).
Þýska: das A und O (‚aðalatriðið‘), Furcht und Schrecken (‚ótti og
skelfing‘), Geld oder Leben (‚peningana eða lífið‘), Gift und Galle
(spucken) (‚hella úr skálum reiði sinnar‘), Hab und Gut (‚aleigan‘),
(mit) Haut und Haar/Haaren (‚í húð og hár‘), Hinz und Kunz (‚Pétur
og Páll‘), Ja und Amen (‚já og amen‘), Kommen und Gehen (‚rennerí‘),
Krethi und Plethi (‚allir, Pétur og Páll‘), Kraut und Rüben (‚hráviði‘),
Land und Leute (‚land og þjóð‘), Lug und Trug (‚lygar og blekkingar‘),
Lust und Laune (‚eftir hentugleikum‘), Nacht und Nebel (‚með leynd,
í skjóli nætur‘), Pech und Schwefel (‚óaðskiljanlegir‘), Romeo und Julia,
Sack und Pack (‚hafurtask‘), Samt und Seide (‚í pell(i) og purpura, rík-
mannleg klæði‘), Schall und Rauch (‚innantóm orð‘), (jemandes) Tun
und Treiben (‚það sem e-r hefst að, athafnir e-s‘), Wohl und Wehe,
(‚velferð‘).
3.1.1.2. Lýsingarorð
Kjarnaorðin í eftirfarandi orðapörum eru lýsingarorð og bygging
þeirra er þá lýsingarorð + samtenging + lýsingarorð og stytt:
[lo+st+lo]. Hér skal á það bent að oft getur verið erfitt að greina á
milli lýsingarorðs og atviksorðs í íslensku og þýsku og fyrir vikið
getur eftirfarandi flokkun ekki talist óumdeilanleg.
Íslenska: glaður og reifur, gott og gilt, haltur og skakkur, hár og
grannur, hreinn og beinn, klappað og klárt, klippt og skorið, lífs eða liðinn,
ljótur og leiðinlegur, réttur og sléttur, ríkir og fátækir, skýr og skorinorður,
skakkur og skældur, sléttur og felldur, slyppur og snauður, súrt og sætt,
svart og hvítt, svart og sykurlaust.
Spænska: alto y bajo (‚hár og lágur‘), ares y mares (‚gnótt‘), blanco y
negro (‚svart og hvítt‘), bueno y barato (‚gott og ódýrt‘), claro y oscuro
(‚ljós og skuggar‘), común y corriente (‚algengur, hversdagslegur‘),
KURZ UND BÜNDIG , RASO Y CORTO EÐA STUTT OG LAGGOTT
10.33112/millimala.13.5