Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Page 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Page 14
14 – Sjómannablaðið Víkingur – Nei, blessaður vertu ég er hættur á sjó, segir viðmælandi minn þegar ég spyr út í aflabrögð, svona til að brjóta ísinn. – Ég kom í land þegar ég varð sjötug- ur sem var í október á síðasta ári. Aftur verð ég kjaftstopp, röddin í sím- anum ber ekki með sér að vera komin á áttræðisaldur. Annars er tilefni samtalsins að þegar tilkynnt var um úrslit í Ljósmyndakeppni sjómanna 2019 var fyrsta sætið sagt Sig- urðar Arnars Baldurssonar. Þó er óum- deilt að Sigurður heitir Örn en ekki Arnar og er Baldvinsson. Ég vildi svo sem ekk- ert brydda upp á þeirri staðreynd, sem ég flíka ógjarnan, að Örn og Arnar eru mér þungur ljár í þúfu þegar kemur að fall- beygingu. En sem sagt, erindið var að biðja Sig- urð Örn afsökunar og leiðrétta mistökin. Byrjaði á dekki og endaði á dekki Og úr því talsamband var komið á var ekki úr vegi að spjalla ögn. Og þá var fyrst að forvitnast um hvernig það væri fyrir gamalreyndan sjómann að vera kominn í land? – Jú takk, þetta hefur gengið ágæt- lega. Að vísu fannst mér nokkuð lengi eins og ég væri bara í fríi. Þegar Múlabergið kom inn var alltaf eitt- hvað sem togaði. Þetta var einkenni- leg tilfinning, það skal ég játa. En ég fer aldrei niður á bryggju, hef reyndar aldrei verið neinn bryggjukarl og þegar við vorum að landa fann ég aldrei hjá mér neina hvöt til að rölta um bryggjur og skoða skip. Svo að þú og hafið eruð skilin að skiptum? – Svona að mestu. Ég skal játa að ég hef fylgst með þegar Múlabergið tekur þátt í togararallinu fyrir Hafró. Maður kveður ævistarfið ekki svo glatt. Ætli ég hafi ekki byrjað á sjónum 1964 eða ´65. Og núna seinast var ég búinn að vera samfleytt í 19 ár á Múlaberginu áður en ég hætti í fyrra. En satt að segja hef ég alltaf verið að hætta á sjónum, já allt frá því ég fór í fyrsta sjóróðurinn, sem hljómar einkennilega. En þú gerðir samt aldrei alvöru úr því að hætta? – Ég reyndi nokkrum sinnum. Vann til dæmis í Slippstöðinni á Akureyri. Ætlaði að læra ketil- og plötusmíði. Ég var líka um tíma hjá Haftækni en satt að segja þá fann ég mig aldrei í klukkuvinnu. Svo að ég hætti einfaldlega að streitast á móti. Ég er einhvern veginn þannig innrættur að 8-17 vinna hentar mér alls ekki. Kannski er ég ekki nógu skipulagður. Svo gerðist þú sjókokkur eða varstu kannski ekki kokkur allan sjómannsferilinn? – Nei, nei. Ég byrjaði á dekki og end- aði þar raunar líka. Á rækjunni fer kokk- urinn á dekkið líka sem gerði mér gott. Hélt mér í æfingu. Ætli ég hafi ekki byrj- að sem matsveinn þegar ég var á Stálvík SI 1 í kringum 1985. Lærðirðu þá til kokks? – Nei en ég byrjaði sem unglingur að elda, fyrst í foreldrahúsum og svo hélt ég því áfram eftir að ég flutti að heiman og stofnaði mitt eigið heimili. Þér hefur þá þótt gaman að standa í eldamennskunni? – Nei, ég hafði aldrei neina sérstaka ánægju af því að elda. Þetta var bara eins og hver önnur vinna. Og kannski kom þarna letin til skjalanna. Ég nennti ekki að vera úti á dekki í öllum veðrum. Þú sagðist ekki vera mjög skipulagður en það hefur nú samt þurft skipulag og hugsun þegar tekinn var kostur? – Það reyndi óneitanlega svolítið á þegar útivistin var kannski sjö vikur eins og þegar ég var á Siglfirðingi SI 150 og við fórum í Smuguna. En þetta var yfirleitt svipað magn sem var keypt og komst því upp í vana. Í lokin ein samviskuspurning, Sig- urður, hvernig kokkur varstu? Ég var nú bara venjulegur kokkur en enginn gúrme. Góður vinur minn kallaði mig kjötfarskokkinn en sann- leikurinn var sá að þegar boðið var upp á kjötfarsbollur, steiktar eða soðn- ar með káli, borðuðu flestir mikið. Auðvitað var maður stundum skamm- aður og helst settu menn út á kjöt- farsið. Það er erfitt að gera öllum til hæfis en oft kviknuðu skammirnar ekki að ástæðulausu, játa ég fúslega. Í heildina var ekki mjög mikið jarmað í mér og lítil illindi urðu. Og víst er að enginn dó. „Var bara venjulegur kokkur“ - Rabbað við Sigurð Örn Baldvinsson matsvein Jón Hjaltason Múlaberg við bryggju á Siglu- firði. Sem sjá má er Sjómanna- dagur í nánd. „Við vorum þrír jafngamlir á Múlaberginu,“ segir Sigurður Örn, „en þessir tveir jafnaldrar mínir hættu örfáum mánuðum á undan mér.“ Mynd: Jón Hjaltason Sigurður Örn tekur á móti kostinum. Mynd: Björn Valdimarsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.