Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 22
22 – Sjómannablaðið Víkingur Fiskimiðin umhverfis landið okkar eru auðug og aflasæl – og undir- staða þeirra afreka, sem unnin hafa verið hér á landi á sviði verklegra fram- kvæmda og sívaxandi menningar. Þessi gjöfulu mið eru þegar öllu er á botninn hvolft kjölfesta íslensks samfélags, jafnt í nútíð sem framtíð – og því ætti enginn að gleyma eða vanvirða. En þó að hafið sé örlátt, hefur lífsbarátta íslenskra sjó- manna verið frek á fórnir. Margur hefur látið líf sitt í því erfiða stríði. Og stund- um hefur Ægir verið svo stórtækur í þeim efnum að þjóðin öll hefur verið harmi lostin. Um þetta þekkjum við óteljandi dæmi. Rifjum upp eitt þeirra. Leitað en án árangurs Árið er 1925, mánuðurinn er febrúar, vikudagurinn laugardagur, mánaðar- dagurinn sá sjöundi. Fjöldi íslenskra togara var þann dag að veiðum út af Vest- fjörðum, flestir á Halamiðum. Þessi feng- sælu fiskimið voru þá nýlega orðin eftir- sótt af íslenskum fiskimönnum. En þeir voru ókunnir ennþá hinu óvenjulega veðurfari, sem algengt er á þessum slóð- um. Þeir þekktu ekki enn nema að örlitlu leyti hinar straumþungu rastir sem þarna myndast svo víða og gera sjólagið svo óskaplegt þegar ofviðrin geisa. Þeir þekktu heldur ekki til hinna snöggu veðrabrigða sem þarna geta orðið. Stormur hafði verið þennan dag og flest skipin hættu að toga upp úr hádegi. Þegar leið á daginn hvessti skyndilega og var á svipstundu komið ofsaveður, með frosthörku og hríð. Stóð veður þetta nær óslitið allan sunnudaginn og fram á mánudag. Eftir það fóru togararnir að tínast smám saman í höfn, allir meira og minna brotnir og illa útleiknir eftir veðr- ið. Voru flestir þeirra tilsýndar eins og fljótandi hafísjakar, þaktir samfelldri klakabrynju frá sigluhún niður á þilfar. Öllu, sem lauslegt var ofan þilja, hafði skolað fyrir borð, á mörgum hafði báta- þilfarið brotnað og stjórnpallurinn farið af sumum, allmargir misstu bátana og af einum brotnaði afturmastrið. Enginn hafði komist í landvar, áður en ofviðrið skall á Loks var allur togaraflot- inn, að tveimur skipum undanskildum, kominn í höfn. Enn var saknað Leifs heppna, eign Geirs Thorsteinssonar út- gerðarmanns, og bresks togara, Field Marshal Robertson, sem gerður var út frá Hafnarfirði, (eign Hellyersbræðra frá Hull). Á hinum fyrrnefnda voru 33 menn, allir íslenskir, en á hinum síðar- nefnda, 35 menn, 29 íslenskir og 6 breskir. Þegar þrír sólarhringar voru liðnir frá því að ofviðrinu slotaði og ekkert hafði spurst til skipanna, fóru menn almennt að verða hræddir um að ekki væri allt með felldu. Ákvað ríkisstjórnin því hinn 12. febrúar að fá danska varðskipið Fyllu til þess að bregða sér vestur á firði að svipast þar um eftir skipunum. Togarinn Ceresio var sendur frá Hafnarfirði í sams- konar leiðangur. Leit þessi varð árangurslaus. En þegar hér var komið málum, höfðu eigendur skipanna og aðrir útgerðarmenn tekið ákvörðun um að senda togaraflotann, eða þann hluta hans, sem var ferðafær, til þess að leita að skipunum. Á sunnudagsmorguninn snemma fóru tólf togarar frá Reykjavík, en níu bættust í hópinn af Selvogsbanka, og höfðu þeir lagt af stað kvöldið áður til móts við hina, sem komu frá Reykjavík. Allir tog- ararnir hittust mánudagsmorguninn 16. febrúar og röðuðu sér með ákveðnu millibili (3 til 4 mílum) á um 90 mílna vegalengd. Hafði áður verið reiknað út, eftir vind- átt þeirri og veðurhæð, sem verið hafði á svæði þessu síðan ofviðrið hófst, hvar helst myndi að leita skipanna. Meðan á leitinni stóð, var stöðugt loftskeytasam- band milli togaranna innbyrðis og við loftskeytastöðina í Reykjavík. Þann 20. febrúar að kvöldi komu margir af togurunum úr leitinni aftur. Ólafur Ragnarsson HALAVEÐRIÐ 1925 Um árabil hefur á Halanum verið að finna ein drýgstu fiskimið togaraflotans. Halinn eða Halamið liggja um 30 til 40 sjómílur útnorður frá Stigahlíð við Ísafjarðardjúp. Þar gengur nes út úr land- grunninu NV í hafdýpið en á mörkum landgrunns og haf- dýpis eru hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir fiskinn. Á Hala- miðum er algengt að veður- hæðin breytist skyndilega – á jafnvel innan við 20 til 30 mínútum – úr einu til tveimur vindstigum í tíu eða þaðan af meira, með frosthörku og byl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.